Leit
-
Nýlegar færslur
- Basil pestó – þetta hefðbundna ítalska
- Silungur pakkaður í hráskinku borin fram með bygotto
- Lambaleggir í hægum takti
- Kalkúnabringa „Sous Vide“
- Sæt kartöflumús með sveppum
- Grænmetislasagne
- Bláberjakaka með möndlum, kókos og sítrónu
- Rósmarín kjúklingaspjót með einfaldri kaldri sósu
- Perlubygg með grilluðu grænmeti
Sarpur
Uppskriftir
Tækni
Author Archives: Berglindol
Opin samloka með spínat, tómötum, skinku og hleyptu eggi
Ég hef aldrei verið snillingur í að gera hleypt egg og á nokkrar misheppnaðar tilraunir að baki. Eftir að hafa horft á þetta myndband hjá vini mínum Jamie Oliver hef ég komist að því að þetta eru engir galdrar aðrir en … Lesa meira
Rauðrófusalat með heitreyktum makríl
Annasamir dagar kalla á léttan og fljótlegan kvöldverð. Í kvöld sagði þreytan, já og letin aðeins til sín. Ég nennti ómögulega að hafa mikið fyrir matarstússi og það þrátt fyrir að það sé laugardagskvöld. Um tíma var ég meira að … Lesa meira
Haustsúpa með sætum kartöflum og gulrótum
Haustið er svolítill uppáhaldstími hjá mér – sjálf á ég afmæli í lok ágúst og yngri dóttir mín í byrjun september. Uppskerutíminn nær hámarki, ber, sveppir, nýjar kartöflur, gulrætur og allt gómsæta rótargrænmetið að ógleymdum kertaljósunum sem aftur fá að njóta … Lesa meira
Súkkulaði- og kókos formkaka
Það er ákaflega viðeigandi á sunnudögum að skella í eina formköku og kalla fjölskyldu og vini í kaffi. Þegar ég las uppskrift af köku svipaða þessari á vefnum hjá Bon Appetit fyrir nokkru var ég staðráðin í að þessa þyrfti ég … Lesa meira
Súkkulaðimús með hindberjum
Fyrir nokkrum árum gaf vinkona mín mér pínulítinn afleggjara af hindberjaplöntu sem ég kom fyrir í garðinum mínum. Þessi litli afleggjari hefur aldeilis dafnað og er orðin að hinum myndarlegasta runna sem þeytist um beðið mitt. Uppskeran í ár er sú … Lesa meira
Kjúklingur með spænsku ívafi – Chorizo pylsu og nýjum kartöflum
Loksins, loksins getum við valið um að kaupa og neyta kjúklinga sem fá óerfðabreytt fóður og aðbúnað sem maður þarf ekki að skammast sín fyrir – afurð sem framleidd er á vistvænan hátt og hugað að velferð dýranna. Í vikulegri … Lesa meira
Grillaður maís
Grillaður ferskur maís er eitt það besta sem unglingurinn minn fær og því fagnað mjög þegar ferskur maís fæst í verslunum eins og nú. Hún kynntist fyrst þessum rétti þegar við dvöldum í Seattle sumarið 2008 – þá var þetta einn … Lesa meira
Franskar kókos Magdalenukökur (Madeleines)
Franskar Magdalenukökur (Madeleines) eru litlar skeljalaga kökur – bakaðar í frönskum skeljalaga-formum. Uppistaðan í kökunum eru egg, sykur, brætt smjör og hveiti – deigið er síðan bragðbætt með ýmsu móti, oftast með sítrónusafa eða sítrónuberki. En í þessum er kókos en … Lesa meira
Grillaðar fylltar paprikur
Það er eitt sem ég þarf að læra og það er að setja sjálfri mér raunhæf markmið – ég á það til að ætla að ljúka milljónogþremur hlutum helst fyrir hádegi og það á hverjum degi. Ég spyr mig oft … Lesa meira
Birt í Forréttir, Grænmetirréttir, Grillréttir, Meðlæti
Merkt einfalt, einfalt meðlæti, ferskt pestó, grillað meðlæti, grillaðar fylltar paprikur, Grillaðar paprikur, grillaður forréttur, grillaður smáréttur, Kirsuberja-tómatar, Mozzarella, Mozzarellaostur, Paprika;, steiktir tómatar, tómatar
Færðu inn athugasemd