Rjómaostur m/sólþurrkuðum tómötum og ólífum

IMG_6412

Ómissandi fylgifiskur pestó-gerðar í Vatnsholti er þessi dásamlegi rjómaostur.  Einfalt og gott.  Líkt og með pestó-ið þá eru hlutföllin ekki heilög og aldrei alveg þau sömu – í þetta sinn var þó talið, mælt og skráð.  Um helgar er þetta gjarnan á árdegisverðar-hlaðborðinu sem við þreytumst ekki á að fá fjölskyldu og vini til að njóta með okkur.

  • 200 gr. rjómaostur
  • 3 msk. heimagert pestó m/sólþurrkuðum tómötum
  • 1 hvítlauksrif
  • 12 grænar ólífur
  • 12 svartar ólífur
  • 6 sólþurrkaðir tómatar

Rjómaostur, pestó og hvítlaukur maukað saman í matvinnsluvél.  Ólífur skornar í sneiðar og sólþurrkaðir tómatar í litla bita.  Ólífur og tómatar hrært saman við rjómaostamaukið  með sleif.  IMG_6409

Þessi færsla var birt þann Árdegisverður (Brunch), Meðlæti, Pestó, sultur og chutney og merkt , , . Bókamerkið varanlega slóð.

1 Response to Rjómaostur m/sólþurrkuðum tómötum og ólífum

  1. Bakvísun: Hráskinkubollar með eggjum og spínati | Krydd & Krásir

Færðu inn athugasemd