Bulgur-salat / Tabbouleh

TabboulehÞetta salat rekur uppruna sinn til miðausturlanda og er á þeim slóðum oft borið fram sem einn af nokkrum réttum á hlaðborði, Meze. Salatið er allt í senn; dásamlega einfalt, fallegt og gott. Það hentar hvort sem er með fisk-, kjöt-, eða grænmetisréttum, nú eða  eitt og sér. Ég hef útbúið þetta salat fyrir lítil og stór matarboð, en líka áður en ég fer í ferðalög og haft með grilluðum silung eða kjúkling og auðvitað er einfalt að útbúa það þegar á tjaldstæðið eða í fjallaskálann er komið ef því er að skipta.  Í lengri og styttri gönguferðum er líka gaman að skipta hefðbundnum samlokum út fyrir salat sem þetta.

Oft er fersk mynta í uppskriftinni, en ég sleppi henni yfirleitt – finnst sítrónan og steinselja njóta sín betur án myntunnar – en auðvitað er það smekksatriði.  Hlutföllin í þessari uppskrift eru ekki heilög – notið það sem til er hverju sinni – það eru t.d. oft hafðar gúrkur í Tabbouli, en þær átti ég ekki til í þetta sinn og því eru þær ekki tilgreindar í uppskriftinni minni hér.

Hraefni_tabboulehUppskrift

  • 1 bolli bulgur
  • 2 bollar soðið vatn
  • 1 – 2 tsk. sjávarsalt
  • 2 msk. ólífuolía
  • safi úr 1/2 sítrónu
  • 2-3 tómatar, velþroskaðir og skornir í smáa teninga
  • 1/2 rauðlaukur smátt saxaður
  • 3-4 vorlaukar, skornir í fínar sneiðar
  • 2 hvítlauksgeirar, pressaðir og smátt saxaðir
  • rauð paprika, skorin í smáa teninga
  • fersk steinselja, u.þ.b. hnefafylli, söxuð smátt
  • nýmalaður pipar e. smekk

Setjið bulgur í pott eða ílát með þéttu loki, hellið soðnu vatni yfir og þekjið með þéttu lokinu. Látið standa í u.þ.b. 15 mínútur.  Ef kornið hefur ekki „drukkið“ í sig allt vatnið, sigtið þá það sem er umfram frá. Hellið sítrónusafa og olíu yfir kornið og hrærið vel.

Setjið smátt skorna tómata, lauk, papriku og steinselju í skál og blandið varlega saman. Hellið loks bulgur saman við og blandið vel saman. Smakkið til og saltið og piprið eftir smekk.

Tabbouleh

 

 

Þessi færsla var birt þann Grænmetirréttir, Meðlæti, Miðausturlenskir réttir og merkt , , , , , . Bókamerkið varanlega slóð.

Færðu inn athugasemd