Hráskinkubollar með eggjum og spínati

HráksinkubollarSíðbúin árdegisverðarboð er ákaflega vinsæl hjá Vatnholtsgenginu og um páskana hefur ekki verið slakað neitt á í þeim efnum – heldur þvert á móti  🙂  Það er fátt skemmtilegra en kalla saman gott fólk, njóta góðs matar, segja sögur, gera plön og hlægja svolítið.  Það eru margar uppskriftir á þessari síðu sem henta vel á árdegisverðarhlaðborð.  Á borðum okkar um páskana voru auk hráskinkubollana, gróft og gómsætt brauð, pestó með sólþurrkuðum tómötumrjómaostur með sólþurrkuðum tómötum og ólífum, nokkrir góðir ostar og annað álegg ásamt dásemdar chili-berja-sulta, amerískum pönnukökum og fersku grænmeti og ávöxtum, að ógleymdu dásemdar kaffi og góðum ávaxtasafa.  Hæfileg blanda af hollustu og sætindum.  Það er vel hægt að gleyma sér lengi og njóta bæði samveru og matar í boðum sem þessum.

Hráefni-hráskinkubollarUppskift (fyrir 12) 

  • 12 hráskinkusneiðar
  • 12 egg
  • 200 gr. spínat
  • 12 msk. rifinn ostur
  • bragðlítil olía
  • salt og pipar

HráskinkubollarSmyrjið bollakökuform með örlitlu af bragðslítilli olíu.  Klæðið formin með hráskinku – stundum er gott að skera sneiðarnar í tvennt.  Hráskinkan á að þekja bæði botn og hliðar hvers forms.

Steikið spínatið á pönnu í örlítilli olíu og kryddið með salti og pipar.  Dreifið steiktu spínatinu jafnt í alla bollana.

Setjið um það bil 1 matskeið af rifnum osti í hvert form yfir spínatið.

Brjótið eggin og setjið eitt egg í hvert form.

Bakið við 180°C í 12-15 mínútur.

Árdegisverðarboð

Birt í Árdegisverður (Brunch), Smáréttir | Merkt , , , , , | Færðu inn athugasemd

Baka með ferskum ávöxtum og sítrónurjómakremi

Baka með ávöxtum Ég lofaði að setja inn uppskriftin af þessari dásemdar böku fyrir páska.  Bakan sem ég hef verið að leika mér að í vetur og er ekki bökuð heldur hrá.  Ofan á bökuna set ég  einungis ferska ávexti og ber svo með henni sítrónurjómakrem. Upplögð sem eftirréttur um páska – gott mótvægi við allt súkkulaðið sem óhjákvæmilega fylgir páskum. Í bökunni sjálfri er enginn viðbættur sykur og ekkert hvítt hveiti. Baka sem þessi hentar við hin ýmsu tilefni – dásemdar eftirréttur, ég hef líka boðið upp á hana í árdegisverðarboði og í afmælisboðum -útbúið hana í litlum bökuformum sem eru hæfileg fyrir einn og í stóru bökuformi sem henta fyrir 16-20 manns. Þetta er  baka sem einfalt er að aðlaga að smekk og aðstæðum. Uppskriftina er mjög einfalt að stækka eða minnka, allt eftir því hvað hentar og hvert tilefnið er.

Hrábaka - hráefni Uppskrift

Botn

  • 1 bolli döðlur
  • soðið vatn
  • 1 bolli möndlumjöl
  • 1 bolli kókosmjöl
  • 4 – 5 msk. kókosolía – brædd
  • 1/4 tsk. salt
  • 1/4 tsk. vanilluduft (má sleppa)

HrábökubotnHellið soðnu vatni yfir döðlurnar og látið standa í nokkrar mínútur. Hellið öllu vatninu af döðlunum og kælið þær aðeins.  Setjið allt hráefnið í matvinnsluvél og vel maukið saman.  Notið lausbotan bökuform (24 cm) – gott er að klæða botn þess með bökunarpappír.  Setjið deigið í bökuformið og þjappið vel í botn  og upp með hliðum formsins.  Kælið í kæliskáp í u.þ.b. klukkustund – útbúa má botninn með góðum fyrirvara, geyma í kæli og setja bökuna saman rétt áður en hún er borin fram.

Ofan á bökubotninn 

  • 200 gr. jarðarber
  • 150 gr. bláber/hindber/brómber
  • 200 gr. melóna
  • Aðrir ávextir að eigin smekk eða það sem úrvalið býður upp á hverju sinni.

Skerið ávextina í hæfilega bita.  Raðið þeim fallega á bökuna.  Á sumrin er gaman að nota falleg æt blóm til að skreyta hana enn frekar með s.s. fjólur, morgunfrú og/eða skjaldfléttu.

Sítrónurjómakrem

Hrærið gríska rjómanum og sítrónusmjörinu saman og hrærið blöndunni saman við þeytta rjómann.

Hrábökubotn Best er að setja bökuna saman stuttu áður en hún er borin fram.  Ávöxtunum er raðað fallega á botninn og sítrónusmjörkremið borið fram með henni, þá getur hver og enn valið hve mikið krem hann/hún vill fá með sinni sneið og þeir sem vilja sneiða alveg frá syrki sleppa kreminu, en sítrónusmjörið er það eina sem inniheldur sykur.

IMG_8394

Birt í Bökur, Eftirréttir | Færðu inn athugasemd

Sítrónusmjör (e.Lemon Curd)

Sítrónusmjör (e. Lemmon curd) Í fyrsta sinn útbý ég mitt eigið sítrónusmjör og váááá það er gott, fagurgult og dásamlegt.  Fram til þessa hef ég keypt breskt og ákaflega gott sítrónusmjör hjá Paul í Pipar og Salt á Klapparstígnum – ég mæli alveg með því. En í gærkvöldi útbjó ég mitt eigið og er mjög ánægð með hvernig til tókst, svo ánægð að mér finnst ástæða til að halda uppskriftinni til haga og deila henni með ykkur um leið. Ég hafði lesið nokkrar uppskriftir á netinu og horft á  a.m.k. á 2 myndbönd áður en ég hófst handa. Mitt sítrónusmjör varð frekar þunnt sem er alveg í lagi ef maður notar það út á gríska jógúrt eða í þeyttan rjóma.  Ef maður vill hafa það þykkara má blanda 1 tsk. af kartöflumjöli út í  pottinn um leið og sítrónan, sykurinn og egginn eru hrærð saman yfir vægum hita. Sítrónusmjörið nota ég aðallega út í rjóma og/eða gríska jógurt, t.d. með bökunni sem ég ætla að bera fram sem eftirrétt um páskana og hef lofað að deila uppskrift af hér.  Áður hef ég birt uppskrift að suðrænni pavlovu þar sem sítrónusmjör kemur við sögu og sítrónutertu ala Jamie Oliver, en það er líka gott með vöfflum og rjóma eða bara á ristaða brauðið.

Sítrónusmjör - hráefniUppskrift

  • 4 sítrónur, lífrænar – rifinn börkur og safi úr þeim öllum eða u.þ.b. 125 ml. af safa
  • 200 gr. sykur
  • 3 egg
  • 120 gr. smjör

Rífið börkinn af sítrónunum og gætið þess að taka bara gula partinn.  Pressið safann úr sítrónunum og mælið hann,  125 ml. eru það sem við þurfum í þessa uppskrift.

sítrónusmjörSetjið börkinn, sítrónusafann, sykurinn og eggin í pott og hærið vel saman yfir vægum hita. Hrærið vel saman yfir hitanum þar til blandan fer aðeins að þykkna, tekur um það bil 5 mínútur, en gætið þess að blandan má ekki sjóða.  Takið pottinn af hitanum.  Skerið kalt smjörið í litla bita.  Blandi smjörinu smátt og smátt út í sítrónublönduna og hærið vel saman.

Setjið í sótthreinsaða krukku og geymið í kæli.  Sítrónusmjörið geymist í kæli í nokkrar vikur.

 

 

Birt í Árdegisverður (Brunch), Meðlæti, Pestó, sultur og chutney | Merkt , , | Ein athugasemd

Amerískar pönnukökur með bláberja-hlynsírópi

Amerískar pönnukökur Vorið lætur aldeilis bíða eftir sér þetta árið…… nokkrum sinnum síðustu vikur hef ég verið sannfærð um að nú sé vorið komið. Þegar allur snjór fer úr garðinum og vorlaukarnir byrja að gægjast upp úr moldinni fyllist ég bjartsýni um vor í lofti og blóm í haga, en sei, sei, nei, þá byrjar að snjóa aftur og allt fer á kaf.  Mikið verður vorið kærkomið þegar það loks lætur verða að því að koma til að vera.  Þegar ég leit út um gluggann þennan sunnudagsmorgun og sá allt á kafi í snjó var ekkert annað í stöðunni en að breyta plönum helgarinnar.   Ég hafði ætlað út í garð að taka til í beðunum og setja páskaliljur og aðra vorlauka í potta þessa helgi.  En það er ekkert annað í stöðunni en að breyta þeim plönum og einfaldlega útbúa bestu amerísku pönnukökur þessa heims og gleðjast yfir birtunni sem er svo falleg þessa dagana – já og mun að það styttist í bjartar sumarnætur og ævintýrin sem þeim fylgja.

IMG_8252Uppskrift

  • 2 egg
  • 1 bolli buttermilk* eða AB mjólk
  • 4 msk. bragðlítil grænmetisolía
  • 100 gr. smjör, brætt
  • 180 gr. hveiti
  • 2 msk. hrásykur
  • 4 tsk. lyftiduft

* Buttermilk má útbúa með því að setja 1 msk. af sítrónusafa í bollamál, fylla hann með mjólkinni og láta standa í 2-4 mínútur.

Sírópið

  • 100 gr. frosin bláber (eða fersk á haustin)
  • 2 dl. hlynsíróp

amerískar pönnukökurHrærið egg, mjólk, olíu og smjör saman, gætið að því að kæla smjörið áður en því er blandað saman við.  Blandið þurrefnunum saman og hrærið þeim saman við eggjablönduna. Hrærið þar til allt er vel blandað saman og kekkjalaust.  Látið standa og hvíla á meðan þið útbúið sírópið eða í u.þ.b. 5 – 10 mínútur.

Steikja pönnukökur Steikið pönnukökurnar á pönnu við fremur háan hita. Sjálf nota ég alltaf pönnu sem er viðloðunarfrí og þarf því ekki að smyrja hana.  Stærðin á pönnukökunum fer eftir smekk hvers og eins, en við höfum okkar fremur smáar og stöflum þeim síðan upp nokkrum saman áður en við setjum sírópið og ávextina yfir þær.

Setjið bláberin í pott, hellið hlynsírópinu yfir og hitið rólega að suðu.

Amerískar pönnukökur-2

Berið fram með fersku ávaxtasalati og heitu bláberjasírópinu.

Birt í Árdegisverður (Brunch), Bakstur, Morgunmatur | Merkt , , , , , , | Ein athugasemd

Silungur með fersku kryddjurta- og sítrónusmjöri

Silungsflök með kryddjurtum og sítrónu Eitt af því sem er svo mikilvægt að muna þegar maður vex frá því að vera barn, unglingur og já ungur, dem…..  já ég segi það bara og skrifa – þegar maður er kominn á þann virðulega aldur að vera kallaður miðaldra…..  já já – ég er komin á þann aldur og svei mér ef það er ekki um það bil helmingi skemmtilegra en ég hafði þorað að vona 🙂  En það sem maður þarf sumsé að muna vel er halda áfram að vera ungur í anda.  Muna eftir mikilvægi þess að leika sér, taka frá tíma til þess að upplifa eitthvað nýtt, spennandi og skemmtilegt.  Halda í gleðina, fíflast svolítið og umfram allt velja sér skemmtilega og jákvæða vini. Við erum svo heppin að eiga marga slíka vini, vini sem eru duglegir að minna okkur á þetta – búa til móment sem eru ógleymanleg – bæði fyrir okkur og líka fyrir börnin okkar.

ferdalagUm síðustu helgi lögðum við land undir fót með góðum vinum og fórum norður  – fyrst til Akureyrar og þaðan í Reykjadalinn og Mývatnssveit.  Við fórum á skíði, vitjuðum neta og drógum spriklandi ferskan silung í gegnum vakir á ísilögðu Másvatni, böðuðum okkur í funheitri gjá, gengum í drullusvaðinu í Bjarnarflagi, skoðuðum geitur og forystufé, borðuðum í fjósi á meðan mjaltir stóðu yfir, elduðum góðan mat og borðuðum jafnvel enn betri mat.  Heim komum við endurnærð með fullt af skemmtilegum minningum í farteskinu – og spriklandi ferskan silung úr Másvatni sem fékk fádæma góðar viðtökur hjá Vatnsholtsgenginu í kvöld.

IMG_8131Uppskrift (fyrir 3-4)

  • 2 – 4 silungsflök (eftir stærð)
  • 1-2 msk. olía
  • 30 gr. smjör
  • salt og pipar

Krydd- og sítrónumauk

  • 1 hvítlauksgeiri
  • 2 tsk. kapers
  • hnefafylli af steinselju
  • 10 blöð basilika
  • 1 sítróna – börkur og safi úr 1/2
  • 1 msk. olífuolía

Byrjið á kryddmaukinu.

kryddjurtamaukMerjið hvítlauksgeirann undir hnífsblaði og saxið smátt. Saxið kapersið, steinseljuna og basilikuna smátt.  Rífið ysta lagið af sítrónunni og blandið saman við smátt saxað kryddið.  Setjið allt í skál, kreistið safann úr hálfri sítrónu yfir, bætið olífuolíunni saman við og hrærið vel saman.

silungsflökKryddið silungsflökin með nýmöluðum pipar og góðu sjávarsalti.  Hitið olíu á pönnu og steikið flökin fyrst á roðlausu hliðinn í um það bil 2-3 mínútur, snúið flökunum við og steikið áfram í 2 mínútur.  Bætið smjörinu út á pönnuna og síðan kryddjurtamaukinu, þegar smjörið hefur bráðnað. Hrærið kryddmaukinu saman við smjörið og ausið yfir fiskinn. Gætið þess að ofsteikja fiskinn ekki – hann heldur áfram að eldast í nokkrar mínútur eftir að þið takið hann af hitanum – þess vegna er ágætt að taka hann af pönnunni áður en maður er viss um að hann sé eldaður í gegn.

Berið fram með einföldu og góðu salati og/eða soðnum kartöflum.

Birt í Fiskur og sjávarfang | Merkt , , , , , | Færðu inn athugasemd

Þorskur undir spínat og ricottaþaki

Þorskur undir spínat og rícotta þakiFerskur fiskur er hráefni sem seint verður ofmetið – með lítilli fyrirhöfn og á skömmum tíma er unnt að hrista fram úr erminni veislumáltíð sem á vel við hvort sem er í miðri viku eða um helgar.  Þessi dásemd varð til um daginn í einhverri tilraunmennsku í eldhúsinu í Vatnsholti. Sjálfri finnst mér ricotta ostur hrein dásemd og eftir að hafa farið á ostanámskeið hjá Salt eldhúsi þar sem ég komst af því hve fljótlegt og einfalt er að útbúa sinn eigin ricotta þá dreymir mig eilítið sjaldnar um að heimsækja Ítalíu. En nb! Ítalía verður alltaf uppáhalds – fólkið, maturinn, strendurnar, sveitirnar, vötnin, fjöllin, skíðabrekkurnar….. ég gæti haldið nánast endalaust áfram.  En ítalir eiga ekki ferskan þorsk 🙂  Hinn ítalsk ættaði ricotta passar  ótrúlega vel  við hinn íslenska þorsk – sérílagi með smá basiliku, hvítlauk, parmesan, dash af olífuolíu og helling af spínati – nánast fullkomið par.

Þorskur, spínat og ricottaUppskrift 

  • 700 gr. þorskur
  • 2 msk olía
  • 2 lúkur spínat
  • 8 blöð basilika
  • 2 hvítlauksgeirar
  • 1/2 bolli ricotta ostur
  • 4 msk. rifinn parmesan ostur
  • Salt og pipar

Hitið bakarofninn í 200°C.

SpinatogricottaHitið u.þ.b. 1 msk. af olíu á pönnu og steikið spínatið.  Pressið hvítlaukinn og blandið saman við spínatið.

Blandið saman ricotta osti, gróft saxaðri basiliku, rifnum parmesan og steiktu spínati ásamt hvítlauk.  Saltið og piprið.

spinatogricotta-þorskurSetjið þorskbitana í eldfast mót, penslið með smávegis af olífuolíu og kryddið með salti og pipar.

Jafnið spínatblöndunni ofan á fiskbitana.  Bakið í ofni í um það bil 8-10 mínútur.

IMG_8023Berið fram með góðu salati og ef til vill nýbökuðu brauði – í þetta sinn átti ég afgang að pizzabotnsdeigi í ísskápnum, sem ég flatti út, penslaði með góðri olífuolíu og saltaði með eðalsalti – bakaði síðan við mjög háan hita þar til það var gullið.

En það eru fleiri en heimilfólkið sem gleðjast þegar ferskur fiskur er á borðum í Vatnsholti – Kötturinn finnur lyktina af ferskum fisk um leið og komið er með hann heim úr fiskbúðinni. Eftir nokkur balletspor fær hann smábita af hráum fisk og malar makindalega.

IMG_1025

Birt í Fiskur og sjávarfang | Merkt , , , , , , | Færðu inn athugasemd

Indverskar lambakjötsbollur

Indverksar lambakjötsbollurÉg veit ekki alveg hvað skal segja um þessar kjötbollur annað en að þær eru hreint afbragð. Hugmyndin er fengin úr eldgamalli indverskri matreiðslubók sem ég á. Það er ekki alltaf einfalt að nálgast lambahakk – en ef þið farið í sérverslanir, s.s. Kjöthöllina eða Kjöt og fisk þá er oftast unnt að  láta hakka fyrir sig á meðan maður býður, nú eða hringja á undan sér og panta það.  Sjálf hef ég ekki prófað að nota nautahakk í þessar bollur en án efa breytir það ekki miklu. Vilji maður hins vegar vera trúr indverkri matarhefð þá er það lambið sem verður ofan á 🙂 Magn chili í þessari uppskrift fer eftir smekk hvers og eins og því gef ég upp svolítið bil – hver og einn verður að aðlaga uppskriftina að eigin smekk og munið það er alltaf unnt að bæta smávegis chili við – en ómögulegt að minnka magnið eftir að það er einu sinni búið að blanda því saman við annað hráefni 🙂

indv.kjötbollur_hraefniUppskrift

Bollur

  •  500 gr. lambahakk
  • 1/2 – 1 chili, rauður eða grænn, fræhreinsaður og skorinn smátt
  • 1 hvítlauksgeiri, marinn undir hnífsblaði og smátt saxaður
  • 2 cm bútur engifer – rifin smátt
  • 1/4 tsk garam masala
  • 1/2 tsk salt
  • pipar e. smekk
  • 2 – 3 msk söxuð flatblaða-steinselja eða kóríander

Setjið allt sem hráefnið í matvinnsluvél og vinnið saman í nokkrar mínútur.

kjotbollur_1Mótið 18 – 20 bollur.  Geymið á meðan sósan er útbúin.

Sósa 

  • 1 msk. olía
  • 1/4 tsk sinnepsfræ
  • 1/2 tsk broddkúmen fræ
  • 1 laukur, skorinn frekar smátt
  • 1 hvítlauksgeiri, marinn undir hnífsblaði og saxaður smátt
  • 2 cm engiferrót – rifinn smátt
  • 1 tsk broddkúmen
  • 1 tsk kóríanderduft
  • 1/4 – 1/2 tsk. chili duft
  • 1 dós tómatar, saxaðir
  • 1 msk tómatpúrra
  • 1/2 bolli vatn
  • salt og pipar

Hitið olíuna á pönnu og steikið sinneps- og broddkúmenfræin þar til þau byrja að poppa. Lækkið hitann undir pönnunni og bætið lauk, hvítlauk og engifer út á pönnuna, látið malla í u.þ.b. 5 mínútur. Bætið kryddinu, tómötum, tómatpúrru og vatni út á pönnuna og hrærið vel saman.

indv.kjötbollur3Raðið bollunum út á pönnuna og látið sjóða við vægan hita í u.þ.b. 25 mínútur.

Berið fram með góðum hrísgrjónum og ef til vill grænu salati og nan brauði.

Birt í Indverskir réttir, Kjötréttir | Merkt , , , , | Færðu inn athugasemd

Sítrónukókoskaka

SítrónukókoskakaÞað fer ekki fram hjá nokkrum sem á annað borð les þetta blogg að sunnudagar eru okkar uppáhaldsdagar. Dagurinn sem við reynum að verja saman, förum gjarnan í göngu, sund eða að hjóla, auk þess að verja dágóðum tíma í eldhúsinu.  Þennnan sunnudaginn var bakstur og ostagerð fyrir valinu. Meira um ostagerðina síðar, en fyrst þessi dásemdar kaka með sítrónu og kókos – þetta tvennt saman getur vart klikkað. Veljið góða lífrænt ræktaða sítrónu sem er ekki vöxuð – því við notum bæði safann og fínt rifinn börkinn.

Hráefni-sítrónukókoskakaUppskrift 

  • 180 gr. smjör
  • 150 gr. sykur
  • 3 egg
  • 250 gr. hveiti
  • 2 tsk. lyftiduft
  • 4 msk. kókos
  • 1 sítróna, bæði börkurinn rifinn og safi

Hrærið smjör og sykur saman þar til létt og ljóst. Bætið eggjunum einu í senn saman við og hrærið vel á milli.  Blandið þurrefnunum saman við ásamt sítróunuberkinum og sítrónusafanum og hrærið vel saman.  Bakið í 22 cm springformi við 170°C í 35 – 40 mínútur.  Látið kökuna kólna aðeins áður en þið takið hana úr forminu.  Fallegt er að sigta smávegis af flórsykri yfir kökuna áður en hún er borinn fram. Berið fram með þeyttum rjóma eða grískri jógúrt.

Sítrónukókoskaka

Birt í Árdegisverður (Brunch), Bakstur, Kökur | Merkt , , | Færðu inn athugasemd

Spínat og mangó þeytingur

Spínat og mangó þeytingurEins og svo margir þá finnst mér mjög gott að fá mér þeyting (e.boozt) á morgnana – það er fljótlegt, einfalt og auðvelt að aðlaga að smekk og aðstæðum hverju sinni.  Reyndar finnst mér fjölbreytni í morgunmat mikilvæg svo þeytingurinn er alls ekki alla morgna – en það koma tímabil þar sem ég fæ algjört æði fyrir þeytingum og útbý þá oftar en ekki áður en haldið er út í daginn.  Þessi uppskrift sem hér birtist er í algeru uppáhaldi þessa dagana – svo miklu raunar að ég hef útbúið hann fyrir samstarfsfólk mitt við góðar undirtektir.  Táningurinn minn er líka hrifin af þessum morgunverðardrykk og þá er nú mikið sagt – því hún ólíkt móður sinni, er ekkert sérstaklega hrifin af svona þeytingum 🙂 Auðvitað má leika sér með hlutföllin og aðlaga að eigin smekk – í þessu sem öðru er galdurinn fólgin í góðu hráefni og hugmyndaauðgi.

Spínat og mangó þeytingur - hráefniUppskrift (fyrir 2)

  • 2 dl. frosið mangó
  • 2 lúkur spínat
  • 1 bananani
  • 1-2 döðlur
  • 2 tsk. möndlusmjör
  •  3-4 dl. kókosvatn

þeytingurSetjið allt í blandarann og blandið vel saman. Ef til vill þarf að setja meiri vökva – þá má annað hvort setja aðeins meira kókosvatn eða kalt kranavatn. Hellið í falleg glös og njótið. Á morgnana set ég eina tsk. af hampfræjum ofan á hvert glas. Það er örlítill hnetukeimur af hampfræjunum, þau eru ákaflega næringarrík, innihalda meðal annars mjög hátt hlutfall próteina og eru stútfull af omega 3 og 6 fitusýrur.

Birt í Árdegisverður (Brunch), Drykkir, Grænmetirréttir, Morgunmatur | Merkt , , , , , , , , , , | Færðu inn athugasemd

Mexíkósk tómat- og svartbaunasúpa

Mexíkósk tómat- og svartbaunasúpa Á fyrsta degi ársins 2015 settist Vatnsholts-fjölskyldan niður yfir síðbúnum morgunverði og fór á smá leik Leikurinn snerist um að setja okkur markmið fyrir komandi ár, bæði einstaklings-markmið en líka fjölskyldu-markmið. Eitt af fjölskyldu markmiðunum fyrir árið 2015 er að elda og borða oftar grænmetisrétti. Til þess að fara nú alveg eftir bókinni varðandi markmiðasetninguna þá þurftu öll markmiðin okkar að vera raunhæf, tímasett og mælanlegt (oj ég veit að þetta hljómar ekki mjög skemmtilegt, heldur þvert á móti alltof skynsamlegt og rúðustrikað – en vitið til þetta var mjög skemmtilegt – enda öll markmiðin sem sett voru þennan dag á þann hátt að þau hvetja okkur til að láta drauma okkar rætast og verða betri manneskjur 🙂 Sem dæmi ætlum við ekki bara að elda og borða oftar grænmetisrétti, heldur ætlum við líka að hlaupa í litamaraþoninu, ganga saman yfir fimmvörðuháls, táningurinn ætlar að fara sem skiptinemi í heilt ár og sjálf ætla ég að láta gamlan draum rætast núna í vor – þið fáið vafalaust að heyra meira af því síðar.

Núna eldum við grænmetisrétt að lágmarki einu sinni í viku – rúmur mánuður liðinn af árinu og þetta er bara skemmtilegt. Táningurinn tekur þátt af heilum hug og er mun spenntari fyrir grænmetisréttunum nú en áður, enda tekur hún mikinn þátt í að velja þá. Við reynum að finna okkur tíma á sunnudagseftirmiðdögum til þess að skipuleggja vikumatseðilinn fyrir vikuna framundan nokkurn veginn. Á þann hátt verður töluvert einfaldara að kaupa inn, elda og finna tíma til að setjast saman í dagslok yfir góðri máltíð og fara yfir það sem á dag okkar hefur drifið.

Ein af nýju bókunum í matreiðslubókasafninu okkar veitir okkur mikinn innblástur en það er bók Hugh Franley-Whittingstall -River Cottage – Veg everyday! – Mæli með River Cottage bókunum þær eru hreint dásamlegar – þessi súpa er einmitt innblásinn úr áðurnefndri bók.

Mexíkósk súpa - hráefniUppskrift

  • 2 msk. olífuolía
  • 2 rauðlaukar, smátt skornir
  • 3 hvítlauksgeirar, marðir undir hnífsblaði og saxaður smátt
  • 1 grænn chili – fræhreinsaður og smátt skorinn
  • 1 tsk. broddkúmen
  • 1 msk. oreganó
  • 1 tsk. hunang
  • 1 dós niðursoðnir tómatar
  • 2 msk. tómatpúrra
  • 750 ml. grænmetissoð
  • 1 dós svartar baunir – eða um 250 gr. soðnar
  • safi úr einni sítrónu eða lime
  • salt og nýmalaður pipar
  • nokkrar msk. af ferskum söxuðum kóríander

Ofan á hverja skál (eftir smekk og birgðarstöðu)

  • u.þ.b. 1 msk. grísk jógúrt
  • 1 tsk. saxað kóríander
  • 1 tsk. smátt saxaður rauðlaukur
  • 1 tsk. smátt saxaður avakadó

Ath. að taka smávegis frá af lauknum til að nota ofan á hverja súpuskál þegar súpan er borin fram.

Hitið olíuna í potti og látið laukinn malla við vægan hita í olíunni í um það bil 5 mínútur. Bætið hvítlauk, grænum chili og steyttu broddkúmeni út í og látið malla í 1-2 mínútur til viðbótar.

Næst er oreganó, hunang, niðursoðnir tómatar, tómatpúrra og grænmetissoðinu sett út í pottinn. Kryddað með salti og pipar og látið malla við hægan hita í 10 mínútur.  Bætið svörtu baununum út í og látið malla áfram í 5 mínútur. Þá er sítrónusafa og ferskum kóríander hrært saman við súpuna og hún smökkuð til með salti og pipar.

Berið fram með smávegis af grískri jógúrt og eftir smekk; söxuðum kóríander, rauðlauk og avakadó.

IMG_7678

 

 

Birt í Grænmetirréttir, Mexikóskir réttir, Súpur | Merkt , , , , , | Færðu inn athugasemd