Chili Con Carne ala Jamie Oliver

IMG_6539Jamie Oliver hefur lengi verið mikill heimilisvinur – við eigum margar af bókunum hans, nokkra CD diska með þáttunum hans og Fifteen er einn af uppáhalds-veitingastöðunum mínum í London. Jamie er ekki bara skemmtilegur kokkur, hann er mikill hugsjónarmaður sem gaman er að fylgjast með. Uppskriftin af þessu Chili Con Carne á rætur að rekja til Jamie – grunnurinn er í einni af fyrstu bókunum sem hann gaf út – Happy Days with Naked Chef.   Eins og ávallt þá þróast uppáhalds-uppskriftir sem eldaðar eru reglulega og verða ef til vill aldrei alveg eins – þetta er ein þeirra.  Tilvalin uppskrift í veislur og stór matarboð.  Auðvelt er að taka tillit til margra þátta – þannig minnkum við chilli magnið töluvert þegar von er á (h)eldri gestum eins og raunin var nú í vikunni þegar við buðum upp á þennan rétt í 81 árs afmælis-kvöldverði elskulegrar tengdamóður minnar. Galdurinn er að lesa í aðstæður og hráefnið í hvert sinn og leika svolítið af fingrum fram.  Magnið er auðvelt að auka ef von er á mörgum gestum – við þrefölduðum þessa uppskrift nú í vikunni og elduðum réttinn kvöldið áður en matarboðið var haldið, á þann hátt verður bragðið dýpra og enn betra.

Uppskrift fyrir u.þ.b. 4

  • 1 stór laukur
  • 1 hvítlauksrif
  • 1 rautt chili
  • 1 – 2 tsk. chiliduft
  • 1 tsk. broddkúmen
  • 1/2 kanilstöng
  • sjávarsalt
  • nýmalaður pipar
  • 450 gr. gott nautahakk
  • 100 gr. sólþurrkaðir tómatar í olíu
  • 2 dósir niðursoðnir tómatar
  • 3 dl. vatn
  • 400 gr. nýrnabaunir (eða 2 dósir niðursoðnar)

Skerið laukin smátt og steikið í olíu á góðri pönnu við lágan hita þar til hann verður gullinn. Bætið hakkinu á pönnuna, hækkið hitann og steikið.  Hakkið sólþurrkuðu tómatana í olíunni í smástund í kvörn og setjið út á pönnuna ásamt tómötunum í dósinni, hvítlauk og kryddi og vatni.  Best er að nota kúmen-fræ og rista þau á þurri pönnu og steita þau í mortéli áður en þeim er bætt á pönnuna, en þetta er útúrdúr – ekki nauðsynlegur, en gefur meiri dýpt. Látið suðuna koma upp, setjið þétt lok á pönnuna og látið malla í 1 og 1/2 klukkustund við lágan hita eða setjið í pott sem unnt er að setja inn í ofn og bakið í ofninum við 150 gr.C.  Bætið nýrnabaununum í pottinn eða pönnuna 30 mín. áður en suðutímanum er lokið -þær eru soðnar og þurfa einungis að hitna.  

Þessi réttur er betri ef hann er búinn til daginn áður en hann er borinn fram, þá fær bragðið tíma til að styrkjast og verður betra.  Þetta er því þægilegur réttur ef von er á gestum í mat og tilvalinn í fjölmennar veislur, en hentar líka sem fjölskylduréttur.

Berið fram með góðu guacamole, heimagerðu salsa, jógúrt, hrísgrjónum, grænu salati, nachos og góðu brauði.  Athugið að ekki er nauðsynlegt að bjóða upp á allt þetta meðlæti – nægjanlegt er velja tvennt eða þrennt – en í stórum veislum er gaman að hafa nægilegt úrval sem er einfalt að útbúa fyrirfram.

IMG_6525

Birt í Mexikóskir réttir | Merkt , , , , , , | 3 athugasemdir

Músli heimagert

IMG_6501

Mikilvægasta máltíð dagsins -morgunverðurinn ætti að vera snar þáttur í matargerð okkar, en flest erum við líklega á hlaupum á morgnanna og gefum okkur ekki mikinn tíma til að huga að fjölbreytni sem er svo skemmtileg.  Fjölskyldan er heldur ekki alveg sammála um hvað er góður morgunmatur og hvað ekki. Unglingurinn á heimilinu á sem dæmi erfitt með að skilja að móðir hennar neiti að kaupa Cherrios og kornfleks til að eiga alla morgna og vilji heldur útbúa hafragraut eða góðan morgun-boozt. En þegar heimagert múslí er til í krukku þá saknar engin Cheeriosins eða Kornfleksins. Dásamlegt með AB mjólkinni og enn betra með grískri jógúrt, góðu hunangi og ferskum jarðaberjum.

Grunnurinn að uppskriftinni er fengin í einni af uppáhalds matreiðslubók minni HOME MADE eftir hollenskan matarbloggarann Yvette Van Boen sem jafnframt rekur veitingastaðinn AAN–DE-AMSTEL í Amsterdam. Ég mæli með heimsókn  þangað ef þið eigið leið til Amsterdam – en athugið áður en þið farið að staðurinn tekur ekki við kreditkortum – ég fór flatt á því síðasta haust og hélt um tíma að ég yrði að vaska upp fyrir reikningnum.

En aftur að uppskriftinni – hlutföllin eru ekki heilög, allt er þetta smekksatriði, ræðst af því hvað er til í skápunum hverju sinni og hvað manni þykir best.

  • 4 bollar tröllahafrar
  • 2 bollar fræ, hnetur,möndlur, kókosflögur eftir smekk
  • ½ bolli eplasafi – góður
  • 2 – 4 tsk. hunang
  • 2 bollar þurrkaðir ávextir eftir smekk

Skerið möndlur og hnetur gróft. Blandið saman höfrum, fræjum, hnetum og möndlum í skál. Leysið hunangið upp í eplasafanum og hrærið blöndunni út í hafrablönduna. Setjið smjörpappír á bökunarplötu og hellið blöndunni á pappírsklædda plötuna og dreifið vel. Bakið við 150°C í 25 mín og hrærið reglulega í blöndunni eða á 5 mínúntna fresti svo allt bakist jafnt og hnetur og kókos brenni síður.
Á meðan blandan er að bakast skerið þið þurrkaða ávexti niður í litla bita. Fallegt er að vera með litríka blöndu t.d. aprikósur, döðlur, trönuber, gráfíkjur, ljósar rúsínur.
Blandið ávöxtunum við hafrablönduna þegar hún hefur kólnað – setjið í fallega krukku og njótið.

IMG_6481 IMG_6493 IMG_6494

Birt í Árdegisverður (Brunch), Morgunmatur | Merkt , , , , , , , , , | 7 athugasemdir

Gulrótarterta

IMG_6474Loks kom vorið til Íslands og eins og ávallt þá fyllist ég orku, bjartsýni og framkvæmdagleði þegar hitastigið hækkar og sólin lætur sjá sig.  Í morgun var hitastigið rétt yfir 10˚ C , rigning og maður nánast horfði á gróðurinn í garðinum taka við sér. Laufin á runnum og trjám springa út, mintan, sítrónumelisan og garðablóðbergið kíkja upp úr moldinni og graslaukurinn myndar blómaknúpa sem springa innan skamms.  Það er fátt sem spillir gleðinni, nema þá helst vorkvef sem hefur strítt okkur hressilega síðustu daga – en það mun staldra stutt við. Sólin hefur aftur brotist fram og við sjáum fram á marga góða morgna með kaffi og góðgæti á pallinum.

Önnur uppáhalds-uppskrift fjölskyldunnar er af gulrótarköku og hefur fylgt okkur lengi.  Uppskriftin hefur þróast í gegnum tíðina og í þessari útfærslu er minni sykur en í þeirri upphaflegu.  Stundum bökum við muffins eftir þessari uppskrift –það eina sem breytist er bökunartíminn sem styttist til muna og að sjálfsögðu formin sem eru fleiri og minni.

IMG_6457

Uppskrift

  • 3 egg
  • 3 dl. púðusykur dökkur
  • 5 dl. hveiti
  • 2 tsk. sódaduft
  • ½ tsk. múskat (ég nota alltaf nýmalaða múskathnetu, bragðið er svo miklu betra)
  • 2 tsk. kanill
  • 1 tsk. vanilludropar (heimagerðir eru bestir)
  • 2 ½ dl. olía (bragðlítil)
  • 5 dl. rifnar gulrætur
  • 2 ½ dl. kókosmjöl
  • 1 ½ dl. valhnetur
  • 1 dl. rúsínur

Hræra egg og sykur vel saman.  Blanda hveiti, sódadufti, kanil, múskat og vanilludropum saman við.  Hræra loks varlega saman olíu, kókos, gulrótunum, rúsínum og hnetum.

Baka við 175˚C  í stóru smelluformi (26 cm) í u.þ.b. 45 – 60 mín.

IMG_6462

Rjómaostakrem

  • 200 gr. rjómaostur
  • 100 gr. flórsykur
  • 2 msk. appelínulíkjör eða appelsínusafi

Hrært vel saman og spurt á kökuna þegar hún hefur kólnað

Skreytt með ½ dl. kókosflögum sem ristaðar eru á þurri pönnu og kældar áður en þeim er stráð yfir kremið á kökunni.

IMG_6477

Birt í Bakstur, Kökur | Merkt , , , , | 2 athugasemdir

Rjómaostur m/sólþurrkuðum tómötum og ólífum

IMG_6412

Ómissandi fylgifiskur pestó-gerðar í Vatnsholti er þessi dásamlegi rjómaostur.  Einfalt og gott.  Líkt og með pestó-ið þá eru hlutföllin ekki heilög og aldrei alveg þau sömu – í þetta sinn var þó talið, mælt og skráð.  Um helgar er þetta gjarnan á árdegisverðar-hlaðborðinu sem við þreytumst ekki á að fá fjölskyldu og vini til að njóta með okkur.

  • 200 gr. rjómaostur
  • 3 msk. heimagert pestó m/sólþurrkuðum tómötum
  • 1 hvítlauksrif
  • 12 grænar ólífur
  • 12 svartar ólífur
  • 6 sólþurrkaðir tómatar

Rjómaostur, pestó og hvítlaukur maukað saman í matvinnsluvél.  Ólífur skornar í sneiðar og sólþurrkaðir tómatar í litla bita.  Ólífur og tómatar hrært saman við rjómaostamaukið  með sleif.  IMG_6409

Birt í Árdegisverður (Brunch), Meðlæti, Pestó, sultur og chutney | Merkt , , | Ein athugasemd

Pestó m/sólþurrkuðum tómötum, basil og ólífum

IMG_6392

Það er viðeigandi að fyrsta matarfærslan sé uppáhalds-pestó fjölskyldunnar.  Uppskriftin hefur þróast í gegnum árin, en aldrei áður hef ég reynt að mæla það sem fer í hana -þetta var því svolítil áskorun, að mæla og setja allt í litlar skálar áður en hafist var handa við að mauka góðgætið.  Afurðin olli ekki vonbrigðum og ef ég þekki mitt fólk þá munu pestó – krukkurnar tvær sem nú eru komnar í ískápinn staldra stutt við.  Við kaupum aldrei tilbúið pestó, gerum ávallt okkar eigið – þið munið skilja hvers vegna eftir að hafa prófað þessa uppskrift.

IMG_6387

  • 200 gr. sólþurrkaðir tómatar
  • 70 gr. svartar ólífur
  • 1 knippi basilika
  • 3-4 hvítlauksgeirar
  • 1,5 dl. góð ólífuólía
  • 2 msk. balsamik edik
  • 1 tsk. nýmalaður pipar

Setjið allt í matvinnsluvél nema ólífuólíuna og maukið, hellið ólífuólíunni í hægri bunu út í.  Smekksatriði hveru gróft maukið er, við viljum hafa það fín-maukað.  Magn ólíunnar fer líka eftir smekk, því meiri olía, því þynnra mauk.

IMG_6390

Birt í Árdegisverður (Brunch), Pestó, sultur og chutney | Merkt , , , , | 8 athugasemdir

Byrjunin

IMG_0430

Það er ekki laust við að svolítil feimni geri vart við sig þegar við hefjum þetta blogg – best að vekja litla athygli á því fyrst um sinn á meðan við náum tökum á þessu.

Birt í Annað | Merkt | Færðu inn athugasemd