Góður plokkfiskur er herramannsmatur og vel til þess fallinn að matbúa og bera fram á ýmsa vegu. Ég útbý gjarnan góðan plokkfisk þegar ég fæ erlenda gesti í heimsókn og viðbrögðin eru alltaf mjög góð. Þessi mjög svo íslenski hversdagsréttur er tilvalið að bera fram í veislum, t.d. sem smárétt, forrétt, já eða aðalrétt – því plokkfisk er einfalt að setja í hátíðarbúning svo sem með því að gratinera hann. Galdurinn er eins og ávallt ferskt og gott hráefni. Ég mun á næstunni ljúka vinnslu á hefðbundnum plokkfisk en núna er það plokkari sem gerður eru úr reyktri ýsu. Hugmyndin kemur upphaflega úr matreiðslubók sem gefin var út af kokkalandsliðinu árið 2010 og heitir Einfalt með kokkalandsliðinu.
- 1/2 – 1 laukur, smátt skorinn
- 40 gr. smjör
- 600 gr. reykt ýsuflök
- 300 gr. kartöflur
- 2 dl. jurtarjómi eða matreiðslurjómi
- 1/2 rauð paprika, skorin í smáa teninga
- vorlaukur, graslaukur eða steinselja, smátt skorið
- pipar og ef til vill smá salt
Sjóðið kartöflurnar.
Bræðið smjör á pönnu og látið laukinn svitna í smjörinu í um það bil fimm mínútur, eða þar til hann er glær.
Roðflettið ýsuflökin og skerið í bita. Bætið ýsunni út á pönnuna ásamt rjómanum og látið sjóða við vægan hita í um það bil 8-10 mínútur. Skrælið heitar kartöflurnar, skerið í litla bita og hrærið/stappið saman við fiskinn. Bragðbætið með nýmöluðum svörtum pipar og ef til vill salti en gætið þess að reykta ýsan er yfirleitt fremur sölt svo ekki er þörf á að salta mikið.
Rétt áður en rétturinn er borinn fram er papriku og vorlauk eða graslauk hrært saman við.
Berið fram með einföldu og góðu salati og rúgbrauði.
Það er líka gaman að bjóða þennan rétt sem smárétt, t.d. sem hluta af smáréttarborði. Þá smyr ég rúgbrauðsneiðar með örlitlu smjöri, sker hverja sneið í hæfilega litla bita. Set lítið salatblað á hverja sneið, eina tsk. af plokkfisk ofan á salatblaðið og skreyti með smátt skorinni rauðri papriku og steinselju eða graslauk. Smart og gott.