Indverskar lambakjötsbollur

Indverksar lambakjötsbollurÉg veit ekki alveg hvað skal segja um þessar kjötbollur annað en að þær eru hreint afbragð. Hugmyndin er fengin úr eldgamalli indverskri matreiðslubók sem ég á. Það er ekki alltaf einfalt að nálgast lambahakk – en ef þið farið í sérverslanir, s.s. Kjöthöllina eða Kjöt og fisk þá er oftast unnt að  láta hakka fyrir sig á meðan maður býður, nú eða hringja á undan sér og panta það.  Sjálf hef ég ekki prófað að nota nautahakk í þessar bollur en án efa breytir það ekki miklu. Vilji maður hins vegar vera trúr indverkri matarhefð þá er það lambið sem verður ofan á 🙂 Magn chili í þessari uppskrift fer eftir smekk hvers og eins og því gef ég upp svolítið bil – hver og einn verður að aðlaga uppskriftina að eigin smekk og munið það er alltaf unnt að bæta smávegis chili við – en ómögulegt að minnka magnið eftir að það er einu sinni búið að blanda því saman við annað hráefni 🙂

indv.kjötbollur_hraefniUppskrift

Bollur

  •  500 gr. lambahakk
  • 1/2 – 1 chili, rauður eða grænn, fræhreinsaður og skorinn smátt
  • 1 hvítlauksgeiri, marinn undir hnífsblaði og smátt saxaður
  • 2 cm bútur engifer – rifin smátt
  • 1/4 tsk garam masala
  • 1/2 tsk salt
  • pipar e. smekk
  • 2 – 3 msk söxuð flatblaða-steinselja eða kóríander

Setjið allt sem hráefnið í matvinnsluvél og vinnið saman í nokkrar mínútur.

kjotbollur_1Mótið 18 – 20 bollur.  Geymið á meðan sósan er útbúin.

Sósa 

  • 1 msk. olía
  • 1/4 tsk sinnepsfræ
  • 1/2 tsk broddkúmen fræ
  • 1 laukur, skorinn frekar smátt
  • 1 hvítlauksgeiri, marinn undir hnífsblaði og saxaður smátt
  • 2 cm engiferrót – rifinn smátt
  • 1 tsk broddkúmen
  • 1 tsk kóríanderduft
  • 1/4 – 1/2 tsk. chili duft
  • 1 dós tómatar, saxaðir
  • 1 msk tómatpúrra
  • 1/2 bolli vatn
  • salt og pipar

Hitið olíuna á pönnu og steikið sinneps- og broddkúmenfræin þar til þau byrja að poppa. Lækkið hitann undir pönnunni og bætið lauk, hvítlauk og engifer út á pönnuna, látið malla í u.þ.b. 5 mínútur. Bætið kryddinu, tómötum, tómatpúrru og vatni út á pönnuna og hrærið vel saman.

indv.kjötbollur3Raðið bollunum út á pönnuna og látið sjóða við vægan hita í u.þ.b. 25 mínútur.

Berið fram með góðum hrísgrjónum og ef til vill grænu salati og nan brauði.

Þessi færsla var birt þann Indverskir réttir, Kjötréttir og merkt , , , , . Bókamerkið varanlega slóð.

Færðu inn athugasemd