Fjölskylduhefðir á aðventu og um hátíðir eru hreint dásamlegar. Ein þeirra sem okkur þykir ákaflega vænt um er sú sem maðurinn minn kom með, nefninlega laufabrauðsbakstur. Móðir hans hún Dísa, elskuleg tengdamóðir mín, hefur allt frá því hún var í foreldrahúsum hnoðað, skorið og steikt laufabrauð. Fyrstu búskaparár okkar Helga fengum við brauðið sent frá Ísafirði, þar sem tengdaforeldrar mínir áttu heima. Rétt fyrir jólin barst alltaf stór kassi með póstinum sem innihélt ýmislegt góðgæti auk jólagjafa. Meðal þess sem í kassanum leyndist var fagurlega útskorið laufabrauð og það merkilega við þessar sendingar var að tengdamóður minni tókst alltaf að búa svo um fallega skorið brauðið að hvert og eitt einasta var heilt. List sem ekki öllum er gefið. Ég er tengdamóður minni þakklátt fyrir margt og meðal annars þess að hafa kennt okkur að útbúa laufabrauð frá grunni eftir gamalli uppskrift sem ég hélt lengi vel að kæmi frá móður hennar – en reyndist rangt – elsku Dísa tók sjálf upp því að baka laufabrauð þegar hún bjó í foreldrahúsum og fann uppskriftina í einhverri gamalli bók. Nú deilum við þessari dásemdaruppskrift með ykkur sem viljið. Við erum alltaf sannfærð um að þessi uppskrift er sú allra, allra besta og dagurinn sem fer í laufabrauðsbakstur er fjölskyldudagur sem markar upphaf aðventu hjá okkur.
SJÁ UPPSKRIFT
Leit
-
Nýlegar færslur
- Basil pestó – þetta hefðbundna ítalska
- Silungur pakkaður í hráskinku borin fram með bygotto
- Lambaleggir í hægum takti
- Kalkúnabringa „Sous Vide“
- Sæt kartöflumús með sveppum
- Grænmetislasagne
- Bláberjakaka með möndlum, kókos og sítrónu
- Rósmarín kjúklingaspjót með einfaldri kaldri sósu
- Perlubygg með grilluðu grænmeti
Sarpur
Uppskriftir
Tækni








