Leit
-
Nýlegar færslur
- Basil pestó – þetta hefðbundna ítalska
- Silungur pakkaður í hráskinku borin fram með bygotto
- Lambaleggir í hægum takti
- Kalkúnabringa „Sous Vide“
- Sæt kartöflumús með sveppum
- Grænmetislasagne
- Bláberjakaka með möndlum, kókos og sítrónu
- Rósmarín kjúklingaspjót með einfaldri kaldri sósu
- Perlubygg með grilluðu grænmeti
Sarpur
Uppskriftir
Tækni
Author Archives: Berglindol
Marokkóskur salt-sítrónu kjúklingur með olífum
Þessi marokkóski kjúklingaréttur er einn af mínum uppáhalds – hann lærði ég að matbúa á námskeiði í Marrakesh árið 2011. Þá lét ég gamlan draum rætast og fór með góðri vinkonu til Marokkó til þess að læra að matbúa að … Lesa meira
Marokkóskt kúskús m/saltri sítrónu
Kúskús með saltri sítrónu er einfalt og gott meðlæti, hvort sem er með grænmeti, kjúkling eða fisk. Í kvöld eldaði ég einn af mínum uppáhaldsréttum, kjúklingarétt með saltri sítrónu sem ég lærði að matbúa á námskeiði í Marrakech í Marrakó … Lesa meira
Miðvikudags-þorskur með miðausturlensku tvisti
Ég er líklega ekki sú frumlegasta þegar kemur að nafngiftum á nýja rétti – þessi þorskur er jú eldaður á miðvikudegi og kryddblandan með miðausturlensku tvisti. Góður réttur sem ég efast ekki um að verði eldaður aftur. Mæli með sætkartöflusalatinu … Lesa meira
Vatnsdeigsbollur
Bolludagurinn er á morgun og að sjálfsögðu eru bakaðar bollur í Vatnsholtinu. Áralöng hefð er fyrir því að baka vatnsdeigsbollur á sunnudegi fyrir bolludaginn og fá fjölskylduna í bollukaffi. Uppskriftin sem stuðst er við er úr Matarást Nönnu en fyllingin … Lesa meira
Sætkartöflusalat með miðaustulenskum blæ
Ég hef áður skrifað um Ottolenghi og staðinn hans sem er í Ishlington í London, en þá færslu getur þú fundið hér. Einn þeirra rétta sem ég fékk mér þennan ágæta september-dag sem ég sótti staðinn heim voru sætar kartöflur með … Lesa meira
Ferskt fyllt pasta I – Cappelletti Verdi
Árið 2008 var ég svo lánsöm að eignast 17 ára ítalska dóttur – Carlottu Gualdi. Carlotta dvaldi hjá okkur í tæpt ár á vegum AFS skiptinemasamtakanna og varð strax frá fyrsta degi hluti af fjölskyldu okkar og við síðar hluti … Lesa meira
Blóðappelsínu-sorbet
Heill mánuður frá síðustu færslu -það er met, met sem ég hyggst hvorki slá né jafna á næstunni. Ástæður blogghvíldarinnar eru margar svo sem gríðarlegt annríki, eitt gott ferðalag og því að ég hef haft um ansi margt að hugsa … Lesa meira
Gróft spelt brauð með fræjum
Gróft spelt brauð hef ég bakað reglulega til margra ára. Upphaflega kom uppskriftin frá Sollu á Gló. Einfalt, gróft, hollt og gott brauð sem hefur þróast og breyst í gegnum árin. Galdurinn við þetta brauð er að hræra sem minnst … Lesa meira
Nýtt ár – ný tækifæri og vinsælustu uppskriftirnar
Ég verð alltaf svolítið meir um áramót. Þá er tími til að þakka fyrir það góða, ef til vill er stundum þörf til að syrgja, en fyrst og fremst tími til að horfa fram á veginn og gefa sér tóm … Lesa meira
Rauðlaukssulta
Eitt af því sem mér finnst mjög skemmtilegt fyrir jólin er að útbúa litlar bragðgóðar jólagjafir og læða þeim með í pakka til ættingja og vina. Ég hef oftast verið duglegri við þá iðju en raunin varð í ár. Aðventan … Lesa meira