Ég hef aldrei verið snillingur í að gera hleypt egg og á nokkrar misheppnaðar tilraunir að baki. Eftir að hafa horft á þetta myndband hjá vini mínum Jamie Oliver hef ég komist að því að þetta eru engir galdrar aðrir en þeir að vera með ný-orpin egg. Ekkert edik eða aðrir galdrar, bara nýtt og ferskt hráefni, róleg suða á vatni og um það bil 3 mínútur. Með þetta að leiðarljósi útbjó ég dásemdar brauð sem á vel við í hádegi á fallegum sunnudegi. Á sunnudögum er nefninlega gaman að hafa örlítið meira fyrir morgun- og/eða hádegisverðinum og gera tilraunir sem maður gefur sér annars ekki tíma til. Stundum heppnast tilraunirnar svo vel að þær verðskulda færslu – eins og gerðist í dag 🙂 Svo góður var þessi réttur að hann verður án efa endurtekin fljótlega.
SJÁ UPPSKRIFT
Leit
-
Nýlegar færslur
- Basil pestó – þetta hefðbundna ítalska
- Silungur pakkaður í hráskinku borin fram með bygotto
- Lambaleggir í hægum takti
- Kalkúnabringa „Sous Vide“
- Sæt kartöflumús með sveppum
- Grænmetislasagne
- Bláberjakaka með möndlum, kókos og sítrónu
- Rósmarín kjúklingaspjót með einfaldri kaldri sósu
- Perlubygg með grilluðu grænmeti
Sarpur
Uppskriftir
Tækni









