Leit
-
Nýlegar færslur
- Basil pestó – þetta hefðbundna ítalska
- Silungur pakkaður í hráskinku borin fram með bygotto
- Lambaleggir í hægum takti
- Kalkúnabringa „Sous Vide“
- Sæt kartöflumús með sveppum
- Grænmetislasagne
- Bláberjakaka með möndlum, kókos og sítrónu
- Rósmarín kjúklingaspjót með einfaldri kaldri sósu
- Perlubygg með grilluðu grænmeti
Sarpur
Uppskriftir
Tækni
Author Archives: Berglindol
Basil pestó – þetta hefðbundna ítalska
Hefðbundið ítalskt basilpestó er ómótstæðilegt. Á þessum árstíma er upplagt að rækta basil í gluggakistum, það er of viðkvæmt til að fara út í íslenskt sumar – en þrífst mjög vel í glugga. Ég man eins og gerst hefði í … Lesa meira
Möndlu-silungur með salvíusmjöri
Mikið er sumarið dásamlegur árstími. Tími til að ferðast, liggja í tjaldi/tjaldvagni, ganga á fjöll, veiða í vötnum og ám, njóta útiveru og samveru með fjölskyldu og vinum, rækta kryddjurtir og grænmeti í garðinum, bardúsa við vegagerð og planta trjám, … Lesa meira
Bulgur-salat / Tabbouleh
Þetta salat rekur uppruna sinn til miðausturlanda og er á þeim slóðum oft borið fram sem einn af nokkrum réttum á hlaðborði, Meze. Salatið er allt í senn; dásamlega einfalt, fallegt og gott. Það hentar hvort sem er með fisk-, kjöt-, … Lesa meira
Baka með jarðarberjum, fjólum og mascarpone osti
Falleg og góð baka hæfir vel á þjóðhátíðar-kaffiborðið og er líka góð sem eftirréttur eftir góða sumarmáltíð. Bökur sem þessar eru ef til vill ekki þær fljótlegustu og einföldustu, en fegurðin og bragðið gerir fyrirhöfnina svo sannarlega þess virði. Að … Lesa meira
Grillaður sterk-kryddaður og sætur bjórkjúklingur
Það eru töluvert mörg ár síðan ég kynntist þvi að grilla kjúkling á bjórdós – og síðan þá nota ég þá aðferð alltaf þegar ég heilgrilla kjúkling. Með þessari aðferð verður kjúklingurinn mjúkur, safarikur og jafneldaður. Í kvöld notaði ég … Lesa meira
Súkkulaði-banana-möffins
Það er langt frá því síðasta færsla var sett á síðuna og löngu tímabært að ljúka þessari færslu sem ég byrjaði á fyrir tæpum þremur vikum – ég veit að nokkrir bíða eftir þessari uppskrift og vonandi gleðjast þeir aðilar … Lesa meira
Grillaður lax með sítrus ávöxtum og ferskum kryddjurtum
Lax, lax, lax og aftur lax … nú þegar sumarið er komið og moldvarpan sem ég er, hef potað niður í garðinn minn 9 tegundum af kryddjurtum, 4 tegundum af salati, rauðrófum, gulrótum, grænkáli, radísum og helling af ætum blómum … Lesa meira
Guacamole
Ef þið hafið ekki bragðað heimagert guacamole þá skora ég á ykkur að láta ekki líða á löngu áður en þið látið verða að því. Það er ekkert líkt því sem selt er tilbúið í krukkum út í búð og … Lesa meira