Author Archives: Berglindol

Skúffukaka ala mamma

Þessi uppskrift er ein þeirra sem er í gömlu bláu bókinni minni – þeirri sem ég sagði frá hér. Uppskriftina fékk ég frá mömmu og þegar bræður mínir koma í kaffi og/eða árdegisverð þá verða þeir ósköp ánægðir þegar þeir sjá … Lesa meira

Birt í Bakstur | Merkt , , , | 4 athugasemdir

Grillaður aspas með parmesan osti, olífuolíu og sítrónu

Mikið vildi ég að einhver garðyrkjubóndi á Íslandi ræktaði aspas og seldi. Ég veit ekki mikið um aspas-ræktun, en líklega eru skilyrðin hér ekki góð og ef til vill er íllmögulegt að rækta aspas í gróðurhúsum. Það litla sem ég … Lesa meira

Birt í Forréttir, Grænmetirréttir | Merkt , , , , | Ein athugasemd

Sítrónuterta ala Jamie Oliver

Sumardagurinn fyrsti kom aldeilis með sól og fegurð, mikið er vorið kærkomið þetta árið. Ég hlakka svo til sumarsins, hef sáð fyrir kryddjurtum og salati og get varla beðið eftir að komast út í garð að pota þessu öllu niður. … Lesa meira

Birt í Bakstur, Eftirréttir | Merkt , , , , , | Ein athugasemd

Lambalæri marinerað í hvítlauk, rósmarín, tímían og sítrónu

Eins og á mörgum íslenskum heimilum er hefð hjá okkur að borða lamb á páskadag. Yfirleitt höfum við lambalæri og leikum okkur svolítið með útfærsluna í hvert sinn.  Lærið í ár var frekari hefðbundið og allir á einu máli um … Lesa meira

Birt í Kjötréttir | Merkt , , , , , , , | Færðu inn athugasemd

Súkkulaðihnappar

Gott súkkulaði tilheyrir páskum.  Ekki hafa allir smekk fyrir hefðbundnum páskaeggjum og því getur verið gaman að leika sér með súkkulaði sem okkur þykir best og velja með því annað hráefni sem fellur að smekk og aðstæðum hverju sinni. Góðir … Lesa meira

Birt í Annað, Eftirréttir | Merkt , , , , , , | Ein athugasemd

Caeser salat

Það er ekki á hverjum degi sem maður rekst á ferskt og brakandi Romaine salat í búðum, þegar það gerist þá bregst ekki að mig langar óskaplega mikið í Caesar salat. Í vikulegri heimsókn minni til Frú Laugu í gær … Lesa meira

Birt í Salat | Merkt , , , | Færðu inn athugasemd

Humar risotto

Risotto er einn af uppáhalds ítölsku réttunum mínum. Þegar ég smakkaði risotto í fyrsta skipti varð ég mjög hissa og líkaði hreint ekki að borða að því mér fannst grjónagraut með kjúklinga- og sveppabragði. Ég var vön að elda og … Lesa meira

Birt í Ítalskir réttir, Fiskur og sjávarfang | Merkt , , | Ein athugasemd

Vöfflur

Sunnudagar eru fjölskyldudagar og ávalt ljúft og gott að hitta fólkið sitt, fara yfir málefni líðandi stundar, skiptast á sögum, skoðunum, viðburðum og plana komandi daga, vikur og jafnvel mánuði. Eins og svo oft áður var síðbúin árdegisverður í Vatnsholtinu … Lesa meira

Birt í Bakstur | Merkt , | Færðu inn athugasemd

Saltar sítrónur (e.preserved lemons)

Það er einfalt að salta sítrónur og líklega eru þær eins og margt annað langbestar heimagerðar. Margir hafa haft samband við mig og óskað eftir upplýsingum um hvar hægt er að fá saltaðar sítrónur frá því ég setti þessa uppkrift … Lesa meira

Birt í Annað, Miðausturlenskir réttir | Merkt , , , | Færðu inn athugasemd

Sítrónukaka

Sítrónukaka þessi er ómótstæðileg og minnir á að vorið er á næsta leiti.  Allt er bjartara og þrátt fyrir rigninguna og rokið sem einkennir þennan laugardag þá er dagurinn lengri og sólin sést oftar og lengur. Vorjafndægur á næsta leiti … Lesa meira

Birt í Árdegisverður (Brunch), Bakstur | Merkt , , | Færðu inn athugasemd