Rabarbara-möffins

Rabarbara-tíðin er enn í hámarki þó langt sé liðið á sumarið enda vorið svalt og sumarið seint á ferð svo ekki sé fastar að orði kveðið. Ég sá uppskrift svipaða þessari í Donna Hay tímaritinu sem ég er áskrifandi að á I-Padinum mínum. Talandi um I-Pad – þessi færsla er sú fyrsta sem gerð er á síma og I-Pad – heimilistölvan gerði uppreisn, harði diskurinn gaf sig og tölvan því ónothæf í einhvern tíma – vonandi ekki mjög lengi þó. Upplagt tækifæri til að reyna nýjar aðferðir – blogga á símann og I-Padinn – allar myndir sem þessari færslu fylgja eru teknar á símann og færslan skrifuð á paddann.

En aftur uppskriftinni og það með smá útúrdúr og monti – í dag var förinni heitið í Elliðarárdalinn þar sem rennt var fyrir lax fyrir hádegi, ég er svo heppin að eiga samstarfsfólk sem tilnefndi mig í starfsmanna veiði í ánni og kom heim með 2 væna laxa og það einungis 3 vikum eftir að hafa sett í Maríulaxinn.  Upp úr hádegi var síðan  slegið upp litlu veisluborði og notið með besta fólkinu mínu. Það er gaman að bjóða upp á nýjungar og þessi uppskrift fékk þann heiður í dag, dásamlega góð og viðeigandi á góðum sunnudegi í lautarferð, úti í garði eða bara heima í eldhúsi.

 Uppskrift 

Rabarabara-mauk

  • 300 gr. rabarbari, hreinsaður og skorinn i 0,5 cm. bita
  • 1/2 bolli sykur
  • fínt rifinn börkur af 1/2 appelsínu
  • Safi úr 1 appelsínu

Deigið

  • 2 egg
  • 1 bolli púðursykur
  • 1 bolli AB mjólk eða súrmjólk
  • 1/2 bolli bragðlítil olía 
  •  1 tsk. vanilludropar
  • 2 1/2 bolli hveiti
  • 2 tsk. lyftiduft
  • 1 tsk. sódaduft
  • 1 tsk. kanill
  • 1 tsk. engiferduft

Ofan á

  • 1/2 bolli hveiti
  • 2 msk. hrásykur
  • 40 gr. smjör, brætt

Byrjið á að baka rabarbarann.

 Fyrst þarf að skera hann í u.þ.b. 1 cm. bita, blanda honum saman við sykurinn, appelsínusafann og fínt rifinn börkinn. Þá er allt sett i eldfast mót og bakað við 180°C í u.þ.b. 10 mínútur eða þar til rabarbarinn er mjúkur.  Kælið.

Hrærið þvi næst saman eggjum og sykri, bætið AB mjólkinni, olíu og vanilludropum saman við. Blandið loks þurrefnunum saman við, en gætið þess að hræra deigið ekki mikið eftir að þurrefnin eru komin saman við.

Hrærið saman því sem a að fara ofan á, það er hveiti sykur og bræddu smjöri.

Setjið deigið í möffinsform, u.þ.b. 12 fremur stór eða fleiri lítil.

 Setjið rabarbara-maukið ofan á deigið og sáldrið hveitiblöndunni ofan á.

Bakið við 180°C í 20 mín.

Birt í Árdegisverður (Brunch), Bakstur | Merkt , , | Færðu inn athugasemd

Grilluð stórlúða með asísku ívafi

Grilluð lúða Mikið sem sumarið getur verið góður tími -tími til að grilla og borða úti í garði. Fiskur hentar vel á grillið og þegar í boði er falleg stórlúðusteik hjá fisksalanum mínum þá stenst ég ekki mátið.  Stórgóð steik sem ákaflega fljótlegt er að útbúa og já einfalt líka og um leið hollt – það er vart hægt að biðja um meira – nema ef til vill lengra sumar, fleiri bjartar nætur og að hitastigið sýni oftar 2 stafi í plús eins og verið hefur síðustu viku eða svo 🙂

Hráefni-grilluð lúða Uppskrift

  • 1 kg. stórlúðusteik

Kryddlögur

  • 60 ml. teriyaki sósa
  • 1 msk. sojasósa
  • 2 hvítlauksrif, marin undir hnífsblaði, saxaður smátt og maukaður
  • 2 cm engiferrót, rifin smátt
  • 1/2 rauður chili-pipar, saxaður mjög smátt

Blandið öllu sem á að fara í kryddlöginn saman. Penslið stórlúðusteikna með kryddleginum og grillið á heitu grilli í 3-5 mínútur á hvorri hlið.  Penslið kryddleginum yfir þegar þið snúið henni við.

lúðaGott er að taka afganginn af kryddleginum og hita hann að suðu og bera fram með matnum.

Meðlæti

  • sykurbaunir
  • eggaldin
  • paprika
  • gulrætur
  • Olía
  • salt og pipar
  • ferkst kóríander

Skerið grænmetið í bita, fremur jafna að stærð, en hafið gulræturnar í þynnri bitum og baunirnar heilar.

wok grænmetiVeltið grænmetinu upp úr olíu og snöggsteikið á heitri wok pönnu í nokkrar mínútur – kryddið með salti og pipar. Stráið fersku gróft söxuðu kóríander yfir réttinn um leið og hann er borinn fram.

Góð hrísgrjón eiga líka vel við þennan rétt  – en þetta kvöld bárum við lúðuna einungis fram með wok steiktu grænmetinu – næst bætum við ef til vill smá kolvetnum við og sjóðum góð Jasmin hrísgrjón.

Birt í Fiskur og sjávarfang, Grillréttir | Merkt , , , , , | Færðu inn athugasemd

Opin samloka með aspas, pancetta, eggi og esdragon mayonesi

Opin samloka með ferskum aspas ofl.Hver elskar ekki sumar og sól – þegar tilefni gefast til dekka upp borð úti í garði, borða þar og njóta. Við nýtum hvert tækifæri sem gefst til þess að færa borðhaldið út í garð. Þegar við fluttum í götuna okkar fyrir 11 árum, var hitabylgja í Reykjavík og við nutum þess að borða úti á hverjum degi í margar vikur – enda var eldhúsið okkar fokhelt á þeim tíma. Við vöktum athygli nágrannanakonu okkar í næsta húsi sem komst  ekki hjá því að sjá þessa fjölskyldu sem dúkaði upp borð út í garði á hverjum einasta degi í margar vikur. Einn daginn spurði hún okkur hvort við hefðum verið búsett á Ítalíu eða á suðrænum slóðum 🙂  Þessu átti hún ekki að venjast þessi 40 ár sem hún hafði verið búsett í götunni og fannst því liggja beinast við að fjölskylda okkar hefði verið við nám og störf á suðrænum slóðum – sem er fjarri sannleikanum, en við eigum sannarlega í ástarsambandi við Ítalíu og höfum átt í nokkra áratugi.

Annað sem  ég elska við sumarið er allt ferska og gómsæta grænmetið og ávextirnir sem í boði er. Þegar ég ferðast á erlenda grund – leita ég uppi matarmarkaði og kem iðulega með eitthvað gómsætt með mér heim. Fyrir nokkrum vikum flaug ég heim frá Stokkhólmi – daginn sem ég flaug heim kom ég við á matarmarkaði nálægt hótelinu sem ég gisti á og keypti heilt kíló af ferskum aspas og matbjó hann í nokkra rétti dagana á eftir.  Þessi réttur er einn þeirra sem verðskuldar færslu enda sérlega ljúffengur. Ég veit ekki til þess að hér sé seldur íslenskur aspas, en hann er fluttur inn eins og svo margt annað gott grænmeti og ávextir.  Þið þurfið því ekki að fara alla leið til Stokkhólms til að nálgast ferskan aspas, hann er oft til í verslunum Hagkaupa og Víði og hef ég líka rekist á ferskan aspas í Bónus og Krónunni.

HraefniUppskrift

  • 4 brauðsneiðar af góðu súrdeigsbrauði
  • 16-20 vænir aspas stönglar
  • 8-12 sneiðar pancetta eða gott beikon
  • 4 egg
  • 1 msk. sítrónusafi
  • 2-3 msk. ólífuolía
  • salt og pipar

Estragon Mayones

  • 2 eggjarauður
  • 1 tsk. dijon sinnep
  • 1 hvítlauksgeiri, skorinn mjög smátt og marinn undir hnífsblaði í mauk
  • 1 msk. sítrónusafi, ferskur
  • 200-250 ml. góð bragðlítil olía, t.d. ljós olífuolía eða grænmetisolía
  • fersk estragon skorið gróft – magnið er smekksatriði, en ég notaði líklega 15-20 gr.

Byrjið á að útbúa mayonesið – hrærið eggjarauður og sinnepið vel saman og bætið hvítlauknum og sítrónusafanum  saman við og hrærið mjög vel.  Bætið olíunni saman við í smáum skömmtun og þeytið vel saman þar til hæfilega þykk og kremkennd blanda myndast.  Þetta ferli er unnt að gera í blandara, hrærivél eða bara með handþeytara.  Kryddið með salti, pipar og fersku estragon og geymið í kæli þar til borið fram.aspas

Skerið trénaða partinn neðst af aspasstönglunum. Sjóðið vatn í potti og setjið aspasinn út í vatnið í 1-2 mínútur þegar það bullsýður. Setjið aspasinn í sigti og undir ískalt rennandi vatn. Blandið saman olífuolíu, sítrónusafa, salt og pipar í stórri skál og veltið aspasinum upp úr blöndunni. Þá er aspasinn steiktur á grillpönnu eða grillaður á heitu útigrilli í nokkrar mínútur.

Steikið pancetta eða beikon á heitri pönnu og spælið egg á þeirri sömu pönnu.Aspasinn2Léttristið súrdeigsbrauðsneiðarnar.  Raðið á disk, fyrst brauð, þá pancetta eða beikon, nokkrir aspas stönglar þar ofan á og loks spælt egg. Piprið örlítið með nýmöluðum og góðum pipar og berið fram með esdragon mayonesi.

Opin samloka - aspas

Birt í Árdegisverður (Brunch), Morgunmatur, Smáréttir | Færðu inn athugasemd

Pönnukökur

PönnukökurÞessi uppskrift hefur fylgt mér ákaflega lengi, eða allt frá því ég var í sveit sem táningur. Í seinni tíð baka ég sjaldnar pönnukökur en áður, en mikið eru þær góðar og viðeigandi á hátíðarstundum að rifja þetta hefðbundna og góða bakkelsi upp.

Pönnukökupannan skiptir mestu máli þegar bakaðar eru pönnsur – best er að hún sé gömul og mikið notuð. Þá er nauðsynlegt að baka pönnukökurnar við háan hita. Þegar ég var táningur og hafði sagt skilið við sveitardvalir á sumrin tók við sumarvinna hjá Úlfari Jacobsen á eldhúsbíl eða eldhústjaldi upp á fjöllum að elda mat fyrir erlenda ferðamenn.  Þá voru pönnukökurnar mjög vinsælar með kvöldkaffinu.  Þá bökuðum við stundum á 3 pönnum í einu og þótti ekkert tiltökumál að skella í 150 – 200 pönnukökur þegar búið var að vaska upp og ganga frá eftir kvöldmatinn.  Bestar finnst mér  pönnukökurnar með hefðbundinni rabarabarasultu og þeyttum rjóma – en hin klassíkin, upprúllaðar með sykri eru líka góðar. Viðeigandi á degi sem þessum – gleðilega hátíð og takk fyrir mig.

IMG_6127Uppskrift 

  • 3 egg
  • 6 dl. mjólk
  • 1 tsk. sykur
  • 130 gr. hveiti – sigtað
  • 40 gr. smjör – brætt og kælt aðeins

Þeytið saman egg og mjólk.  Hrærið sykrinum saman við.

PönnukökurSigtið hveitið yfir eggjablönduna og hrærið vel saman.  Deigið verður betra ef það fær að standa aðeins á þessu stigi eða í allt að 2 klukkustundir.  Bræðið þá smjörið, kælið aðeins og bætið saman við.

Hitið pönnukökupönnuna þar til hún er vel heit. Setjið um það bil eina ausu af deigi á pönnuna, hellið deiginu til á pönnunni þar til það þekur hana alveg – pönnukökurnar eiga að vera þunnar.  Steikið þar til neðri hliðin sýnist fallega brún, snúið pönnukökunni þá við með spaða og steikið á hinni hliðinni þar til fallega brún. Hvolfið kökunni á disk. Berið fram með sultu og rjóma eða rúllið þeim upp með sykri.

Pönnukökur

Birt í Bakstur, Vinsælar uppskriftir | Merkt , , , | Færðu inn athugasemd

Grillaðar lambakótelettur

Grillaðar kótelettuSumar-grill-tíminn hafinn í Vatnholtinu og nú með dásemdar lambakótelettum. Einföld uppskrift sem er svo góð að táningurinn umlaði við matarborðið og það gerir hún ekkert endilega þegar kjöt er annars vegar.

Lambakjötið keyptum við beint frá bónda, frístundabónda raunar og fengum það afhent nánast eins og við vildum. Við höfðum reyndar ætlað að fá hrygginn heilann en fyrir mistök þá var hann sneiddur í tvöfaldar grillsneiðar og það kom sér vel í dag.  Ég mæli svo sannarlega með því að kaupa heilan lambaskrokk beint frá bónda – það er alveg sama hvaða bita við höfum eldað af þessu dýri þeir eru allir jafngóðir.  Ég á án efa eftir að kaupa heilan lambaskrokk aftur ef slíkt stendur til boða í haust.

En aftur af uppskriftinni, lamb, sítróna, olífuolía, hvítlaukur og ferskar kryddjurtir – samsetning sem getur vart klikkað. Einfalt, fljótlegt og gott.  Meðlætið var líka einfalt, grillað grænmeti og sósan, létt, holl og góð – uppistaðan grísk jógúrt og heimagert tómatpestó. Það var ekki agnarögn eftir á bakkanum að borðhaldi loknu – það eru meðmæli.

Grill-kótelettur, hráefniUppskrift (fyrir 3) 

  • 6-8 tvöfaldar grill-lambakótelettur, fituröndin skorinn af
  • 4 msk. olífuolía
  • 2 msk. sítrónusafi
  • 2 msk. fersk rósmarín, skorið gróft – nokkrar heilar rósmarínnálar
  • 1 msk. ferskt tímían
  • 1 hvítlauksgeiri – marinn undir hnífsblaði og skorinn mjög smátt og maukaður
  • 1 hvítlauksgeiri – skorinn i þunnar sneiðar
  • salt og nýmalaður pipar

Sósa

  • 6-7 msk. grísk jógúrt
  • 2 msk. pestó með sólþurrkuðum tómötum, sjá uppskrif hér
  • 1 hvítlauksgeiri – maukaður
  • nýmalaður pipar

Byrjið á að útbúa sósuna, með því að hræra öllu vel saman og látið hana standa í um það bil klukkustund, eða á meðan þið útbúið matinn.

GrillkóteletturHreinsið kjötið og skerið fituröndina alveg af því.  Blandið olíu, sítrónusafa, gróft skornum ferskum kryddjurtum, hvítlauksmauki og pipar saman.

Stingið 3-4 stungur í hverja kótilettu og troðið rósmarín-nálum og hvítlauk í hverja stungu. Smyrjið krydd-olíu-blöndunni á sneiðarnar og látið þær standa í 20-30 mínútur að lágmarki, en þær mega líka hvíla mun lengur í kryddblöndunni.

Grillið kjötið á funheitu grilli í nokkrar mínútur á hvorri hlið – saltið kjötið um leið og þið grillið það með góðu sjávarsalti.

Berið fram sósunni og grilluðu grænmeti, t.d. sætar kartöflur í sneiðum, papriku, tómata og sveppi.

Grill-kótelettur

 

 

Birt í Grillréttir, Kjötréttir | Merkt , , , , | Færðu inn athugasemd

Möndlu- og bananamöffins

Banana og möndlumúffur Morgunstund gefur gull í mund – ég var lengi að sættast við þennan góða málshátt, enda b-manneskja frameftir öllum aldri og enn finnst mér gott að kúra á morgnana. B-genið hefur líka erfst til dætra minna sem báðar elska að sofa út – en með árunum verður maður árrisulli og um helgar er fátt betra en vakna fremur snemma og dunda sér í eldhúsinu í ró og næði. Fá síðan góða gesti í árdegisverð eða síðdegiskaffi.  Þessar múffur með bönunum og möndlum eru hæfilega sætar, mjúkar og góðar og vinsælar í slíku boði.

IMG_8823Uppskrift

  • 3 þroskaðir bananar
  • 100 gr. möndlusmjör
  • 100 ml. ab mjólk eða súrmjólk
  • 1/2 tsk. vanilludropar
  • 1/2 tsk. salt
  • 2 egg
  • 75 gr. púðusykur
  • 250 gr. hveiti
  • 25 gr. möndumjöl
  • 2 tsk. sódaduft

ofan á

  • 100 gr. flórsykur
  • ferskur appelsínusafi og ef til vill smávegis af fínt rifnum berkinum
  • möndluflögur – ristaðar

Stappið banana vel.  Setjið í skál og hrærið möndlusmjöri, ab mjólk, vanilludropum og salti saman við.  Bætið eggjunum út í einu í senn og þá púðusykrinum og hærið vel saman. Loks er hveiti, möndlumjöli og sódadufti blandað vel saman við.  Gætið þess að hræra deigið ekki of mikið eftir að hveitinu er blandað saman við, því þá er hætt við að múffurnar verði seigar.

IMG_8824Bakið við 180°C í 15-20 mínútur.  Kælið

Blandið flórsykri og appelsínusafa saman þar til það er hæfilega þykkt til að unnt sé að setja á kökurnar en þó ekki of þunnt þannig að það renni ekki allt af þeim.  Skreytið með ristuðum möndluflögum og njótið með góðu kaffi.

Birt í Árdegisverður (Brunch), Bakstur | Merkt , , , | Færðu inn athugasemd

Risotto með ofnbökuðu tómatmauki og mozzarella 

Risotto með ofnbökuðu tómatmauki og mozzarellaVið erum alls ekki hætt að borða kjöt þó það hafi farið minna fyrir slíkum uppskriftum hér að undanförnu, en við eldum mun oftar grænmetis- og fiskrétti en áður. Ein ástæða þess er að um áramótin setti fjölskyldan sér nokkur markmið eins og ég hef áður sagt frá. Eitt af markmiðum okkar í ár er að elda grænmetisrétt að lágmarki einu sinni í viku. Ég væri að segja ósatt ef ég héldi því fram að okkur hefði tekist 100% að fara eftir þessu – en markmiðið var ekki alveg að halda þessu 100% heldur meira svona tja…. 90%  og það gerum við örugglega og vel það. Það er svo merkilegt að þegar maður setur sér markmið sem eru raunsæ, mælanlegt og tímasett þá verður svo miklu einfaldara að vinna að þeim. Þetta á bæði við um markmið sem snúa að einkalífi, námi og vinnu. Markmiðin þurfa ekkert endilega að vera mjög háleit og flókin, það er líka gaman að setja sér einföld markmið sem snúa að því að njóta lífsins í amstri dagsins – markmið sem miða að því að búa til ógleymanlegar stundir með fólkinu sem manni þykir vænst um. Jeminn eini nú er ég að verða væmin og komin langt frá þessum dásemdarrétti sem eldaður var í Vatnsholtinu í gærkvöldi – það hefur lengi staðið til að búa til nýjan Risotto rétt – hugmyndin af þessum er komin frá River Cottage – en ekki hvað, dvölin þar var meðal þeirra markmiða sem ég skrifaði niður á fyrsta degi þessa árs. Uppskriftirnar verða tvær í dag – önnur af tómatmaukinu dásamlega sem notað er í réttinn – hin af risotto-réttinum góða.

IMG_8784Uppskrift 

  • smjörklípa u.þ.b. 30 gr.
  • 1 msk. olífuolía
  • 2-3 shallot laukar eða 1 matlaukur, smátt saxaðir
  • 1 hvítlauksgeiri, marinn undir hnífsblaði og saxaður mjög smátt
  • 250 gr. arborio hrísgrjón
  • 1 dl. hvítvín
  • 7 dl. grænmetissoð
  • 2,5 dl. ofnbakað tómatmauk (sjá uppskrift hér)
  • 1 mozzarella-ostur (120 gr.), skorinn í bita um það vil 1-1,5 cm
  • 1 dl. rifinn parmesan ostur
  • salt og pipar
  • nokkur blöð fersk basilika

Bræðið smjör og olíu á pönnu og látið laukinn krauma við vægan hita í 7 – 10 mínútur eða þar til hann verður glær. Gætið þess að laukurinn brúnist ekki. Bætið þá hvítlauknum út á pönnuna og hærið síðan hrísgrjónunum saman við.

Tómat og mozzarella risottoLeyfið grjónunum að hitna vel í gegn eða þar til þau verða nánast glær. Hellið þá hvítvíninu út á pönnuna og hrærið saman við grjónin. Hellið einni ausu af góðu grænmetissoðinu í senn út á grjónin í einu og hrærið vel. Grjónin eiga nánast að kalla á meira soð á milli þess sem þið ausið soðinu yfir þau. Þegar grjónin eru nánast soðin, það er eftir u.þ.b. 17 mín. bætið þá tómatmaukinu saman við og látið malla í nokkrar mínútur. Kryddið með salti og pipar. Bætið ostinum út í blandið vel saman – en ekki hræra of mikið, maður vill aðeins finna fyrir mozzarella-bitunum.

Stráið ferskri gróft saxaðri basiliku yfir réttinn áður en hann er borinn fram.  Berið fram með einföldu grænu sallati, t.d. klettakáli og sherry tómötum.

Risottó með tómatmauki og mozzarella

Birt í Ítalskir réttir, Grænmetirréttir | Merkt , , , , | Færðu inn athugasemd

Ofnbakað tómatmauk

Tómatamauk ofnbakaðÞetta tómatmauk er vel þess virði að hafa aðeins fyrir því – dásamlegt i risottó með mozzarella, svo ekki sé minnst á pizzurnar sem verða vart samar með þessu mauki – nú eða sem grunnur í góða súpu eða hvað annað sem kallar á ómótstæðilegt tómatmauk. Möguleikarnir eru margir og ég er staðráðin í að gera margfalda uppskrift í sumar þegar tómatuppskerutíminn verður í hámarki – það er örugglega frábært að frysta þetta í hæfilegum skömmtum – notagildið er umtalsvert og hollustan ótvíræð.

TómatamaukUppskrift

  • 750 gr. tómatar, blandaðir
  • 3 hvílauksgeirar, marðir undir hnífsblaði og skornir gróft
  • ferskt tímían, nokkrar greinar
  • 1 tsk. olífuolía
  • 1 msk. salt
  • pipar nýmalaður

Hitið ofninn í 180°C.

IMG_8715Setjið tómatana í eldfast mót, skerið þá stærstu í tvennt, en leyfið þeim minni að vera heilum. Bætið söxuðum hvítlauk, fersku tímían og olífuolíu saman við. Kryddið með salti og pipar. Blandið vel saman og setjið í heitann ofninn. Bakað í eina klukkustund.

IMG_8717Kælið tómatana í um það bil 30 mínútur.

IMG_8726Setjið sigti yfir skál, hellið tómötunum í sigtið og merjið þá í gegnum það með sleif.  IMG_8734Hendið hýðinu og því sem eftir verður í sigtinu (í safnhauginn), en setjið fallegt tómatmaukið í flösku eða krukku þar til þið notið það í risotto, á pizzu, súpu eða hvað annað sem ykkur dettur í hug.

Birt í Annað, Pestó, sultur og chutney, Sósur | Merkt , , , , , | 2 athugasemdir

Fjölkorna-brauð

FjölkornabrauðÍ síðasta mánuði lét ég einn af draumum mínum verða að veruleika þegar ég fór á fjögurra daga námskeið á River Cottage HQ.  Ég á vart nægilega sterk lýsingarorð til að lýsa því hve dásamleg dvölin var – alveg frá A-Ö.

River CottageRiver Cottage HQ er í Devon í Suður Bretlandi og er rekið af stjörnukokkinum, hugsjóna- og ástríðumanninum Hugh Farnley og samstarfsfólki hans. Hugh hefur til mjög margra ára verið talsmaður þess að við lítum okkur nær  þegar kemur að matseld – virðum náttúruna, nýtum það sem er okkur næst, gerum kröfur um velferð dýra og göngum mjög langt í því, förum jafnvel í heimsókn til bænda og sjáum hvernig aðbúnaðurinn er.  Hann er að sjálfsögðu talsmaður lífrænnar ræktunar og þess að við kynnum okkur vel uppruna þeirra matvöru sem við erum að kaupa. Þá snúa áherslur á River Cottage ekki síst að því að nýta allt – sóa sem minnstu og námskeiðin taka tillit til allra þessara gilda. Það sem gerði dvölina á River Cottage sérstaklega eftirminnilega er hve samheldinn og góður starfsmannahópurinn er. Þarna starfar ástríðufólk sem elskar það sem þau eru að gera og  miðla því svo vel að unun er dvelja með þeim.  Á hverjum degi var boðið upp á óvænta listauka og alltaf á hárréttu augnabliki – ískalt freyðivín, unnið úr blómum ræktuðum á svæðinu þegar við vorum búin að vera vinna í hita í dágóða stund, eða dásamlegt eplavín þegar orkan var um það bil að detta niður – og nokkur stund í að fyrsti réttur dagsins yrði tilbúinn.  Stöðugt var verið að koma okkur á óvart  með litlum og óvæntum hlutum sem við áttum ekki von á og gerðu dvölina enn eftirminnilegri. Þegar ég kvaddi River Cottage var ég bara staðráðin í einu og það er að þangað mun ég fara aftur 🙂

River Cottage BrauðbaksturUppskriftin sem hér birtist er reyndar ekki innblásin frá River Cottage – heldur úr franskri bók sem er í góðu matreiðslubókasafni mínu. Aðferðin sem ég beiti við baksturinn er hins vegar sú sama og ég lærði á námskeiðinu eftirminnilega og árangurinn vel þess virði að deila hér.  Á River Cottage er brauðbakstur ástríða – eins og annað sem þar er gert.

Ég vil þó vara  þá við sem vilja eitthvað fljótlegt og einfalt – þetta er aðferð sem tekur tíma – hún er alls ekki flókin, en svo sannarlega tímafrek. Brauðbakstur á að taka tíma – og því meiri tíma sem hann tekur því betra brauð 🙂

IMG_8620Uppskrift

  • 100 gr. hveiti (prótínríkt brauðhveiti)
  • 100 gr. vatn
  • 1/2 tsk. þurrger

Þetta er svokallaður „starter“ eða upphafið – og gefur brauðinu meiri karakter og dýpra bragð.  Setjið allt í skál og hrærið saman þar til blandan er kekkjalaus. Þekið skálina með plastfilmu eða setjið þétt lok á hana og látið standa á borðinu yfir nótt eða í ískáp í allt að 24-36 klukkustundir.

  • 3,5 dl. vatn
  • 1 tsk. þurrger
  • 1 tsk. hunang
  • 1,5 tsk. salt
  • 350 gr. brauðhveiti (prótínríkt)
  • 100 gr.  heilhveiti
  • 1 msk. hveitiklíð
  • 2 msk. sólblómafræ
  • 2 msk. hörfræ
  • 2 msk. sesamfræ
  • 2 msk. graskersfræ

Blandið vatninu saman við „starterinn“ og hrærið saman með fingrunum eða sleif. Blandið síðan öllu nema fræjunum saman við og hnoðið vel annað hvort með höndunum eða með deigkróknum á hrærivélinni.  Hnoðunartíminn tekur um það bil 5 – 7 mínútur – en þetta stig er mikilvægt til þess að glútenið í hveitinu fái tækifæri til að virkjast. Blandið nú sólblóma-, hör-, sesam og graskersfræjunum saman við og hnoðið áfram í nokkrar mínútur.

fjölkornabrauð-aðferðSetjið deigið í skál (ef þið hafið verið að hnoða það á borðinu), þekið skálina með plastfilmu og látið hefast í 1,5 – 2 klukkustundir við herbergishita – það er á borðinu.

Eftir 1,5 – 2 klukkustundir er gott að teygja deigið og brjóta það saman nokkrum sinnum með hvíld inn á milli – þá er deigið ekki hnoðað aftur – heldur er með þessari aðferð leitast við að halda loftinu sem hefur myndast á hefunartímanum og bæta aðeins við virkni glútensins með því að teygja það og brjóta – brauðið verður með þessu móti aðeins loftmeira og heldur lögun sinni betur.

Deigið er haft í skálinni eða á borðinu – gott er að bleyta hendurnar áður en unnið er með deigið því þá festist það síður við hendurnar.  Teygið það í áttina frá ykkur, brjótið það í átt að miðju og snúið skálinni/deiginu í fjórðungshring og framkvæmið aftur – fjórum sinnum.  Látið deigið hvíla í 20-40 mínútur og framkvæmið aftur, allt að fjórum sinnum.  Já ég veit – þetta er ekki fljótvirkasta aðferðinni og ekki til þess fallinn að skella bara í brauð og henda í ofninn – en skemmtilegt og gott brauð verðlaunar þig vonandi  🙂

fjölkornabrauðMótið nú brauðið – hér nota ég brauðkörfu til að láta það hefast í, en það má líka nota skál og setja í hana hreint, hveitistráð viskustykki.  Látið deigið hefast í körfunni í 1,5 klst. Á þessu stigi má líka setja deigið í körfunni inn í ískáp og leyfa því að hefast þar yfir nótt, taka síðan út og leyfa því að standa við herbergishita í 1 klukkustund áður en það er bakað.

Þegar um það bil 15 mínútur eru eftir af hefunartímanum er tímabært að hita ofninn og pottinn sem baka á brauðið í.  Hitið ofninn i 230°C og hafið pottinn inn í ofninnn á meðan hann er að hitna.

Færið brauðið varlega úr körfunni og í pottinn – skerið nokkrar raufar grunnt í brauðdeigið  með beittum hníf.  Setjið lok á pottinn og inn í ofninn.  Bakið í lokuðum pottinum í 25 mínútur.

Takið þá lokið af pottinum, lækkið hitann í 200°C og bakið áfram í 15-20 mínútur.

IMG_8652Kælið brauðið áður en þið sneiðið það. Njótið 🙂 og munið að nota allt brauðið – ef þið eigið smá afgang sem ykkur finnst orðinn oF gamall til að njóta – þurrkið hann, raspið niður og notið sem brauðrasp.

Birt í Bakstur, Brauð | Merkt , , , , , | 5 athugasemdir

Berjaþeytingur

BerjaþeytingurÞað er bæði fljótlegt og einfalt að útbúa góðan morgunþeyting (boost, smoothie) sem er stútfullur af næringu og endist manni vel inn í daginn. Ekki er verra að blanda svolitlum kærleika og jafnvel ást út í drykkinn um leið og honum er hellt í glösin.  Elsku táningurinn minn er að læra fyrir menntaskólapróf og það reynir stundum á.  Þá er gott að hefja daginn með hollum og góðum morgundrykk, smá knúsi og helling af kærleika og ást.

Hraefni berjaþeytingurUppskrift

  • 1 dl. bláber  (frosin)
  • 1 dl. hindber (frosin)
  • 1 dl. mangó (frosin)
  • 1 banani
  • 2 döðlur
  • 4 msk. hafrar
  • 2 tsk. möndlusmjör
  • 1 bolli kalt vatn
  • 1 tsk. hamfræ ofan á hvert glas

Setjið allt í blandarann og blandið vel saman. Ef til vill þarf að setja meiri vökva. Hellið í falleg glös og njótið. Ég set ég eina tsk. af hampfræjum ofan á hvert glas – það er bæði smart og gott.  Ég kann betur að meta hnetukeiminn sem er af hampfræjunum,þegar þau eru heil og sett í drykkinn eftir að honum hefur verið helt í glösin.  Hampfræin eru, eins og ég hef áður sagt frá, ákaflega næringarrík, innihalda meðal annars mjög hátt hlutfall próteina og eru stútfull af omega 3 og 6 fitusýrur – góðar fyrir heilastarfssemina, húðina og hárið 🙂

Berjaþeytingur2

Birt í Árdegisverður (Brunch), Drykkir, Morgunmatur | Merkt , , , , , , , | Færðu inn athugasemd