Þær eru þó nokkrar uppskriftirnar á þessum vef þar sem rabarbarinn kemur við sögu og í dag bætist enn ein í þann ágæta hóp.
En byrjum á upprifjun, hér fyrir neðan er nokkrar af minum uppáhalds rabarbara uppskriftum;

Þessi baka er í algjörum sérflokki. Jarðaber og engifer fara einstaklega vel með rabarbaranum og stökkt lokið er hrein dásemd. Sú rabarbarauppskrift sem ég nota oftast.

Eitt besta rabarbarachutney sem ég hef bragðað, mjög gott með ostum og öllum austurlenskum mat. Þurrkaðar aprikósur, chili, engifer og karrý ásamt rabarbaranum sameinast um að kitla bragðlaukana svo um munar.

Skúffukaka með rabarabara er fullkomin sunnudagskaka á þessum árstíma – uppskriftin er hér

Það er gaman að gera síróp úr rabarbaranum og enn betra þegar jarðaber eru höfð með, hér er hratið einnig nýtt – engin matarsóun á ferð 🙂 Uppskriftina finnið þið hér
En aftur að uppskrift dagsins. Skyr, rjómi og rabarbari – innihaldið verður vart þjóðlegra. Það má baka rabarbarann með góðum fyrirvara, hann geymist í rúma viku í kæliskáp.
Uppskrift
- 500 gr. rabarabari
- 1 appelsína, safi og fínt rifinn börkurinn
- 4-8 msk. gott hunang
- 1 stór dós vanilluskyr (500 gr.)
- 1 peli rjómi (2,5 dl.)
Skerið rabarbarann í 4-5 cm bita og raðið í eldfast mót. Kreystið safann úr appelsínunni og rífið ysta lagið af berkinum fínt og dreifið jafnt yfir rabarbarann. Dreipið hunanginu yfir og bakið í 150 C í 45 – 50 mínútur. Kælið.
Hrærið skyrið vel, þeytið rjómann og blandið skyri og rjóma vel saman.
Setjið rjómaskyrblönduna og rabarabara í nokkrum lögum í falleg glös, skreytið með ferskum fjólum eða öðrum ætum blómum og berið fram. Einfaldur, þjóðlegur, fallegur en umfram allt dásamlega góður eftiréttur.

Bakstur þessara helgar er gerður í flýti heima hjá Vatnsholtsgenginu sem ætlar að bruna í gamla kotið sem í gær var loks flutt á sinn rétta stað. Ársundirbúningi lauk þar með og við tekur vinna við að gera þetta litla, gamla og fremur ljóta hús að nokkurs konar sumarhöll. Fyrir nokkrum árum áskotnaðist okkur nefninlega dágóður landskiki í einstaklega fallegu landi mjög góðra vinahjóna okkar og fyrir ári síðan keyptum við gamalt sumarhús til flutnings. Við tók vinna við vegagerð, vatnsleit, uppteypu á grunni undir húsið og fleira skemmtilegt og hefur sú vinna tekið rétt tæpt ár. í gær var húsið loks flutt á sinn stað af slíkum fagmönnum að ég efaðist ekki eitt augnablik um að þetta myndi takast en aðstæður voru um tíma bæði erfiðar og tvísýnar. Áræðni, fagmennska og mikill vilji allra sem að komu gerðu það að verkum að húsið hvílir nú á þessum líka fallega stað og Vatnsholtsgengið getur vart beðið eftir fyrstu gestunum. Þess vegna bakaði ég þessa nýju útgáfu af sítrónuköku til að taka með okkur. Hugmyndin er frá hinni hollensku Yvette Van Boven sem ég hef nokkrum sinnum áður minst á – hún gefur út snilldarbækur og átti um tíma einn besta veitingastaðinn í Amsterdam – pínulítill staður með hreint afbragðsmat, sem því miður er búið að loka. En Yvette heldur áfram að elda og er víst orðin einn þekktasti sjónvarpskokkur hollendinga auk þess að skrifa bækur og greinar sem birtar eru um víða veröld.
Uppskrift
Kakan er bökuð í 22 cm smelluformi, gott er að setja bökunarpappír í botn þess og smyrja hliðarnar vel með smjöri.
Bætið vanilludropum, fínt rifnum sítrónuberki og sítrónusafa ásamt birkifræjum saman við blönduna og hrærið vel saman.
Stífþeytið eggjahvíturnar með örlitlu salti og blandið varlega saman þannið að deigð verði loftimikið og létt.
Í morgun vöknuðum við upp við hvíta jörð, hitastig við frostmark og ansi hressilegt rok barði rúðurnar. Það er fyrsti dagur sumars samkvæmt dagatalinu og það ku víst vita á gott ef vetur og sumar frýs saman, því ætla ég að trúa. Við fögnuðum þessum fyrsta degi sumars með ansi sumarlegum rétti – dásamlegur kjúklingur, kryddaður með sítrónu, fersku sítrónutímían, smjöri, hvítlauk og hráskinku og munum án nokkurs vafa elda þennan rétt aftur áður en sumarið er allt. Þessi réttur var oft á borðum hjá okkur fyrir margt löngu en ég hef ekki eldað hann í nokkur ár held ég svei mér þá. Hugmyndin er frá vini okkar Jamie Oliver, úr einni af fyrstu bókum hans. Sú bók er ansi snjáð og lúin í matreiðslu-bókahillunni minni – var mikið notuð áður fyrr en bæst hefur hressilega í safnið á síðustu árum svo þessi ágæta bók hefur lítið verið brúkuð um nokkurt skeið. Uppskriftin hefur að sjálfsögðu þróast og breyst í meðförum mínum á umliðnum árum og er alveg hreint dásamleg eins og áður hefur komið fram.
Uppskrift (fyrir 4-5)
Skerið hráskinkuna í smáa bita, rífið börkinn af sítrónunni með rifjárni, bara gula hlutann. Blandið saman við smjörið, ásamt fínt söxuðu sítrónu-timían og pressuðum hvítlauk. Kryddið með salti og pipar og hrærið smjörblönduna vel saman.
Troðið blöndunni undir haminn og strjúkið þannig að hún dreifist nokkuð jafnt og þeki nánast allan kjúklinginn. Skiljið ca. 1 msk. eftir af smjörblöndunni, hrærið olífuolíu saman við og nuddið kjúklinginn með olífuolíublöndunni, kryddið með pipar og salti. Skerið sítrónuna í tvennt og setjið hana inn í kjúklinginn.
Takið kjúklinginn úr ofninum. Smjörið er nú bráðið og hefur blandast hvítvíninu. Lyftið kjúklingnum upp, setjið kartöflurnar í fatið og veltið þeim upp úr hvítvínssmjörinu. Setjið kjúklinginn aftur ofan á kartöflurnar og steikið í ofninum í 40 – 50 mínútur. Soðið sem myndast í fatinu er góð sósa og í raun þarf lítið að gera við það annað en að setja það í sósuskál og bera fram með, nema fyrir allra harðasta sósufólk, þá má sjóða það aðeins niður, bæta smá hvítvíni út í og þykkja með sósujafnara ef þið viljið.
Ítalskur og eins og svo margt sem þaðan kemur er þessi eftirréttur hreint dásamlegur – raunar einn af mínum uppáhalds. Það var raunar töluvert langt síðan ég útbjó þennan eftirrétt þegar ég fann í tiltekt uppskriftina á gömlum, snjáðum og kámugum pappírsbleðli. Ég ákvað samstundis að þörf væri á að rifja þessi gömlu kynni upp og var raunar aðeins nerfus um hvort rétturinn stæði undir væntingum. Það voru svo sannarlega óþarfa áhyggjur, minningar mínar um bragðgæðin voru alveg réttar. Ég ákvað því að koma uppskriftinni hér inn og henda þessum skítuga, íllafarna pappírsbleðli um leið – nú verður auðveldara fyrir fölskylduna að nálgast uppskriftina. Verði ykkur að góðu 🙂
Þeytið eggjarauður og sykur saman. Bætið mascarpone ostinum út í eggjablönduna og þeytið vel saman. Stífþeytið eggjahvíturnar og blandið þeim varlega saman við ostablönduna þannig að blandan verði létt og loftmikil.
Dýfið ítölsku fingurkökunum í kaffiblönduna og raðið í botninn á fallegu fati eða skál. Setjið 1/3 – 1/2 af ostablöndunni ofan á – það fer eftir því hve stórt fatið er hvort þið náði 2 eða 3 lögum, en þið raðið til skiptis kökum og ostablöndu.
Lamb sem kryddað er með velristuðu og steyttu broddkúmeni og kóríander ilmar ekki bara dásamlega heldur er einnig hreint afbragð. Í kvöld smellti ég heilum framhrygg í pottofn, smurði með smjöri, kryddaði vel og leyfði honum síðan að malla á meðan ég skellti í eina þvottavél og lauk við skattskýrsluna. Talandi um skattskýrslur, magnað hvað það er orðið einfalt og fljótlegt fyrir allt venjulegt launafólk að skila þeim. Ég gleymdi mér reyndar, fékk frest og skilaði samt aðeins of seint – var svo upptekin við að njóta þess að vera til, vona að Hr. Skúli yfirskattamann taki við afsökunarbeiðni minni hér og nú!
Uppskrift (f. 4)
Nuddið kryddblöndunni og pressuðum hvítlauknum vel yfir kjötið.
Vá hvað það er þakklátt að sjá sólina á þessum fallega sunnudegi. Reyndar kann ég vel að meta skammdegið, finnst dásamlegt að kveikja á nokkrum kertum um leið og ég kem heim úr vinnunni, sem undanfarnar vikur og mánuði hefur verið frekar seint á daginn. Hver árstíð hefur sinn sjarma og alltaf þegar ný árstíð fer að gera vart við sig hlakka ég óendanlega til, sannfærð um að einmitt þessi tími ársins sé minn uppáhalds. Nú er það vorið sem er um það bil handan við hornið og vá hvað það er þakklátt. Ég er búin að fara yfir fræsafnið mitt og ætla í dag að útbúa lista yfir fræin sem vantar. Hef um leið lofað sjálfri mér að hafa þetta einfalt í ár, rækta sjálf örfáar tegundir að kryddi og salati, en kaupa aðrar plöntur forræktaðar 🙂 Vonandi tekst mér að standa við það.
Hrærið olíu og sykur vel saman. Bætið eggjunum út í, einu í senn og hrærið saman þar til blandan fer að líkjast majónesi.

Setjið hvítlauksgeira, rjómaost, niðursoðna tómata, tómatpúrru og hluta af nautasoðinu í blandara og maukið vel saman. Hellið maukinu og afgangnum af soðinu yfir kjötið og grænmetið. Setjið þétt lok á potinn og bakið í ofni við 180°C í 2 til 2,5 klst.
Já já – Gleðilegt árið kæru vinir og velunnarar þessarar síðu. Það hefur verið fremur rólegt á þessum miðli, raunar svo rólegt að stundum roðna ég við tilhugsunina. Það eru margar færslur á vinnslustigi, sem stefnt er að ljúka á næstu dögum og vikum. En hér er ein góð brauðbollu-uppskrift sem Vatnholtsgengið naut þess að snæða sl. sunnudag með dásamlegri gúllassúpu, sem ég er að vinna að færslu um. Bollur þessar eru ákaflega bragðgóðar og passa vel með góðum súpum eða pottréttum, nú eða bara á morgunverðar- og árdegisverðarborðið með góðu áleggi.
Uppskrift
Leyfið deiginu að lyfta sér í a.m.k. klukkustund eða þar til það hefur tvöfaldað stærð sína. Best er að hafa deigið á fremur heitum stað (t.d. með því að setja skálina yfir ílát með heitu vatni í, en gætið þess að skálin standi ekki ofan í vatninu).




Fljótlegur, fallegur og firnagóður fiskréttur með indverskum blæ. Bragðmikill og ákaflega góður á dimmu desemberkvöldi. Það er þakklátt að uppgötva svona rétti – tala nú ekki um á aðventunni þegar fiskneysla er ef til vill minni en á öðrum árstímum. Á vafri mínu um ansi velskipað matreiðslubókasafn mitt datt ég niður á uppskrift líka þessari hjá vini mínum Hugh Farnley-Whittingstall, breytti henni og stílfærði að smekk og takt við það sem til var í skúffum og skápum. Unglingurinn sem þreytir menntaskóla-jólapróf umlaði af ánægju, betri meðmæli eru vandfundin.
Uppskrift
Bætið rifnu engifer, hvítlauk og karrý út í og hrærið vel saman. Bætið þá tómatpúrru, kókosmjólk og hunangi út í, hærið saman. Kryddið með salti og pipar og látið malla við vægan hita í 10 mínútur.