Leit
-
Nýlegar færslur
- Basil pestó – þetta hefðbundna ítalska
- Silungur pakkaður í hráskinku borin fram með bygotto
- Lambaleggir í hægum takti
- Kalkúnabringa „Sous Vide“
- Sæt kartöflumús með sveppum
- Grænmetislasagne
- Bláberjakaka með möndlum, kókos og sítrónu
- Rósmarín kjúklingaspjót með einfaldri kaldri sósu
- Perlubygg með grilluðu grænmeti
Sarpur
Uppskriftir
Tækni
Author Archives: Berglindol
Hráskinkubollar með eggjum og spínati
Síðbúin árdegisverðarboð er ákaflega vinsæl hjá Vatnholtsgenginu og um páskana hefur ekki verið slakað neitt á í þeim efnum – heldur þvert á móti 🙂 Það er fátt skemmtilegra en kalla saman gott fólk, njóta góðs matar, segja sögur, gera … Lesa meira
Baka með ferskum ávöxtum og sítrónurjómakremi
Ég lofaði að setja inn uppskriftin af þessari dásemdar böku fyrir páska. Bakan sem ég hef verið að leika mér að í vetur og er ekki bökuð heldur hrá. Ofan á bökuna set ég einungis ferska ávexti og ber svo … Lesa meira
Birt í Bökur, Eftirréttir
Færðu inn athugasemd
Sítrónusmjör (e.Lemon Curd)
Í fyrsta sinn útbý ég mitt eigið sítrónusmjör og váááá það er gott, fagurgult og dásamlegt. Fram til þessa hef ég keypt breskt og ákaflega gott sítrónusmjör hjá Paul í Pipar og Salt á Klapparstígnum – ég mæli alveg með … Lesa meira
Amerískar pönnukökur með bláberja-hlynsírópi
Vorið lætur aldeilis bíða eftir sér þetta árið…… nokkrum sinnum síðustu vikur hef ég verið sannfærð um að nú sé vorið komið. Þegar allur snjór fer úr garðinum og vorlaukarnir byrja að gægjast upp úr moldinni fyllist ég bjartsýni um vor … Lesa meira
Silungur með fersku kryddjurta- og sítrónusmjöri
Eitt af því sem er svo mikilvægt að muna þegar maður vex frá því að vera barn, unglingur og já ungur, dem….. já ég segi það bara og skrifa – þegar maður er kominn á þann virðulega aldur að vera kallaður miðaldra….. … Lesa meira
Þorskur undir spínat og ricottaþaki
Ferskur fiskur er hráefni sem seint verður ofmetið – með lítilli fyrirhöfn og á skömmum tíma er unnt að hrista fram úr erminni veislumáltíð sem á vel við hvort sem er í miðri viku eða um helgar. Þessi dásemd varð … Lesa meira
Indverskar lambakjötsbollur
Ég veit ekki alveg hvað skal segja um þessar kjötbollur annað en að þær eru hreint afbragð. Hugmyndin er fengin úr eldgamalli indverskri matreiðslubók sem ég á. Það er ekki alltaf einfalt að nálgast lambahakk – en ef þið farið í … Lesa meira
Sítrónukókoskaka
Það fer ekki fram hjá nokkrum sem á annað borð les þetta blogg að sunnudagar eru okkar uppáhaldsdagar. Dagurinn sem við reynum að verja saman, förum gjarnan í göngu, sund eða að hjóla, auk þess að verja dágóðum tíma í … Lesa meira
Birt í Árdegisverður (Brunch), Bakstur, Kökur
Merkt kókos, sítróna, Sítrónukókoskaka
Færðu inn athugasemd
Spínat og mangó þeytingur
Eins og svo margir þá finnst mér mjög gott að fá mér þeyting (e.boozt) á morgnana – það er fljótlegt, einfalt og auðvelt að aðlaga að smekk og aðstæðum hverju sinni. Reyndar finnst mér fjölbreytni í morgunmat mikilvæg svo þeytingurinn … Lesa meira
Mexíkósk tómat- og svartbaunasúpa
Á fyrsta degi ársins 2015 settist Vatnsholts-fjölskyldan niður yfir síðbúnum morgunverði og fór á smá leik Leikurinn snerist um að setja okkur markmið fyrir komandi ár, bæði einstaklings-markmið en líka fjölskyldu-markmið. Eitt af fjölskyldu markmiðunum fyrir árið 2015 er að … Lesa meira