Leit
-
Nýlegar færslur
- Basil pestó – þetta hefðbundna ítalska
- Silungur pakkaður í hráskinku borin fram með bygotto
- Lambaleggir í hægum takti
- Kalkúnabringa „Sous Vide“
- Sæt kartöflumús með sveppum
- Grænmetislasagne
- Bláberjakaka með möndlum, kókos og sítrónu
- Rósmarín kjúklingaspjót með einfaldri kaldri sósu
- Perlubygg með grilluðu grænmeti
Sarpur
Uppskriftir
Tækni
Monthly Archives: maí 2013
Pavlova m/jarðaberjum og esdragon
Eftir að ég eignaðist iPad opnuðust nýjar víddir varðandi áskrift af erlendum tímaritum. Matartímarit á borð við hin amerísku Bon Appetit og Everyday Food og ástralska Donna Hay fæ ég nú send reglulega á viðráðanlegu verði. Þetta auðgar svo sannarlega … Lesa meira
Birt í Bakstur, Eftirréttir, Kökur
Merkt esdragon, fennkia, jarðarber, Pavlova, rjómi
Ein athugasemd
Sítrónu og kryddjurta kjúklingur á teini og couscous með bökuðum tómötum og klettakáli
Couscous er skemmtilegt meðlæti sem passar vel með mörgum réttum, bæði fisk- og kjötréttum. Í kvöld vorum við með grillaðan kjúkling á teini kryddaðan með sítrónu og ferskum kryddjurtum. Meðlætið var enn ein tilraunin með couscous sem í kvöld var … Lesa meira
Birt í Grillréttir, Kjötréttir, Meðlæti
Merkt óreganó, Kjúklingur, sítróna, tímían, tómatar
Færðu inn athugasemd
Fiskisúpa
Fáar súpur toppa góða fiskisúpu. Létt en þó saðsöm og stútfull af hollustu sem börn og fullorðnir kunna vel að meta. Þetta er einföld uppskrift sem gott er að grípa í þegar tíminn er naumur – hráefnalistinn er einungis til viðmiðunar, það gerir lífið … Lesa meira
Birt í Fiskur og sjávarfang, Súpur
Merkt einfalt, fiskisúpa, fiskur, pestóbrauð, súpa
Ein athugasemd
Eplaterta – gamaldags og góð
Upprunalega kemur þessi uppskriftin úr gömlu Gestgjafablaði sem er dottið í sundur og því tímabært að koma henni á annað form. Eins og svo margar uppskriftir sem fylgja manni lengi þá hefur þessi tekið svolitlum breytingum í gegnum tíðina – við … Lesa meira
Chili Con Carne ala Jamie Oliver
Jamie Oliver hefur lengi verið mikill heimilisvinur – við eigum margar af bókunum hans, nokkra CD diska með þáttunum hans og Fifteen er einn af uppáhalds-veitingastöðunum mínum í London. Jamie er ekki bara skemmtilegur kokkur, hann er mikill hugsjónarmaður sem … Lesa meira
Birt í Mexikóskir réttir
Merkt Chili, Chili con carne, Happy Days, Jamie Oliver, nautahakk, nýrnabaunir, tómatar
3 athugasemdir
Músli heimagert
Mikilvægasta máltíð dagsins -morgunverðurinn ætti að vera snar þáttur í matargerð okkar, en flest erum við líklega á hlaupum á morgnanna og gefum okkur ekki mikinn tíma til að huga að fjölbreytni sem er svo skemmtileg. Fjölskyldan er heldur ekki alveg sammála um hvað … Lesa meira
Birt í Árdegisverður (Brunch), Morgunmatur
Merkt döðlur, eplasafi, hafrar, hnetur, hunang, möndlur, Músli, rúsínur, tröllahafrar, trönuber
7 athugasemdir
Gulrótarterta
Loks kom vorið til Íslands og eins og ávallt þá fyllist ég orku, bjartsýni og framkvæmdagleði þegar hitastigið hækkar og sólin lætur sjá sig. Í morgun var hitastigið rétt yfir 10˚ C , rigning og maður nánast horfði á gróðurinn … Lesa meira
Rjómaostur m/sólþurrkuðum tómötum og ólífum
Ómissandi fylgifiskur pestó-gerðar í Vatnsholti er þessi dásamlegi rjómaostur. Einfalt og gott. Líkt og með pestó-ið þá eru hlutföllin ekki heilög og aldrei alveg þau sömu – í þetta sinn var þó talið, mælt og skráð. Um helgar er þetta … Lesa meira
Pestó m/sólþurrkuðum tómötum, basil og ólífum
Það er viðeigandi að fyrsta matarfærslan sé uppáhalds-pestó fjölskyldunnar. Uppskriftin hefur þróast í gegnum árin, en aldrei áður hef ég reynt að mæla það sem fer í hana -þetta var því svolítil áskorun, að mæla og setja allt í litlar … Lesa meira
Byrjunin
Það er ekki laust við að svolítil feimni geri vart við sig þegar við hefjum þetta blogg – best að vekja litla athygli á því fyrst um sinn á meðan við náum tökum á þessu.