Krydduð eplakaka með súkkulaði og sítrónu

Krydduð eplakakaVá hvað vikurnar þjóta áfram – það er að líklega merki um það hve lífið er skemmtilegt , sannkallaðr heilbrigðisvottur, er það ekki 🙂

Í dag er það þreytt en sæl kona sem hugsar um frið, hlustar á Lennon og smellir í eplaköku. Kaka þessi hefur verið þróuð síðustu vikur og er núna búin að ná þeirri fullkomnun sem sóst var eftir.  Þreytan sem ég mintist á er þó ekki svo mikil að ég ætla að smella mér í Þingvelli, ganga á eitt fjall, njóta nátturunnar, haustlitanna og góða veðursins sem skartar sínu fegursta í dag.

Á morgun er lítill fjölskylduárdegisverður þar sem þessi dásemd fær að prýða borðið.

Krydduð eplakaka - hráefniUppskrift 

  • 2 epli
  • 1 msk. dökkt romm
  • 1 sítróna, safi og fínt rifinn börkurinn
  • 2 egg
  • 120 gr. sykur
  • 1,25 dl. olía
  • 150 gr. hveiti
  • 1,5 tsk. lyftiduft
  • 1 tsk. múskat
  • 1 tsk. fennelfræ, fínt möluð í mortéli
  • 100 gr. dökkt súkkulaði (70%), skorið í fremur smá bita

Hitið ofninn í 180°C

Krydduð eplakaka1Blandið rommi, sítrónusafa og fínt rifnum berki af sítrónunni í skál.  Skerið eplið í litla bita og setjið út í skálina með romm og sítrónublöndunni. Blandið vel saman og setjið til hliðar á meðan deigið er undirbúið.

Krydduð eplakaka2Þeytið egg og sykur mjög vel saman eða þar til blandan er ljós og létt.  Hellið olíunni rólega út í og hrærið vel saman.  Þegar hér er komið er best að nota sleif til að blanda hveiti, lyftidufti, múskat og fennelduftinu saman við.  Þá er eplunum og romm- og sítrónusafanum blandað rólega saman við og loks súkkulaðinu.

Hellið deiginu í pappírsklætt og/eða vel smurt formkökuform.  Bakið í 50-55 mínútur við 180°C eða þar til prjónn sem stungið er í kökuna miðja kemur hreinn út.

Kælið kökuna í forminu í um það bil 15 mínútur áður en það er tekið úr forminu.  Með því móti verður kakan mýkri.

Njótið með góðu kaffi eða kaldri mjók.

Þessi færsla var birt þann Árdegisverður (Brunch), Bakstur og merkt , , , , , , , . Bókamerkið varanlega slóð.

1 Response to Krydduð eplakaka með súkkulaði og sítrónu

  1. thordis10's avatar thordis10 skrifar:

    Mmmmm nammi mér langar í 🙂

Skildu eftir svar við thordis10 Hætta við svar