Árdegisverðarboð um helgar eru fullkomin leið til að kalla saman þá sem þér þykir vænt um. Nokkrir góðir réttir og skemmtilegt fólk, dásamlegri byrjun á laugardegi eða sunnudegi er vandfundin. Réttirnir þurfa ekki að vera margir eða flóknir. Hér er einn sem er mjög einfaldur, fallegur og ákaflega góður.
- 150 gr. frosin hindber
- 2-3 msk. hunang
- 1 1/2 dós grísk jógúrt (500 gr.)
- músli (heimagert er best – sjá uppáhaldsuppskriftina hér
- nokkur fersk hindber (má sleppa)
Setjið hindber og hunang í pott og hitið að suðu, látið malla í 5 mín. Kælið.
Skiptið hindberjamaukinu jafn á milli 4 fallegra glasa eða setjið í krukkur. Gríska jógúrtin fer ofan á hindberjamaukið og loks músli. Skreytið með nokkrum ferskum hindberjum ef þið eigið þau til.