Möndlu-silungur með salvíusmjöri

Möndlu silungur með salvíusmjöriMikið er sumarið dásamlegur árstími. Tími til að ferðast, liggja í tjaldi/tjaldvagni, ganga á fjöll, veiða í vötnum og ám, njóta útiveru og samveru með fjölskyldu og vinum, rækta kryddjurtir og grænmeti í garðinum, bardúsa við vegagerð og planta trjám, elda góða mat á hinum ýmsu stöðum við mismunandi aðstæður. Ferðast á nýjar og framandi slóðir, en líka á staði sem við þekkjum vel og höfum oft farið áður.Víðar Ferðast með fólki sem manni þykir vænt um og hlakkar til að vakna með á morgnana. Detta úrvinda út af á kvöldin með vel þandar hláturtaugar og auma vöðva eftir hlátrasköll, söng, dans, keppni í stígvélakasti, boðhlaup í hringi og almenn skemmtilegheit langt fram eftir.  Vakna úthvíldur, glaður í bragði og halda áfram að næra líkama og sál.

Vidar_2Eitt slíkt ferðalag var um síðustu helgi, þegar við enn eitt  sumarið skunduðum með góðum vinum í Reykjadalinn – nánar tiltekið í Víðar rétt við Másvatn þar sem fjölskylda æskuvinkonu minnar á jörð og gamalt eyðibýli sem hefur verið gert upp sem sumarhús fjölskyldunnar.

vidar-1Um eða upp úr hádegi hvern dag er farið á vatnið til að vitja neta. Ferskur Más-vatnssilungur dreginn á land og netin lögð að nýju. Við skiptumst á að fara á vatnið, stundum eru stelpuferð, stundum strákaferð og ferð með yngstu börnin. Allir taka þátt og yngstu krakkarnir keppast við að læra handtökin við netin og fiskinn.  Ýmsar hefðir eru í heiðri hafðar og undanfarin 4 eða 5 ár höfum við hjónin séð um að grilla humarpizzu eitt kvöldið, uppskriftina af henni má finna hér.  Önnur skemmtileg hefð er silungaveisla, þá er jafnvel silungur í forrétt og aðalrétt – í ár óskaði ég sérstaklega eftir að möndlu-silungurinn yrði eldaður svo ég gæti tekið myndir og deilt þessari góðu uppskrift hér.  Við vorum 19 í mat þetta kvöld –  ég endurtók því leikinn þegar heim var komið og minnkaði uppskriftina fyrir 4 – 6  og skráði magn niður miðað við þann fjölda. Salvíusmjörið setur punktinn yfir i-ið og athugið að það er mikilvægt að vera með ferska salvíu, hana er mjög einfalt að rækta í potti úti á palli eða á svölunum – mín er í kryddjurtabeðinu úti á palli, lifir langt fram á haust og hefur tvisvar komið upp aftur að vori.

Meðlætið er einfalt, gott ferskt salat og bakaðir kartöflubátar eða nýjar íslenskar soðnar kartöflur.

Uppskrift f. 4 – 6

  • 50 gr. möndluflögur
  • 800 – 1000 gr. silungs-flök, beinhreinsuð og skorin í hæfilega bita
  • salt og pipar
  • smjör og olía til að steikja upp úr

Salvíusmjör

  • 75 – 100 gr. smjör
  • salvía – fersk, u.þ.b. hnefafylli, gróft söxuð

Byrjið á að undirbúa kartöflurnar, þær þurfa lengstan tíma.

Ristið möndluflögurnar á pönnu.

vidar-4Bræðið smjörið á pönnu og bætið smávegis af jurtaolíu út í til að smjörið brenni síður. Steikið fiskinn fyrst á roðlausu hliðinn í nokkrar mínútur, kryddið með salti og pipar, snúið við og steikið á roðhliðinni í nokkrar mínútur (fer eftir stærð og þykkt stykkjanna, en 3-5 mínútur á hvorri hlið er nær lagi).  Stráið möndluflögum yfir silunginn á pönnunni og berið fram.

vidar_3Á meðan þið steikið silunginn er salvíusmjörið undirbúið – setjið smjörið í pott og bræðið, þegar það fer að krauma setjið gróft saxaða salvíu út í smjörið.  Smjörið á að brúnast og salvían að steikjast þar til hún verður stökk – passið samt að brenna ekki smjörið, hitinn má ekki vera of hár.

Berið strax fram með góðum kartöflum og salati.

vidar

Þessi færsla var birt þann Fiskur og sjávarfang og merkt , , , , , , , , , . Bókamerkið varanlega slóð.

Færðu inn athugasemd