Bragðmikil og góð súpa á vel við á þessum árstíma. Dimmt og kalt en oft á tíðum ákaflega fallegt veður. Tíminn sem það er bæði dimmt er maður leggur af stað í vinnuna á morgnana og líka þegar maður kemur heim á daginn. Þá er nú ósköp ljúft að kveikja á kertaljósum, hlusta á notalega tónlist og finna hvernig ilmurinn af þessari dásemdarsúpu fyllir íbúðina notalegri angan.
Fyrir þá sem eru vegan, er hér eitthvað fyrir ykkur – sleppið bara að setja jógúrt ofan á hverja skál þegar súpan er borin fram 🙂
Uppskrift
- 2 msk. olífuolía
- 1 laukur, saxaður fremur smátt
- 4 hvítlauksgeirar, marðir undir hnífsblaði og saxaðir smátt
- 4 cm bútur engifer ferskt, rifið á fínu rifjárni
- 1/2 rautt chili, fræhreinsað og saxað smátt
- 1 msk. garam masala
- 2 tsk. madras karrí
- 2 sætar kartöflur, skrældar og skornar í bita, 2 cm á kant (ca. 700gr)
- 1 l gott grænmetissoð
- 1 dós kókosmjólk, 400ml
- 1 msk. ferskur sítrónusafi
- Salt og nýmalaður svartur pipar
Ofan á
- væn msk. af hreinni góðri jógúrt á hverja skál
- örlítið af grófu söxuðu fersku kóríander eða steinselju
Hitaðu olíuna á góðum súpupotti yfir fremur lágum hita og settu smátt skorinn laukinn út i og látið malla við lágan hita í 10 mín.
Bættu hvítlauk, engineer, chilli út í og hrærðu saman í nokkrar mínútur. Bætið þá kryddunum út í, garam masala og karrý, salt og pipar, hrærið vel saman og leyfið að malla í nokkrar mínútur við lágan hita.
Bætið sætu kartöflunum út í og veltið þeim vel upp úr lauk og kryddblöndunni, svo þær verði þaktar í kryddi. Hellið grænmetissoðinu út í pottinn, hækkið hitann og látið malla í u.þ.b. 15 mínútur eða þar til kartöflurnar eru alveg meirar.
Takið þá súpuna af hitanum og maukið hana með töfrasprota þar til kartöflurnar eru alveg marðar og súpan silkimjúk.
Bætið kókosmjólkinni og sítrónusafanum út í og hitið að suðu. Smakkið og kryddið með salti og pipar ef þörf er á.
Berið súpuna fram með smá slettu af hreinu jógúrt og gróf saxaðri ferskri steinselju eða kótíander.

Er ekki við hæfi að byrja þessa færslu á svolítilli klisju. Klisju sem þó er sönn. Aðventan er nefninlega einn besti tími ársins. Hin síðari ár hef ég notið aðventunnar meira og meira, þó jólin séu enn punkturinn yfir i-ið, eða er það ekki? Jólatónleikar og jóla-dögurð á góðum veitingastað með fjölskyldu og vinum, tími sem við bökum, eldum, skreytum og njótum saman. Gætum þess bara að láta ekki neyslubrjálæðið ná yfirhöndinni, gleðjumst yfir því smáa, gleðjum aðra og gleðjumst saman.
Uppskrift
Bræðið smjörið og hellið því yfir haframjölið og blandið vel saman. Setjið kókosmjöl og sykri saman við og hrærið. Bætið þá egginu, lyftidufti og hveiti saman við.
Bræðið þá súkkulaði yfir vatnsbaði og pennslið botninn á kökunum með bræddu súkkulaðinu.
Löng þögn á þessum miðli er ekki merki um það að ég sé hætt að elda, þó ég hafi ef til vill gert heldur minna af því síðustu vikur en oft áður. Nýtt skemmtilegt og annasamt starf, framkvæmdir í sumarhúsalandi okkar hjóna, dásamleg dótturdóttir og ýmislegt fleira skemmtilegt hefur hins vegar átt hug minn allan og tíminn sem fer í að blogga hefur því átt undir högg að sækja. Ég hef reyndar íhugað mjög hvort ég ætti að hætta, en eitt af markmiðum mínum í ár var að einfalda líf mitt – sem getur verið svolítið flókið þegar kona á mörg áhugamál og finnst lífið bæði spennandi og skemmtilegt. Ég á líka mjög einlægan aðdáanda í yngri dóttur minni sem finnst það fráleit hugmynd að ég sleppi því að blogga, svo ég hef tekið ákvörðun um að halda þessu eitthvað áfram. Matreiðsla hefur verið ástríða mín frá unga aldri, ég á mínar fyrstu minningar við eldavélina einungis 5 ára gömul. Elstu uppskriftirnar mínar eru líklega frá því ég var 11-12 ára gömul og páraði niður kökuuppskriftir um leið og ég safnaði servéttum og glansmyndum. Þetta er sumsé áhugamál mitt frá unga aldri – ég hef enga formlega menntun í matreiðslu þó ég hafi sótt nokkur stutt námskeið sem ætluð eru áhugafólki og eigi orðið dágott safn bóka, reyndar svo margar að fjölskyldunni finnst nóg um 🙂 Ég er því típískur amatör með ástríðu – einskonar hallæris nörd – og mun líklega seint að takast að einfalda líf mitt!
Uppskrift
Malið möndlurnar og blandið kókos saman við. Ristið á þurri heitri pönnu, gætið þess að hræra stöðugt í blöndunni þar til hún fer að taka lit og ilma stórkostlega. Setjið ristaða möndlu- og kókosblönduna í skál.
Bætið kókosmjólk, kotasælu eða ricotta osti, steyttum kórínderfræjum, chilidufti, engiferrót, hvítlauksmauki og salti saman við og blandið vel saman.
Skerið kjúklinginn í hæfilega bunnbita. Hitið olíu á pönnu og steikið kjúklingabitana, kardimommubelgina og lárviðarlaufið við háan hita í nokkrar mínútur. Hellið kókos- og möndlumaukinu saman við og hrærið vel. Látið malla við lágan hita í u.þ.b. 15 mínútur eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn. Veiðið lárviðarlaufið og kardimommubelgina úr og stráið saxaðri steinselju eða kóríander yfir réttinn áður en hann er borin á borð. Gott er að hafa basmati hrísgrjón, t.d. safran grjón og nan brauð sem meðlæti.
Dásamlegt sumar rétt rífleg hálfnað, sumar sem hefur liðið ákaflega hratt við skemmtileg ævintýri. Því þrátt fyrir að það hafi ekki verið mikið að gerast á þessari síðu í sumar þá verður hið sama ekki sagt um líf Vatnsholtsgengisins. Það er uppfullt af skemmtilegum verkefnum og uppákomum með dásamlegu fólki. Svei mér ef þetta er ekki fyrsta helgin síðan í maí sem við erum heima hjá okkur. Matreiðsla okkar í kvöld varð að hæfa 11 mánaða gullmola jafnvel og okkur sem eldri eru. Sú yngsta borðaði svo vel að ég hafði vart undan að skera kartöflur og kjúkling í litla bita fyrir hana og um tíma stóð mér vart á sama hve mikið hún borðaði og velti fyrir mér hvernig þessi litli kroppur kæmi þessu öllu fyrir – en auðvitað kunni hún sitt magamál og gaf sjálf til kynna hvenær hún hafði borðað nægju sína. Aðrir fjölskyldumeðlimir voru jafnánægðir og sú stutta og því um sannkallaðan fjölskyldurétt að ræða, rétt sem í raun krefst lítillar fyrirhafnar – allt í einum potti, einfalt og gott.
Uppskrift
Kryddið kjúklinginn með góðu kjúklingakryddi, sjálf nota ég alltaf eðal kjúklingakryddið frá Pottagöldrum.
Merjið hvítlauksgeirana undir hnífsblaði og afhýðið þá. Setjið 2 – 3 geira inn í kjúklinginn er restina með bankabygginu í ofnpottinn.
Setjið kjúklinginn ofan á bankabyggið. Saxið oreganó gróft og takið tímían blöðin af stilkunum, stráið yfir kjúklinginn og bankabyggið.
Takið pottinn úr ofninum, bætið sætu kartöflunum út í pottinn og bakið áfram undir loki í 15 mínútur. Takið þá lokið af pottinum, hrærið aðeins í bygginu og kartöflunum, hækkið hitann í 200°C og bakið áfram í 10 mínútur með ofnpottinn opinn til að fá stökka pöru á kjúklinginn.
Maríulaxinn minn verðskuldar svo sannarlega tvær færslur. Eins og fram kom í fyrri færslunni þá hefði ég gjarnan viljað gera 25 rétti úr þessari dásemd, enda fallegasti lax sem ég hef augum litið og bragðgæðin alveg í takt við útlitið 🙂
Uppskrift (f.4)
Skerið mangó í litla bita u.þ.b. sömu stærð og melónubitarnir.
Við byrjuðum á að flaka þennan fallega Maríulax.
Setjið plankann á grillið og lokið grillinu. Gætið þess að grillið sé ekki of heitt, þá getur kviknað í plankanum – fylgist vel með, plankinn á að reykja vel, en ekki loga 😉
Sumarið er tíminn….. til að njóta, veiða, þeysa um á nýja hjólinu í spandex buxum með rassapúða, ganga á mörg fjöll, búa til veg í sveitinni, finna vatn, byggja sumarhús, elda góðan mat, róta í moldinni, rækta blóm, grænmeti, kryddjurtir en fyrst og síðast rækta fjölskyldu og vini. Allt þetta og meira til hyggst ég stunda af mikilli alúð í sumar.
Þá fyrst fékk ég að vita hvað er best við þessar veiðiferðir – þvílíkt kikk, þvílík hamingja og þvílíkur lax. Ég hef aldrei á ævinni séð jafn fallega hrygnu, 64 cm og 2.850 gr. veidd í dásemdarhyl í Eysti Rangá.
Ég naut leiðsagnar besta veiðileiðsögumaður sem ég hef nokkurn tíma haft, hann gætti þess að leiðbeina á þann hátt að sjálfstraustið hélt allan tímann, veitti stuðning og leiðsögn án þess að grípa inn í þegar kappið var alveg að fara með mig, þá er mikilvægt að draga andann djúpt og bregðast rétt við – vá þvílík upplifun.
Uppskrift
Hreinsið og þerrið flakið. Ég reif börkinn beint yfir flakið, en það má að sálfsögðu blanda berkinum saman við salt og sykurblönduna. Stráið salt og sykurblöndunni yfir allt flakið þannig að blandan þeki allt flakið vel.
Vefjið í plastfilmu, setjið á fat og inn í kæli í 24 klst. Margar leiðbeiningar segja að maður eigi að fergja flakið, en ég vafði það bara vel inn og lét það duga með góðum árangri.
Eftir sólahring er flakið tekið úr kæli og hreinsað og þerrað vel. Grafinn lax er unnt að geyma í kæli í allt að 2 vikur, en þessi var svo góður að hann var löngu búin áður en sá tími kom 🙂
Sunnudagskakan þennan sunnudaginn er ekki alveg hefðbundin en hreint afbragð. Innihaldið minnir á miðjarðarhafið. Síðustu daga og vikur hefur mig dreymt um sól og suðrænar strendur. Það lítur ekki út fyrir að ég láti þann draum rætast þetta árið, en ég mun örugglega smella aftur í þessa köku mjög fljótlega, svo góð er hún.
Uppskrift
Rífið kúrbítinn á rifjárni. Blandið hveiti, lyftidufti og kryddi saman í skál, setjið hneturnar saman við.
Sett í velsmurt formkökuform (okkar form er 28 cm langt) og bakað við 180°C í 50 – 55 mínútur eða þar til prjón sem stungið er i miðjuna kemur hreinn út.
Maí er afmælismánuður hjá tengdafólkinu mínu, þau eru ekkert mikið að flækja hlutina og eiga öll afmæli í maí. Mágur minn er 2. maí, tengdamamma 13. maí, tengdapabbi 15. maí og restina rekur elskulegur eiginmaður minn sem á afmæli 23. maí. Það hefur verið fjör á Hrannargötunni, þar sem þau bjuggu í den, í maí hjá þessari fallegu fjögurra manna fjölskyldu. Fjörið heldur áfram hjá Vatnsholtsgenginu sem heldur að sjálfsögðu mikið upp á maí mánuð – afmælismánuðinn mikla, þegar björt vorkvöld, sólin, græna grasið og blómstrandi fjólur og fíflar minna okkur á hve þessi árstími er stórkostlegur. Þessa dásemd bakaði ég fyrir eiginmanninn í ár og bar fram sem eftirrétt við góðar undirtektir.
Uppskrift
Botninn: Bræðið smjörið og hrærið kókosmjöli, sykri og eggi saman við þar til allt er vel samlagað. Setjið deigið í smelluformið og bakið við 180°C í 10 mínútur eða þar til kókosinn tekur á sig gylltan lit. Látið kólna í forminu á meðan fyllingin er útbúin.
Berjacompote: Setjið frosin hindber, sykur og sítrónu í pott og hitið að suðu. Látið sjóða við háan hita í nokkrar mínútur eða þar til blandan þykknar aðeins. Takið af hitanum, veiðið sítrónubátana upp úr og kreistið allan safa úr þeim yfir berin. Kælið.
Hrærið fersku berunum saman við kalda hindberjablönduna rétt áður en berjacompotið er sett ofan á kalda kökuna og hún borin fram.
Miðausturlenskur ilmur fyllti eldhúsið okkar í gær þegar við héldum upp á 84 ára afmælisdag elskulegrar tengdamóður minnar með góðu fólki. Ákveðið var að endurtaka eldhúsgaldra sem fyrst voru reyndir fyrir vestan um páskana og lukkuðust svo vel að nokkrir þeirra yfir 20 sem nutu með okkur kölluðu ákaft eftir uppskrift og nánari lýsingu, svo hér er hún. Tengdasonur minn átti heiðurinn af páskalambinu sem ég lék síðan eftir í gær með ágætis árangri. Upphafleg uppskrift kom úr miðausturlenskri bók sem hann hefur í safni sínu. Fyrir vestan úrbeinuðum við lærið sjálf – ég hef áður lýst einfaldri aðferð við að úrbeina 
Uppskrift
Eins og áður finnst mér langbest að nota heil fræ af broddkúmen og kóríander, rista þau aðeins á þurri pönnu og steyta í mortéli. Kryddbragðið verður svo miklu dýpra, ferskara og betra – en að sjálfsögðu má nota duft með góðum árangri – þetta er bara mín sérviska sem ég hef þörf á að deila með ykkur 🙂
Nuddið lambið með olífuolíu og saltið og piprið. Leggið það flatt með sárið að ykkur og dreifið fyllingunni vel yfir það. Rúllið því saman á lengdina og bindið með eldhúsbandi.
Það fer ekki fram hjá nokkrum sem á annað borð fylgist með matarmenningu að á undanförnum misserum skipar hollusta í matargerð veglegri sess en áður. Sykurinnihald hefur minnkað til muna og uppskriftir af sykurlausum eftirréttum eru mun aðgengilegri. Þessi uppskrift er ein þeirra, ég á að minnsta kosti sex nýlegar matreiðslubækur þar sem bönnum, avakadó, kakó og döðlum er umbreytt í dásemdarbúðing. Þessi er allt í senn; dásamlega einfaldur, ofboðslega góður og brjálæðislega hollur :-) Segja má að uppskriftin sé innblásin frá Hugh Farnley-Whittingstall, Jamie Oliver, Lorraine Pascale, Ellu Woodward og Nigellu Lawson, útkoman getur vart klikkað :-)
Uppskrift (fyrir 4)
Setjið allt innihaldið í matvinnsluvél og maukið saman, athugið að engiferið þarf að vera fínt rifið.