Leit
-
Nýlegar færslur
- Basil pestó – þetta hefðbundna ítalska
- Silungur pakkaður í hráskinku borin fram með bygotto
- Lambaleggir í hægum takti
- Kalkúnabringa „Sous Vide“
- Sæt kartöflumús með sveppum
- Grænmetislasagne
- Bláberjakaka með möndlum, kókos og sítrónu
- Rósmarín kjúklingaspjót með einfaldri kaldri sósu
- Perlubygg með grilluðu grænmeti
Sarpur
Uppskriftir
Tækni
Author Archives: Berglindol
Kanilsnúðar
Löng helgi að baki og vetrarfrí í framhaldsskólum. Mikið ósköp er nú ljúft að taka frí með unglingnum sínum og verja langri helginni með góðum vinum á einum af uppáhaldsstöðunum okkar – Hraunsnefi í Norðurárdal. Áður en við lögðum í´ann … Lesa meira
Spænsk fiskisúpa með chorizo pylsu
Þema þessarar viku í eldhúsinu er að nýta og nota það hráefni sem til er. Ýmsir samverkandi þættir hafa orðið til þess að okkur hættir til að sanka að okkur margvíslegu hráefni og nýting þess gæti svo sannarlega verið mun … Lesa meira
Bakað eggaldin með jógúrtsósu og granateplum
Á ferðalagi mínu í London um daginn fór ég á veitingastað Ottolenghi í Islington, frábær staður sem góð samstarfskona mælti með. Ég hafði aðeins lesið um eigendurna þá Sami Tamimi og Yotama Ottolenghi. Þeir fæddust báðir í Ísrael árið 1968, … Lesa meira
Brauðbollur
Þriðja uppskriftin af brauðbollum á stuttum tíma og það er ástæða fyrir því – við bökum gjarnan brauðbollur og höfum á árdegisverðarborðinu um helgar. Það eru okkar gæðastundir, þegar við köllum saman fjölskyldu og vini, sitjum lengi yfir góðum smáréttum … Lesa meira
Ferskar fíkjur með mozzarella og hráskinku
Það er fátt skemmtilegra en gott matarboð með skemmtilegu fólki – eitt slíkt var í Vatnsholtinu ekki alls fyrir löngu og þá var þessi réttur meðal þess sem var á borðum. Ferskar fíkjur með mozzarella og hráskinku er tilvalinn réttur þegar … Lesa meira
Birt í Forréttir, Grillréttir
Merkt einfalt, Fíkjur, ferskar fíkjur, Hráskinka, Mozzarella, Smáréttur
Færðu inn athugasemd
Tómatsúpa
Góðar súpur eru hinn besti hversdagsmatur og þegar hausta tekur er gott að búa til súpu sem yljar. Þessi er sáraeinföld og dásamlega góð. Svo tekur ekki langan tíma að útbúa hana frá grunni – holl, góð, einföld og fljótleg … Lesa meira
Birt í Súpur
Merkt balsamik-edik, basil, Chili, einfalt, rauðlaukur, súpa, tómatar, tómatsúpa
Ein athugasemd
Klaustur-bleikja í sesamhjúp m/suðrænu salsa
Ferskur fiskur er dásamlegt hráefni sem einfalt og fljótlegt er matbúa – samt hefur það einhvern vegin orðið þannig á síðustu árum að hann er sjaldnar á borðum hjá okkur en æskilegt er. Við höfum einsett okkur að bæta úr því … Lesa meira
Birt í Fiskur og sjávarfang, Meðlæti
Merkt Bleikja, bleikjuflök, Chili, einfalt, Klaustur-bleikja, Mangó, Sesamfræ, Suðrænt salsa
Færðu inn athugasemd
Hæg-eldað nauta rib eye með sveppasósu
Rib eye nautasteik sem er elduð við lágan hita í 10 klst. nánast bráðnar í munni. Það bregst ekki að þegar ég hef boðið upp á þessa steik í matarboðum þá umla gestirnir af ánægju. Þetta er einföld eldamennska og … Lesa meira
Birt í Kjötréttir
Merkt Chili, Hægeldað nautakjöt, hægeldað rib eye, nautakjöt, Rib eye, sveppasósa
10 athugasemdir
Chili- og berjasulta
Ákaflega kær og góð kona færði okkur sultu svipaða þessari að gjöf fyrir ein jólin. Þegar ég falaðist eftir uppskriftinni kom í ljós að henni hafði verið treyst fyrir leyndarmáli sem hún lofaði að fara ekki með lengra. Sultan var … Lesa meira
Sítrónu- og kotasæluvöfflur
Sunnudagsmorgun í september. Rokið lemur tré og gróður í garðinum. Í útvarpinu þylur þulur viðvaranir um vindhraða og akstur. Esjan hvít niður í miðjar hlíðar. Haustið er skollið á og veturinn skammt undan. Í mínum huga rómantískur tími þar sem … Lesa meira