Author Archives: Berglindol

Ristaðar möndlur með rósmarín, chili og saltflögum

Ristaðar möndlur hafa á síðustu árum orðið ómissandi góðgæti á aðventunni í Vatnsholtinu. Upphaflegu uppskriftina sá ég í Gestgjafanum fyrir nokkrum árum, en hef breytt henni, stækkað og krydda nú mun meira.  Fallegt og gott góðgæti og skemmtileg tækifærisgjöf á … Lesa meira

Birt í Jól | Merkt , , , , , , | 3 athugasemdir

Byggflögu-múslí m/mangótvisti

Í upphafi aðventu er mikilvægt að huga að hollustu. Það má segja að fjölskylda mín sé orðin svolítið háð því að til sé gott, já verulega gott múslí. Þegar við tölum um gott múslí þá meinum við heimagert músli. Eftir … Lesa meira

Birt í Morgunmatur | Merkt , , , , , , | Færðu inn athugasemd

Föstudags-pizza

Föstudagar eru oftast pizzudagar hjá okkur í Vatnsholti. Í mörg ár hefur þessi hefð verið við lýði, með fjölmörgum og sjálfsögðum undantekningum. Föstudags-pizzurnar okkar eru þó undantekningalaust heimagerðar. Unglingurinn er hætt að suða um að panta pizzu eins og „allir … Lesa meira

Birt í Ítalskir réttir | Merkt , , , , , , , , , , , | Færðu inn athugasemd

Fylltar smjördeigsskálar með indversku tvisti

Í matarboði helgarinnar buðum við upp á indverkst þema – nokkrir réttana eiga rætur að rekja til námskeiðsins sem ég fór á hjá Jamie Oliver í haust og sagði frá í síðustu færslu. Einn þeirra rétta sem við elduðum á … Lesa meira

Birt í Forréttir, Indverskir réttir, Smáréttir | Merkt , , , , , , | Færðu inn athugasemd

Indverskt döðlu og tamarind chutney

Í lok september var ég stödd í London, lét gamlan draum rætast og fór á matreiðlsunámskeið hjá Jamie Oliver. Námskeiðið var haldið á nýlegum stað Jamie Oliver – Recipease við Notting Hill Gate. Staðsetningin er mjög góð og stoppar neðanjarðarlestinn … Lesa meira

Birt í Indverskir réttir, Meðlæti, Pestó, sultur og chutney | Merkt , , , , , , , | 3 athugasemdir

Súkkulaði- og rauðrófukaka

Mikið eru helgarnar dásamlegur tími – samvera með fjölskyldu og vinum, göngutúrar, bæjarferðir, sundferðir og síðast en ekki síst matarboð af öllum tegundum.  Árdegisverðarboð, síðdegiskaffiboð, kvöldverðarboð – svei mér ég hef jafn gaman af þeim öllum, svo fremi þau snúist … Lesa meira

Birt í Bakstur, Kökur | Merkt , , , , | Ein athugasemd

Jarðarberjamúffur

Í gærkvöldi hrópaði unglingurinn upp yfir sig að hún yrði að koma með köku á síðasta námskeiðskvöldið sitt hjá Dale Carnegie þar sem hún hefur síðustu 10 vikur verið á frábæru námskeiði fyrir ungt fólk. Hún er sjálf mjög liðtæk … Lesa meira

Birt í Bakstur | Merkt , , , , | Færðu inn athugasemd

Túnfisk-pasta m/sólþurrkuðum tómötum, ólífum og kjúklingabaunum

Léttur, fljótlegur og góður réttur á vel við í kvöld – þegar nánast allir sitja límdir við skjáinn að fylgjast með íslenska landsliðinu í Króatíu. Pasta með túnfisk hljómar ekkert sérlega frumlega hvað þá spennandi.  En þegar við veljum að … Lesa meira

Birt í Ítalskir réttir, Pasta | Merkt , , , , , , , , , , , , | Færðu inn athugasemd

Ofnbakaður karrý-kjúklingur

Það er án efa aðeins meiri fyrirhöfn fólgin í því að gera karrý frá grunni en að kaupa það tilbúið í krukku, en þeir sem til þekkja vita hve miklu betra slíkt karrý er. Sunnudagskvöld og annasamri og ánægjulegri helgi … Lesa meira

Birt í Indverskir réttir, Kjötréttir | Merkt , , , , , , , , | Færðu inn athugasemd

Spaghettí m/reyktum lax og snjóbaunum

Þrátt fyrir mikla umræðu og fjölda uppskrifta af kolvetna snauðum mat þá er það sönn ánægja að deila einni af uppáhalds pastauppskrifinni okkar hér. Einfaldur og ákaflega fljótlegur réttur sem bæði inniheldur heilan helling af kolvetnum og rjóma – dásamlega góður. … Lesa meira

Birt í Ítalskir réttir, Fiskur og sjávarfang, Pasta | Merkt , , , , , , | Færðu inn athugasemd