Ristaðar möndlur með rósmarín, chili og saltflögum

IMG_9880Ristaðar möndlur hafa á síðustu árum orðið ómissandi góðgæti á aðventunni í Vatnsholtinu. Upphaflegu uppskriftina sá ég í Gestgjafanum fyrir nokkrum árum, en hef breytt henni, stækkað og krydda nú mun meira.  Fallegt og gott góðgæti og skemmtileg tækifærisgjöf á aðventu.

Uppskrift

  • 500 gr möndlur
  • 1 dl vatn
  • 200 gr sykur
  • 1/4 tsk chilli duft
  • 1/2 rauður chili smátt saxaður
  • 2 msk. rósmarín smátt skorið
  • 2 tsk. salt flögur

mondlurSetjið vatn, sykur, chili duft og möndlur á pönnu og hafið hitann undir pönnunni háan þangað til sykurinn fer að krauma, látið krauma í u.þ.b. 10 mínútur og hrærið stöðugt á meðan. Þegar sykurinn fer að verða duftkenndur þarf að lækka hitann og halda áfram að hræra í möndlunum þangað til sykurinn brúnast og verður að nokkurs konar  karamellu utan á möndlunum. Hellið blöndunni á bökunarpappír, sáldrið smátt skornu chili, rósmarín og saltflögum yfir og losið þær í sundur með tveimur göfflum.

IMG_9867

Birt í Jól | Merkt , , , , , , | 3 athugasemdir

Byggflögu-múslí m/mangótvisti

IMG_9841Í upphafi aðventu er mikilvægt að huga að hollustu. Það má segja að fjölskylda mín sé orðin svolítið háð því að til sé gott, já verulega gott múslí. Þegar við tölum um gott múslí þá meinum við heimagert músli. Eftir að ég uppgötvaði hve einfalt og í raun skemmtilegt er að útbúa sitt eigið múslí höfum við ekki keypt tilbúið músli og nánast ekkert annað morgunkorn. Unglingurinn var svo sem ekkert ýkja sátt við móður sína þegar múslí-blætið hófst, en svei mér ef hún er ekki smátt og smátt að sættast við þetta líkt og heimagerðu pizzurnar. Snilldin við múslígerðina er hve einföld hún er, hve auðvelt er að huga að fjölbreytni, hve gaman er að prufa sig áfram með hinar ýmsu tegundir af korni, hnetum, fræjum og þurrkuðu ávöxtum og tryggja þannig fjölbreytni og hollustu. Svei mér ef það er ekki smá sólskin í þessu músli – ekki veitir af nú þegar styðstu dagar ársins eru gengnir í garð. Kertaljós, ab mjólk, músli, hunang og ferskt mangó og jarðaber í morgunsárið – þvílík byrjun á degi 🙂

Uppskrift

  • 500 gr. grófar byggflögur (ég notaði þýskar lífrænar því þær íslensku eru svo fínar að þær eru nánast eins og duft, vona að það verði leyst fljótlega því íslenskt bygg er mjög gott)
  • 2 dl. mangó og eplasafi (frá Himneskri hollustu) eða annar hreinn lífrænn safi
  • 3 tsk. hunang
  • 1 bolli möndlur gróft saxaðar
  • 1 bolli valhnetur gróft saxaðar
  • 1/2 bolli hörfræ
  • 1/2 bolli graskersfræ
  • 1/2 bolli kókosflögur
  • 1 bolli þurrkað mangó skorið í litla bita
  • 1 bolli þurrkuð trönuber
  • 1/2 bolli rúsínur
  • 1/2 bolli döðlur skornar í bita

musliLeysið hunangið upp í mangó-eplasafanum og hrærið blöndunni út í byggflögurnar. Setjið smjörpappír á bökunarplötu og hellið blöndunni á pappírsklædda plötuna og dreifið vel. Bakið við 150°C í 15 mín og hrærið reglulega í blöndunni eða á 5 mínúntna fresti. Skerið möndlur og hnetur gróft. Blandið saman kókos, fræjum, hnetum og möndlum í skál, takið byggflögurnar úr ofninum og blandið fræ- og hnetublöndunni vel saman við. Bakið í 10 – 15 mínútur til viðbótar og hrærið í blöndunni á 5 mínútna fresti svo allt bakist jafnt og hnetur og kókos brenni síður.

Á meðan blandan er að bakast skerið þið þurrkaða ávexti niður í litla bita.

Blandið ávöxtunum við hafrablönduna þegar hún hefur kólnað – setjið í fallega krukku og njótið.IMG_9843

Birt í Morgunmatur | Merkt , , , , , , | Færðu inn athugasemd

Föstudags-pizza

IMG_9818Föstudagar eru oftast pizzudagar hjá okkur í Vatnsholti. Í mörg ár hefur þessi hefð verið við lýði, með fjölmörgum og sjálfsögðum undantekningum. Föstudags-pizzurnar okkar eru þó undantekningalaust heimagerðar. Unglingurinn er hætt að suða um að panta pizzu eins og „allir nema ég“ gera. Hún er nú mjög sátt við sérvisku okkar, heimsóknirnar til Pylsumeistarans á Hrísateig og í Frú Laugu síðdegis á föstudögum. Uppáhald unglingsins er pepperóni frá Pylsumeistaranum og rjómaostur, aðrir fjölskyldumeðlimir kjósa meiri fjölbreytni. Í kvöld fékk unglingurinn sína uppáhalds og við hjónin kartöflupizzu með dashi af sítrónu og helling af rósmarín annars vegar og pepperóni, kúrbít og basiliku hins vegar – borið fram með góðu ítölsku rauðvíni – já föstudagskvöld eru einkar ljúf.

Uppskrift -Pizza-botn (sú sama og birt var í júlí)

Þessi grunnuppskrift að pizzabotni fellur vel að okkar smekk. Við viljum hafa botninn þunnan og stökkan og því nær maður með þessari uppskrift. Uppskriftin dugar í 3 – 4 botna sem eru u.þ.b. 9 tommur hver. Við bökum pizzuna í forláta pizzaofni sem við keyptum á tilboði árið 2005 og er um það bil að syngja sitt síðasta, enda ákaflega mikið notaður. Ef pizzan er bökuð í bakaraofninum þá er um að gera að hafa hitann mjög háan, allt að 250 C, og baka pizzuna neðarlega í ofninum.

  • 2 tsk. ger
  • örlítið hunang
  • 1 bolli volgt vatn
  • 4 bollar hveiti – oft nota ég 2 bolla gott brauðhveiti og 2 bolla af hörðu hveiti eða Durum hveiti.
  • 1 tsk. salt
  • 1 msk. olífuolía

Best er að leysa gerið upp í volgu vatni með hunangi, þar til það byrjar að freyða – þetta ferli tekur um 10 – 15 mínútur.  Ég hef nú ekki alltaf tíma og/eða þolinmæði í þetta fyrsta þrep og sleppi því oftast …. svona til að vera alveg heiðarleg :-)  Blandið saman hveiti, salti og olíu og hellið gerblöndunni (eða vatni, geri og hunangi) saman í skál og hnoðið vel saman eða þar til deigið hefur fengið góða áferð.  Ef þið eruð að baka pizzu heima er hægt að hnoða deigið í hrærivél með hnoðunarkrók, annars bara í höndunum. Leyfið deiginu að hefast í skál undir klút í 30 – 120 mínútur +/-   eða bara í þann tíma þið hafið.  Við skellum oft í deig og förum síðan að versla eða í sund-/gönguferð og ola þegar heim er komið býður þetta líka dásamlega deig tilbúið til að vinna með.

Deigið þarf að hnoða aftur í smá stund þegar það hefur fengið að hvíla og lyfta sér eins og tími og aðstæður leyfa. Skiptið deiginu í 3 – 4 parta og fletjið út.

Kartöflupizza 

  • Pizzasósa – heimagerð, sjá hér neðar
  • 2 stóra kartöflur
  • 1 tsk. sítrónusafi
  • 1 tsk. ólífuolía
  • 1-2 stilkar rósmarín
  • 1 tsk. tímían
  • rifinn ostur
  • 1/3 ferskur mozzarella
  • salt og pipar

pizzaSmyrjið pizzabotn með þunnu lagi af heimagerði pizzusósu. Dreifið rifnum osti yfir.

Setjið kartöflusneiðarnar í skál og veltið upp úr olífuolíu og sítrónusafa, kryddið með tímían, rósmarín, salti og pipar. Raðið sneiðunum á botninn og bakið í ofni í u.þ.b. 5 – 7 mínútur, takið úr ofninum og raðið ferskum mozzarellabitum yfir pizzuna. Bakið þar til pizzan er gullin og stökk. Gott er að setja ferskt rósmarín yfir pizzuna þegar hún er bökuð.

Kúrbíts- og pepprónípizza

  • pizzasósa – heimagerð, sjá hér neðar
  • rifinn ostur
  • 8-10 sneiðar pepperóní – hér gilda gæði en ekki magn, mæli eindregið með Pylsumeistaranum á Hrísateig, þar trúi ég að framleitt sé af ástríðu úr fyrsta flokks hráefni.
  • 6-8 sneiðar kúrbítur
  • 1/3 ferskur mozzarella
  • salt og nýmalaður pipar
  • nokkur blöð af ferskri basiliku (notaði rauða í þetta skipti)

pizza2Smyrjið botninn með þunnu lagi af pizzasósu, dreifið smávegis af rifnum osti yfir sósuna.

Raðið kúrbítssneiðunum yfir botninn, þá peppertóní og bakið í 5 – 7 mínútur. Takið úr ofninum og setjið bita af ferskum mozzarella yfir. Bakið þar til pizzan er gullin og stökk. Þegar pizzan kemur úr ofninum, er ferskri basilku stráð yfir hana og krydduð með smávegis af salti og nýmöluðum pipar.

Pizzasósa – einföld og góð

  • 1 dós tómatar (veljið lífræna og góða tómata, úrvalið er mikið)
  • 1 – 2 msk. tómatpúrra
  • 1/2 chili rauður
  • 3 hvítlauksgeirar
  • 2 msk. óreganó
  • salt og nýmalaður pipar

pizzusosaSetjið allt í blandarann og blandið vel.  Sósan geymist í  1 – 2 vikur vel í lokuðu íláti í ísskáp.

Birt í Ítalskir réttir | Merkt , , , , , , , , , , , | Færðu inn athugasemd

Fylltar smjördeigsskálar með indversku tvisti

IMG_9680Í matarboði helgarinnar buðum við upp á indverkst þema – nokkrir réttana eiga rætur að rekja til námskeiðsins sem ég fór á hjá Jamie Oliver í haust og sagði frá í síðustu færslu. Einn þeirra rétta sem við elduðum á námskeiðinu var Pakoda brauð – það er brauð sem fyllt var með kryddaðri kartöflustöppu m/baunum, brauðinu dýft í kryddaðan deighjúp og djúpsteikt.  Brauðið var mjög gott, en ég var hrifnar af því sem við gerðum úr afganginum af kartöflustöppunni – og ákvað því að útfæra þá hugmynd fyrir boðið núna.   Við sumsé buðum upp á þetta sem smárétt með fordrykknum  ásamt steiktu poppadums með döðlu og tamarind cuthney.

Uppskrift

  • ólífuolía
  • 1 tsk. sinnepsfræ
  • 2-3 karrílauf
  • 1/2 tsk. túrmerik
  • salt og pipar
  • safi úr 1/2 sítrónu
  • 250 gr. soðnar karteflur, flysjaðar og skornar í grófa bita
  • 60 gr. grænar baunir (frosnar)
  • 1 msk. ferkst kóríander saxað smátt
  • 20 litlar smjördeigsskálar
  • döðlu og tamarind cuthney
  • hrein jógúrt
  • nokkur blöð ferkst kóríander
  • nokkrir granateplakjarnar

Hitið ólífuolíu á pönnu og steikið sinnepsfræ, karrílauf og túrmerik í smá stund. Bætið sítrónusafa á pönnuna og hrærið saman. Þá er kartöflubitunum bætt út á pönnuna, saltað og piprað eftir smekk og öllu hært vel saman, kartöflubitarnir eiga að merjar á þessu stigi þannig að áferðin verði lík grófri kartöflustöppu. Loks er grænu baunum og smátt söxuðu fersku kóríander blandað saman við.

Samsetning

Setjið u.þ.b. eina kúfaða matskeið af kartöflustöppu í hverja smjördeigsskál, þá 1/2 tsk. af cuthney og örlítið af hreinni jógúrt. Skreytið með granateplakjörnum og fersku kóríander.  Fallegur og góður smáréttur.

IMG_9688

Birt í Forréttir, Indverskir réttir, Smáréttir | Merkt , , , , , , | Færðu inn athugasemd

Indverskt döðlu og tamarind chutney

IMG_9716Í lok september var ég stödd í London, lét gamlan draum rætast og fór á matreiðlsunámskeið hjá Jamie Oliver. Námskeiðið var haldið á nýlegum stað Jamie Oliver – Recipease við Notting Hill Gate. Staðsetningin er mjög góð og stoppar neðanjarðarlestinn alveg við staðinn.  Auk þess að vera kennslueldhús er þarna verslun og veitingastaður með léttar veitingar. Eiginmaðurinn kom með mér á námskeiðið sem bar yfirskriftina Indian Street Foodþ Auk okkar voru 10 aðrir þátttakendur á námskeiðinu, allt bretar utan okkur og ein hjón frá Ástralíu sem hafa búið í Bretlandi sl. ár. Þetta var tveggja tíma námskeið sem endaði á því að við borðuðum öll saman það sem við höfðum eldað, dreyptum á hvítvíni og skemmtum okkur konunglega yfir því hvernig til hafði tekist. Skemmtileg stund með skemmtilegu fólki  – ég get svo sannarlega mælt með ævintýri sem þessu næst þegar þú átt leið um London. Jamie Oliver var reyndar ekki sjálfur að kenna, en hún Hanna frá Austuríki sem sá um kennsluna þetta kvöld stóð sannarlega undir væntingum, afslöppuð, skemmtileg og fékk alla til að hlægja strax á fyrstu mínútunum – lagði áherslu á mikilvægi þess að aðlaga uppskriftirnar að okkar smekk. Við fengum ekki skriflegar uppskriftir til að vinna eftir, heldur stóð Hanna í miðju eldhúsinu og spjallaði um matinn sem við vorum að elda, kryddin og annað hráefni sem við notuðum og lagði áherslu á að ástríðuna sem er svo nauðsynleg við eldamennskuna. 

Það sem er svo skemmtilegt við námskeið sem þetta er hve mikið maður nýtir það sem maður lærir, jafnvel án þess að gera sér grein fyrir því. Í gærkvöldi var ég til að mynda með matarboð – bauð ákaflega kærri vinkonu og hennar ektamanni í indverkskan mat. Ég gleymdi mér í gleðinni við eldavélina og tók nánast engar myndir. Eiginmaðurinn tók þó mynd af forréttinum sem ég ætla að deila með ykkur í næstu færslu, en í dag tók ég mynd af chutneyinu sem ég útbjó í gær og kláraðist ekki fyrr en í dag. Í gær notuðum við það í forréttinn, bárum það fram með pappadums brauðinu sem var með forréttinum og loks sem meðlæti með aðalréttunum. Þetta chutney er eitt af því sem ég lærði að gera á námskeiðinu hjá Jamie. Döðlu og tamarind chutney er gott með öllum indverkum mat, líkt og mangó chutney. Tamarind skilst mér að þýði indversk daðla, það er súrt á bragðið, hefur nokkurs konar sítrónukeim en líkist svo sannarlega ekki sítrónu að öðru leiti. Tamarind fæst yfirleitt í verslunum sem selja austurlenskan mat, en er stundum hægt að fá í Nóatúni og Hagkaupum.

Uppskrift

  • 1 bolli döðlur (þessar venjulegu þurrkuðu sem við þekkjum úr hillum matvöruverslana)
  • 6 tsk. tamarind
  • 1/2 bolli púðursykur
  • 1 bolli vatn
  • 1/2 tsk. rautt chili duft
  • 1/2 tsk. broddkúmen
  • 1 tsk. garam masala
  • 1 tsk. salt

Setjið döðlur, tamarind, vatn og sykur í pott og sjóðið við vægan hita í 7 – 8 mínútur. Bætið kryddinu út í og sjóðið áfram  í u.þ.b. 10 – 15 mínútur við vægan hita eða þar til maukið er orðið hæfilega þykkt. Berið fram með indverskum mat, t.d. karrý réttum. Líka gott með pappadums brauði.

Birt í Indverskir réttir, Meðlæti, Pestó, sultur og chutney | Merkt , , , , , , , | 3 athugasemdir

Súkkulaði- og rauðrófukaka

IMG_9227Mikið eru helgarnar dásamlegur tími – samvera með fjölskyldu og vinum, göngutúrar, bæjarferðir, sundferðir og síðast en ekki síst matarboð af öllum tegundum.  Árdegisverðarboð, síðdegiskaffiboð, kvöldverðarboð – svei mér ég hef jafn gaman af þeim öllum, svo fremi þau snúist um að hitta þá sem manni þykri vænt um, njóta samveru og góðs matar. Þessi kaka var einmitt í einu síðdegiskaffiboði hjá okkur fyrir ekki alls löngu og vakti mikla lukku. Rótargrænmeti í kökur er ekki óþekkt, við höfum flest smakkað gulrótarköku og eigum mörg okkar uppáhalds. Hér er skemmtilegt tvist á súkkulaðiköku – rauðrófur eru kannski ekki það fyrsta sem okkur dettur í hug þegar við hugsum um súkkulaðiköku en kemur skemmtilega á óvart. En ein aðvörun fyrir þá sem vilja dísætar súkkulaðikökur þá er þetta ef til vill ekki rétta uppskriftin svo því sé til haga haldið.

Uppskrift

  • 250 gr. smjör
  • 250 gr. dökkt súkkulaði (70% er best en það má líka nota suðusúkkulaði)
  • 3 egg
  • 250 gr. sykur
  • 150 gr. hveiti
  • 1 tsk. lyftiduft
  • 250 gr. rauðrófa

Skrælið rauðrófuna, sjóðið þar til hún er mjúk, kælið og rífið á rifjárni.

Skerið smjörið í bita og brytjið súkkulaðið, setjið í pott og bræðið saman yfir vægum hita.

Hrærið egg og sykur vel saman.  Hrærið súkkulaðiblöndunni rólega saman við eggjablönduna.  Sigtið hveiti og lyftiduft yfir blönduna og hrærið varlega saman. Loks er rauðrófunum hrært rólega saman við, gætið að því að hræra ekki of mikið í blöndunni því þá getur kakan orðið seig.

Bakið í vel smurðu kökuformi sem er u.þb. 22-24 cm. við 180°C í 20 – 25 mínútur. Kælið og sigtið örlitlum flórsykri yfir kökuna áður en hún er borin fram.

rauðrofuterta

Birt í Bakstur, Kökur | Merkt , , , , | Ein athugasemd

Jarðarberjamúffur

IMG_9664Í gærkvöldi hrópaði unglingurinn upp yfir sig að hún yrði að koma með köku á síðasta námskeiðskvöldið sitt hjá Dale Carnegie þar sem hún hefur síðustu 10 vikur verið á frábæru námskeiði fyrir ungt fólk. Hún er sjálf mjög liðtæk í eldhúsinu, sérílagi við bakstur og hefði alla jafna bjargað þessu sjálf, en í gær var hún að læra fyrir munnlegt dönsku próf. Móðirin setti sig því í stellingar, þakkaði fyrir hve einbeitt unglingurinn var yfir dönskunni og hóf tilraunamennsku sem endaði í þessum líka ljómandi góðu jarðarberjamúffum.  Þessar verða bakaðar aftur svo góðar eru þær og að sjálfsögðu langbestar nýbakaðar.

Uppskrift

  • 280 gr. hveiti
  • 120 gr. sykur
  • 2 tsk. lyftiduft
  • 80 gr. smjör brætt
  • 2 egg
  • 2 dl. mjólk
  • 1 tsk. vanilludropar
  • 24 lítil eða 12 stór jaðarber (fersk eða frosin)

ofan á múffurnar

  • 15 gr. smjör
  • 2 msk. sykur
  • 1 msk. hveiti
  • 3 msk. hakkaðar möndlur

Blandið saman hveiti, sykri og lyftidufti í skál. Léttþeytið egg í annari skál, bætið mjólk, vanillu og bræddu smjöri út í og þeytið saman.  Setjið þurrefnin saman við og hrærið lauslega saman en gætið að því að hræra ekki of mikið.

Blandið því sem á að fara ofan á múffurnar saman með gaffli.

Skiptið deiginu í 12 múffuform, setjið 1- 2 jarðarber í hverja múffu og þrýstið þeim ofan í deigið.  Myljið smjör-möndlu-deigið yfir hverja múffu.  Bakið við 180 C í 15 – 20 mín.

IMG_9634

Birt í Bakstur | Merkt , , , , | Færðu inn athugasemd

Túnfisk-pasta m/sólþurrkuðum tómötum, ólífum og kjúklingabaunum

IMG_9621Léttur, fljótlegur og góður réttur á vel við í kvöld – þegar nánast allir sitja límdir við skjáinn að fylgjast með íslenska landsliðinu í Króatíu. Pasta með túnfisk hljómar ekkert sérlega frumlega hvað þá spennandi.  En þegar við veljum að nota fyrsta flokks túnfisk, bætum kjúklingabaunum, grískum kalamata ólífum, sólþurrkuðum tómötum, sveppum og furuhnetum við, þá fer þetta nú að verða svolítið spennandi. Já og gott líka – vona bara að leikurinn verði jafn góður.  Réttur þessi er bæði góður heitur og kaldur – afgangurinn er komin inn í ísskáp og mun fylgja mér í vinnuna á morgun – hádegisverði morgundagsins er sumsé bjargað.

IMG_9608Uppskrift (fyrir 3 -4)

  • 250 gr. pasta (ég notaði spelt skrúfur)
  • 1 dós túnfiskur (mæli með þeim spænska sem fæst í Frú Laugu)
  • 2 – 3 msk. olífuolía
  • 100 gr. sveppir, skornir í sneiðar
  • 2 hvítlauksgeirar, pressaðir
  • 100 gr. sólþurrkaðir tómatar, skornir gróft
  • 12 – 15 svartar olífur (grískar kalamata eru bestar)
  • 2 dl. kjúklingabaunir soðnar
  • 2 – 3 msk. furhnetur, ristaðar á þurri pönnu
  • 3-4 msk. íslensk fjallasteinselja
  • sjávarsalt og svartur nýmalaður pipar
  • rifinn parmesan ostur

Sjóðið pasta í vel söltu og bullsjóðandi vatni skv. leiðbeiningum á pakkanum eða þar til það er “Al Dente” sem þýðir að það er enn dálítið bit í því.

tunfiskpastaHitið olíu á pönnu og steikið sveppina í smá stund við vægan hita.  Bætið hvítlauk, sólþurrkuðum tómötum, ólífum, kjúklingabaunum á pönnuna, blandið vel og látið hitna við vægan hita. Bætið loks steinselju og furuhnetum út í, kryddið með salti og nýmöluðum pipar.  

Berið fram með rifnum parmesan osti og einföldu grænu salati.

IMG_9622

 

 

Birt í Ítalskir réttir, Pasta | Merkt , , , , , , , , , , , , | Færðu inn athugasemd

Ofnbakaður karrý-kjúklingur

IMG_9597Það er án efa aðeins meiri fyrirhöfn fólgin í því að gera karrý frá grunni en að kaupa það tilbúið í krukku, en þeir sem til þekkja vita hve miklu betra slíkt karrý er. Sunnudagskvöld og annasamri og ánægjulegri helgi lokað með þessum góða rétti sem öll fjölskyldan var sammála um að væri einn sá besti. Meira að segja unglingurinn var á þeirri skoðun að þetta væri langbesti kjúklingaréttur sem hún hefði smakkað. Hugmyndin er fengin úr nýlegri bók Hugh Farnley – River Cottage – Every Day – en að sjálfsögðu breytt og aðlöguð að því sem til var í kryddskúffunni minni. Ég á von á að þessi réttur verði fljótlega aftur á borðum hér í Vatnholtinu – svo góður er hann.

IMG_9576Uppskrift

  • 1 1/2 tsk. broddkúmen fræ
  • 1 1/2 tsk. kóríander fræ
  • 1 1/2 tsk. fennel fræ
  • 2 tsk. túrmerik
  • salt og pipar
  • 1 laukur
  • 3 hvítlauksgeirar
  • 1/2 – 1 chili
  • 3-4 cm engifer ferskt
  • 3 – 4 msk. olía
  • 1 heill kjúklingur skorin í 6 bita
  • 1 dós niðursoðnir tómatar
  • 1 dós eða ferna af kókosmjólk

karry-kjuklinguRistið broddkúmen-, kóríander- og fennelfræin á þurri pönnu í eina til tvær mínútur og steytið þau síðan í mortéli. Blandið túrmerik, salti og pipar saman við.

Setjið gróft skorinn lauk, hvítlauk, chili, og engifer í matvinnsluvél og maukið vel.

Kryddið kjúklingabitana með kryddblöndunni. Hitið olíu á pönnu og brúnið kjúklingabitana á öllum hliðum á meðalheitri pönnunni – gott er að steikja fáa bita í einu til að fá fallega gullin lit á bitana. Takið kjúklinginn af pönnunni og setjið í eldfast mót eða á pönnu sem má fara í ofn.

Lækkið hitan undir pönnunni og setjið afganginn af kryddblöndunni á hana, steikið kryddið í mínútu eða svo og bætið þá laukblöndunni út á pönnuna og steikið í nokkrar mínútur til viðbótar. Bætið olíu á pönnuna ef þörf er á.

Setjið tómata og kókosmjólk í matvinnsluvélina og maukið – (ath. óþarfi er að þrífa matvinnsluvélina eftir laukblönduna).  Hellið blöndunni út á pönnuna yfir laukblönduna og látið suðuna koma upp.

Hellið sósunni yfir kjúklingabitana, þekjið alla bitana, en skafið síðan sósuna að mestu ofan af þeim svo þeir nái að brúnast þegar þeir eru bakaðir í ofninum.  Bakið í opnu fati eða á pönnu án loks við 180°C í 1 klst.

Berið fram með basmati hrísgrjónum og grænu einföldu salati.

Birt í Indverskir réttir, Kjötréttir | Merkt , , , , , , , , | Færðu inn athugasemd

Spaghettí m/reyktum lax og snjóbaunum

IMG_9510Þrátt fyrir mikla umræðu og fjölda uppskrifta af kolvetna snauðum mat þá er það sönn ánægja að deila einni af uppáhalds pastauppskrifinni okkar hér. Einfaldur og ákaflega fljótlegur réttur sem bæði inniheldur heilan helling af kolvetnum og rjóma – dásamlega góður. Þessi réttur hefur fylgt okkur um margra ára skeið og er alltaf jafn vinsæll, bæði hjá börnum og fullorðnum.  Ég hef þá trú að hóflegt magn af kolvetnum, rjóma og jafnvel smjöri geri okkur bara gott svo fremi við erum meðvituð um mikilvægi fjölbreytts mataræðis og gætum að hófsemi í magni.  Mikilvægara er að mínum mati að huga að uppruna matarins og því að nota gott hráefni.

IMG_9494Uppskrift (fyrir 3)

  • 250 gr. spaghettí
  • 250 gr. reyktur lax
  • 200 gr. snjóbaunir eða aðrar góðar baunir (ferskar eða frosnar)
  • 2 dl. matreiðslurjómi
  • 1 msk. olífuolía
  • 1-3 hvítlauksgeirar
  • salt og pipar
  • rifinn parmesan ostur og nokkur blöð af ferskri basiliku (rauð var hún í þetta sinn)

Sjóðið spaghettíið í vel-söltu og bullsjóðandi vatni skv. leiðbeiningum á pakkanum eða þar til það er „al dente“ sem þýðir að það er enn dálítið bit í því.

Hitið olíuna á pönnu og steikið baunirnar í smástund við vægan hita. Bætið pressuðum hvítlauk á pönnuna.  Hellið rjómanum yfir og hitið að suðu. Saltið og piprið en gætið að því að salta ekki of mikið því laxinn getur verið svolítið saltur.

Skerið laxinn í hæfilega bita – ekki of smáa.

Þegar spahettíið er soðið er vatninu hellt frá og pastanu bætt út á pönnuna með baununum og rjómanum. Laxinn settur út á heitt pastað og öllu hrært vel saman.

Berið strax fram með rifnum parmesan osti og einföldu fersku salati.

IMG_9513

Birt í Ítalskir réttir, Fiskur og sjávarfang, Pasta | Merkt , , , , , , | Færðu inn athugasemd