Ég verð alltaf svolítið meir um áramót. Þá er tími til að þakka fyrir það góða, ef til vill er stundum þörf til að syrgja, en fyrst og fremst tími til að horfa fram á veginn og gefa sér tóm til að hlakka til þess sem nýtt ár færir manni. Það er margt sem ég hef að þakka fyrir, dætur mína og eiginmaður, fólkið mitt allt, vinir mínir, starfið mitt og vinnufélagar, oft finnst mér ég vera með lukkulegri konum undir sólinni. Sannfærð um að komandi ár sé ár tækifæranna, er ég staðráðin í að nýta þau bestu, velja vel og eiga óteljanlegar gæðastundir á komandi ári.
En talandi um þakklæti, ég ákvað að taka áskorun yngri dóttur minnar og byrja á þessu matarbloggi um mitt síðasta ár og fyrir það er ég þakklát. Þetta er fyrst og fremst skemmtilegt, öll fjölskyldan tekur þátt í þessu verkefni og meira að segja vinir mínir líka. Fyrstu vikurnar og mánuðina var ég mjög feimin og bannaði dætrum mínum og eiginmanni að segja frá þessu – þetta átti jú bara að vera fyrir okkur. En smátt og smátt hefur feimnin minnkað, þó hún sé nú alls ekki horfin. Fleiri og fleiri lesa og fylgjast með því sem við bardúsum í eldhúsinu okkar, við fáum skemmtilegar athugasemdir og viðbrögð sem sannarlega hvetja mann áfram. Á þessu rúma hálfa ári sem nú er liðið frá því fyrsta færslan var gerð, eru tæplega 80 uppskriftir komnar inn og yfir þúsund manns fylgjast með okkur, en ég roðna nú samt ennþá pínulítið þegar ég er spurð út í þetta áhugamál. Við erum staðráðin í að halda áfram og hafa árið 2014 ár matargjafa með meiru. Á þessum tímamótum er við hæfi að birta vinsælustu uppskriftirnar árið 2013 en þær eru:
SJÁ LISTANN