Marokkóskt lamba-tagine með möndlum, sveskjum og aprikósum

Marokkóskt lambHægeldað lambakjöt á vel við um helgar – þegar maður hefur betri tíma til að fást við matargerðina. Þessi réttur er einn þekktasti lambakjötsréttur Marokkó – bragðmikill en mildur, ilmandi af kanil, engifer og kóríander, ákaflega ljúfengur, svolítið sætur og safaríkur. Þurrkuðu ávextirnir, appelsínubörkurinn og hunangið í bland við milt en bragðmikið kryddið ljá þessum rétt einhverja galdra – dásemdar matargaldra. Í Marokkó er rétturinn yfirleitt borinn fram með marokkóskum brauðhleif og brauðið notað til að ná upp ljúffengri sósunni og hreinsa diskana eða ílátin sem rétturinn er borinn fram í. Það má líka bera réttinn fram með hefðbundnu cous cous eins og við gerum hér.

Hráefni marokkóskt lambUppskrift 

  • 1-2 msk olífuolía
  • 2 msk möndlur án hýðis
  • 1 rauðlaukur, skorinn smátt
  • 2-3 hvítlauksgeirar, kramdir undir hnífsblaði og skornir smátt
  • 2-3 cm engifer – afhýtt og raspað
  • 2 tsk kóríander fræ – steytt í mortéli
  • nokkrir saffran þræðir
  • 1 kanilstöng
  • 700 gr. lambakjöt á beini, t.d. framhryggjarbitar
  • u.þ.b. 1 bolli vatn
  • 10-12 sveskjur
  • 5-7 aprikósur þurrkaðar
  • 1 msk. appelsínubörkur
  • 1 tsk. hunang
  • salt og fersk malaður pipar
  • handfylli af fersku kóríander

 

marokkóskt lambHitið olíu í marokkóskri tagínu eða góðum potti – steikið möndlurnar í heitri olíunni þar til þær eru gullinbrúnar.  Lækkið hitann og bætið lauknum út í, látið svitna við vægan hita í 5-7 mínútur.  Bætið þá hvítlauk, engifer, kóríander, saffran og kanil út í pottinn og blandið vel saman.  Bætið því næst kjötinu út í krydd- og laukblönduna, steikið kjötið vel á öllum hliðum þar til það hefur tekið lit og kryddmaukið þekur bitana vel.  Hellið vatni út á pönnuna/tagínuna þannig að rétt fljóti yfir kjötið.  Lokið með þéttu loki og látið malla við hægan hita í 1 klukkustund.

Bætið sveskjum, aprikósum, hunangi og appelísnuberki út á pönnuna eftir klukkustundar-suðu, kryddið með salti og nýmöluðum pipar. Látið malla áfram í 20 – 30 mínutur.

Smakkið til með salti og pipar og gætið þess að nægur vökvi sé til staðar, ef þörf er á, bætið þið svolitlu vatni út í og látið suðuna koma upp aftur.

Stráið fersku, gróft skrornu kóríander yfir réttinn og berið fram með marrokóskum brauðhleif og/eða cous cous.

Marokkóskt lamb

Birt í Kjötréttir, Miðausturlenskir réttir | Merkt , , , , , , , , , , , , , , | Færðu inn athugasemd

Limoncello

IMG_7572 Er ekki viðeigandi að setja inn uppskrift sem minnir okkur  á sumarið og sólina á þessum vindasama og kalda sunnudegi?  Stormviðvaranir hafa hljómað í útvarpinu í allan dag og það er vart hundi út sigandi.  Enn einn dagurinn sem veðrið minnir okkur hressilega á að við búum á Íslandi en ekki á Sikiley, þaðan sem hluti af hráefninu í þessari uppskrift kemur.

Limoncello er ítalskur sítrónu-líkjör sem er aðallega framleiddur á suður-Ítalíu og er sagður vera annar vinsælasti líkjörinn þar á landi. Líkjörinn er borinn fram ískaldur – yfirleitt beint úr frysti og er ýmist boðið upp á hann fyrir eða eftir mat. Líkjörinn er líka vinsæll í ýmsa kokteila sem eru ákaflega heitir núna á Íslandi. Bestur finnst mér heimagerður Limoncello – en með því að útbúa hann sjálf getur maður stjórnað því hversu sætur hann er.  Ég hef útbúið limoncello að minnsta kosti sex sinnum og náð að mastera líkjörinn sem að mínum mati er nú hæfilega sætur, ekki rammur og frýs ekki þegar hann er geymdur í frysti.  Sumsé alveg að mínum smekk – hæfilega sætur, fallega gulur og dásamlega góður. Ef til vill vilja einhverjir hafa líkjörinn sætari, fyrir þá er einfalt að bæta meiri sykri út í sírópið þegar þið útbúið það.

Það er mjög einfalt að útbúa Limoncello heima – tekur a.m.k. vikutíma og galdrarnir eins og ávallt – gott hráefni.
SJÁ UPPSKRIFT

Birt í Drykkir | Merkt , , , , , | 2 athugasemdir

Reyk-ýsu-plokkfiskur

Reyk-ýsuöplokkfiskurGóður plokkfiskur er herramannsmatur og vel til þess fallinn að matbúa og bera fram á ýmsa vegu.  Ég útbý gjarnan góðan plokkfisk þegar ég fæ erlenda gesti í heimsókn og viðbrögðin eru alltaf mjög góð.  Þessi mjög svo íslenski hversdagsréttur er tilvalið að bera fram í veislum, t.d. sem smárétt, forrétt, já eða aðalrétt – því plokkfisk er einfalt að setja í hátíðarbúning svo sem með því að gratinera hann.  Galdurinn er eins og ávallt ferskt og gott hráefni. Ég mun á næstunni ljúka vinnslu á hefðbundnum plokkfisk en núna er það plokkari sem gerður eru úr reyktri ýsu. Hugmyndin kemur upphaflega úr matreiðslubók sem gefin var út af kokkalandsliðinu árið 2010 og heitir Einfalt með kokkalandsliðinu.
SJÁ UPPSKRIFT

Birt í Fiskur og sjávarfang, Smáréttir | Merkt , , | Færðu inn athugasemd

Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla

TínaMikið er gott að taka á móti árinu 2015 sem verður sérstaklega spennandi ár hjá Vatnsholtsgenginu. Við byrjuðum árið á því að setjast saman yfir góðum morgunverði með blað og penna í hönd og skrifa niður annars vegar fjölskyldumarkmið og hins vegar einstaklingsmarkmið. Þetta var í fyrsta skiptið sem við gerðum þetta á þennan hátt  og við skemmtum okkur öll mjög vel – enda bæði skemmtileg og gefandi stund. Eina reglan í þessari vinnu var að það var bannað að segja NEI – það mátti alveg ræða og rökræða markmiðin en ekki segja NEI. Næst á dagskrá er að setja markmiðin okkar upp á skemmtilegan hátt þannig að við getum betur fylgt þeim eftir og fylgst með framvindu þeirra. Meðal markmiða fjölskyldunnar á árinu er að elda og borða oftar úti í guðsgrænni náttúrunni, fara í fjöruferð og grilla, tína krækling og elda og ganga Fimmvörðuháls svo dæmi séu nefnd.

Sjálf stend ég líka á tímamótum á þessu ári – mun fylla nýjan tug og er staðráðin í að láta gamla drauma rætast um leið og ég hlakka óendanlega til að takast á við nýtt hlutverk og nýjar áskoranir.  Þá er ég staðráðin í að knúsa fólkið mitt oftar, hlægja meira, elska heitar og njóta líðandi stundar betur.

Á þessum tímamótum velti ég því líka fyrir mér hvort ég eigi að halda þessu bloggi áfram – er ekki alveg viss… þetta er mjög skemmtilegt og ýtir mér svo sannarlega út fyrir þægindarammann sem er bæði hollt og gott – en ég er líka svolítið feimin, roðna ennþá þegar talað er um þetta í návist minni, roðna enn meira þegar fólk talar um mig sem  matargúru – það er svo langt, langt frá upplifun minni. Ég man jú fyrst eftir mér 5 ára við eldavélina að matbúa fyrir mig og bróður minn sem þá var 4 ára. Ég réð mig í sveit 12 ára þar sem ég eldaði fyrir 7-8 manna fjölskyldu í heilt sumar og næstu sumur var ég alltaf í sveit þar sem eldhúsið var yfirleitt mitt.  Þá vann ég upp á fjöllum að elda fyrir erlenda ferðamenn í nokkur sumur við frumstæðar en mjög skemmtilegar aðstæður í 12 – 19 daga fjallaferðum á vegum Ferðaskrifstofu Úlfars Jacobsen.  En matargúru – nei það er ég ekki – bara áhugamanneskja sem tók áskorun táningsdóttur um að byrja að blogga  🙂  En ég ætla að gefa mér tíma til að ákveða framhaldið hér – þangað til er hér listi yfir fimm vinsælustu uppskriftir síðasta árs.
SJÁ LISTA

Birt í Annað, Vinsælar uppskriftir | 4 athugasemdir

Waldorf-salat

Waldorf salatWaldorf salatið er ómissandi um jólin.  Á mínu heimili er salatið yfirleitt kallað eplasalat  eða bara jólasalat – en Waldorf salat er töluvert virðulegra heiti þegar kemur að því að setja það á jafn fínan miðil og alnetið 🙂   Salatið er gott með villibráð, svínasteik og kalkún. Á aðfangadag eru alltaf eldaðir tvær steikur hjá Vatnsholtsgenginu – annars vegar fyllt gæs og hins vegar hinn hefðbundni hamborgarhryggur – það þurfa jú allir að fá það sem þeim þykir allra best að borða þetta kvöld.
SJÁ UPPSKRIFT

Birt í Jól, Meðlæti | Merkt , , , , | Færðu inn athugasemd

Eplaskúffukaka

EplaskuffukakaSíðasti sunnudagur ársins er runninn upp og um leið síðasti sunnudags-árdegisverður þessa árs, sem í þetta sinn var notið með kærum gestum sem allt of langt er síðan við höfum fengið í heimsókn til okkar. Nýtt ár er handan við hornið og framundan margir sunndags-árdegisverðir með góðu fólki. Ég hlakka ósegjanlega til ársins 2015 – það verður gott að kveðja árið 2014, taka góðar minningar með sér inn í nýtt ár og skilja annað eftir á stórum bálkesti á gamlárskvöld. Komandi ár verður ár tímamóta hjá Vatnsholtsgenginu. Sjálf mun ég fylla nýjan tug, táningurinn okkar hyggur á ársdvöl erlendis og fleira skemmtilegt er framundan sem vert er að hlakka til. Við munum án efa bjóða oft til árdegis og/eða kvöldverða. Vonandi gefast fleiri tækifæri til að njóta þeirra út í garði næsta sumar en það síðasta, sem var helst til vott hér sunnanlands í það minnsta gáfust mjög fá tækifæri til að dúka upp borð út í garði sumarið 2014. Ég hef mótað nokkur markmið fyrir árið 2015 í kollinum og er staðráðin í að gefa mér tíma til að skrifa þau niður. Flest þeirra snúa að því að njóta. Njóta samvista við fjölskyldu og vini, njóta útiveru, eldamennsku, ferðalaga, rækta garðinn minn og landið mitt, vera opin fyrir nýjum tækifærum og grípa þau fagnandi þegar þau blasa við mér, ganga á fjöll, veiða, sofa undir berum himni og muna að njóta líðandi stundar.  Árið mun einkennast af nýrri reynslu, dirfsku, þori, jákvæðni, húmor, kærleik og umfram allt hamingju – já árið framundan verður gott og ég hlakka til þess.

En að uppskrift dagsins – eplaskúffukaka sem var á árdegisverðarboðinu þennan fallega og síðasta sunnudag ársins.
SJÁ UPPSKRIFT

Birt í Árdegisverður (Brunch), Bakstur | Merkt , , , , , | Færðu inn athugasemd

Hindberjatoppar

HindberjatopparSmákökubakstur er ómissandi hluti af aðventunni hjá okkur – yfirleitt bökum við 5 – 8 sortir og ekkert endilega alltaf þær sömu. Það er svo gaman að eiga heimabakað góðgæti að bjóða fjölskyldu, vinum og vinnufélögum á aðventu. Þessi uppskrift hefur fylgt okkur lengi og er ein af uppáhalds hjá táningnum. Sú var glöð þegar móðir hennar sló í þessar kökur í miðjum próflestri – hvað er ljúfara en að fá nýbakað góðgæti þegar maður tekur smá pásu frá skruddunum. En nú eru prófin búin og jólin handan við hornið – ég hlakka svo til 🙂
SJÁ UPPSKRIFT

Birt í Bakstur, Jól, Smákökur | Færðu inn athugasemd

Ris a l’amande

Ris a l'amandRis a l’amande er ómissandi á jólum – nafnið er franskt og þýðir einfaldlega hrísgrjón með möndlum. Rétturinn er hins vega hingað kominn frá Danmörku þar sem hann hefur verið þekktur í það minnsta í tvær aldir skv. heimildum mínum sem að sjálfsögðu eru fengnar úr  Matarást hennar Nönnu Rögnvaldardóttur.  Uppskriftin sem hér birtist hefur hins vegar þróast hjá okkur síðustu árin og tímabært að beita sig aga, mæla nákvæmlega og skrá hana 🙂  Ris a l’amande er eftirréttur en við höfum þennan rétt í hádeginu á aðfangadag – uppskriftin er frekar stór og því er yfirleitt smávegis afgangur sem gott er að læðast í á jóladag eða annan í jólum.  Að sjálfsögðu setjum við eina heila möndlu í grautinn og sá sem hana fær hlýtur möndlugjöfina sem í okkar fjölskyldu hefur undanfarin a.m.k. 10 ár verið borðspil og/eða viðbætur við borðspilin sem til eru  – við eigum því orðið gott úrval af borðspilum sem gaman er að spila um jólin 🙂
SJÁ UPPSKRIFT

Birt í Eftirréttir, Jól | Merkt , , , , | Færðu inn athugasemd

Hindberjasósa

HindberjasósaSósan sem okkur finnst ómissandi með Ris a l’amande er þessi einfalda og fljótlega hindberjasósa.  Sósan er líka góð með ís og franskri súkkulaðisósu.
SJÁ UPPSKRIFT

Birt í Eftirréttir, Jól | Merkt , , , , | Ein athugasemd

Hreindýralifrapaté

Hreindýrapaté Það er alltaf tilhlökkun þegar líður að hinum árlega villibráðar-gourmet-degi sem ég hef áður sagt ykkur frá í þessari færslu hér. Þá hittumst við nokkrir góðir vinir og verjum nánast heilum degi í að útbúa ýmislegt góðgæti úr villtu hráefni; gæs, hreindýri, lax og silung. Góður dagur þar sem við gerum villtar tilraunir í bland við velþekkta rétti í frábærum félagsskap sem einkennist af  húmor, endalausum hlátrasköllum en um leið einbeitingu og áræðni – blanda sem maður lifir lengi á. Sjálf er ég ekki enn farin að stunda skotveiðar og nýt því enn góðs af veiðidellu vina minna og bræðra – en svei mér ef það verður ekki eitt af áramótaheitunum fyrir árið 2015 – ég er í það minnsta farin að lesa mig aðeins til um skotveiði 🙂

villibradadagurAð venju heitreyktum við gæsabringur og lax, útbjuggum grafnar gæsabringur, gæsalæraconfit og hreindýrasteik. Í ár heilgrilluðum við líka gæs og gerðum tilraunir með villibráðarpylsur sem enn hanga og á eftir að koma í ljós hvernig til tókst.

Meðal þeirra rétta sem er algerlega ómissandi að útbúa á  þessum degi er gæsalifrapaté og hreindýralifrapaté. Við útbúum alltaf hvorutveggja, setjum í falleg og hentug ílát og eigum sem tækifærisgjafir, nú eða þegar góða gesti ber að garði á aðventunni þá er gaman að galdra fram smárétt með litlum fyrirvara.
SJÁ UPPSKRIFT

Birt í Forréttir, Smáréttir, Villibráð | Merkt , , , | Ein athugasemd