Kanilsnúðar

IMG_9061Löng helgi að baki og vetrarfrí í framhaldsskólum. Mikið ósköp er nú ljúft að taka frí með unglingnum sínum og verja langri helginni með góðum vinum á einum af uppáhaldsstöðunum okkar – Hraunsnefi í Norðurárdal.

Áður en við lögðum í´ann á föstudaginn bökuðum við mæðgur kanilsnúða með marsipani.  Snúðar sem vekja alltaf lukku, enda mjúkir, sætir og góðir og fátt ljúfara en að fá sér gott kaffi eða heitt kakó og nýja kanilsnúða eftir útiveru við vegagerð og trjárækt.

Uppskrift 

  • 1 pakki þurrger
  • 5 dl mjólk
  • 1 dl sykur
  • 1 dl bragðlítil olía t.d. isio
  • 1/2 tsk. salt
  • 12 – 13 dl. hveiti

Fylling

  • Brætt smjör, kanilsykur og marsipan eftir smekk

Blandið gerinu við ylvolga mjólkina ásamt 1 msk. sykri og látið standa þar til gerið fer að freyða.

Blandið hveiti og sykri saman í skál, hellið olíunni og gerblöndunni saman við. Gott er að hnoða saman í hærivélaskál með hnoðara. Látið hefast undir klút í að minnsta kosti 30 – 60 mínútur.

IMG_9045Hnoðið loftið úr deiginu og skiptið því í 2 – 3 hluta.

IMG_9046Fletið hvern hluta deigsins út í fremur ílangan ferning.

IMG_9047Penslið deigið með bræddu smjöri, stráið kanilsykri yfir og rífið loks maripan yfir kanilsykurinn.

IMG_9053Rúllið deiginu jafnt og þétt upp.  Skerið í jafna bita, raðið snúðunum og pappírklædda bökunarplötu.

IMG_9050Þrýstið aðeins  á snúðana með fingrunum, penslið með mjólk og stráið örlítlum kanilsykri yfir.

Látið snúðana hefast á plötunni í 15 – 30 mínútur.

Bakið við 220°C í 5 – 8 mínútur.

Snúðarnir eru bestir nýbakaðir. Upplagt er að frysta þá, stinga þeim síðan frosnum í heitan ofninn í nokkrar mínútur.

IMG_9054

 

 

Birt í Árdegisverður (Brunch), Bakstur | Merkt , , , , , , , | Færðu inn athugasemd

Spænsk fiskisúpa með chorizo pylsu

IMG_9026Þema þessarar viku í eldhúsinu er að nýta og nota það hráefni sem til er.  Ýmsir samverkandi þættir hafa orðið til þess að okkur hættir til að sanka að okkur margvíslegu hráefni og nýting þess gæti svo sannarlega verið mun betri. Það er svo gott og nauðsynlegt að staldra við öðru hverju og spyrja sig að því hvort nauðsynlegt er að fara út í búð áður en réttur dagsins er ákveðinn – kíkja í kistuna, skúffurnar og skápana og útbúa eitthvað dásamlegt úr því sem til er. Þriðjudags-fiskréttur þessarar viku er einmitt þannig til kominn.  Já, það má svo sannarlega spyrja sig hvernig standi á því að allt þetta dásamlega hráefni hafi einmitt verið til í frystikistunni, skúffum og skápum – líklega er ég  haldin matarsöfnunar-áráttu 🙂  Ég fer til dæmis alltaf á matarmarkaði þegar ég er í útlöndum og dreg heim með mér spænska pylsu eða ferska sveppi og fágæt ber – já eða krydd, hnetur, osta, olíu, edik og jafnvel ákveðnar tegundir af hveiti, allt eftir því hvar ég er stödd. Þannig er núna til í mínum skúffum og skápum krydd og krásir frá hinum ýmsu heimshlutum enda hef ég sjaldan ferðast jafn víða og í ár.

En að uppskriftinni sem að þessu sinni er spænsk fiskisúpa með chorizo pylsu, einkar skemmtileg samsetning sem smellpassar. Ég mæli með sterkri chorizo pylsu, þessi sem ég notaði var keypt á Borough markaðnum í London, en Pyslumeistarinn á Hrísateignum útbýr og selur mjög góða pylsur -mæli sannarlega með heimsókn til þeirra.

IMG_9006Uppskrift

  • olífuolía
  • 1 laukur, smátt skorinn
  • 2-3 hvítlauksrif, kramin undir hnífsblaði og skorin mjög smátt
  • 1/2 rauður chili, saxað smátt
  • 1 búnt flatblaðasteinselja
  • 120 gr. Chorizo pylsa
  • 1 msk. hvítvínsedik
  • 1 dós tómatar
  • 1 msk. tómatpúrra
  • 1 l. vatn
  • 50 gr. basmati hrísgrjón
  • 200 gr. soðnar kjúklingabaunir (frosnar* eða úr dós)
  • 300 – 400 gr. fiskmeti (þorskur, lax, rækjur eða eitthvað annað sem hentar)
  • salt og pipar
  • safi úr einni sítrónu

Hitið olíu í þykkbotna potti og látið lauk, hvílauk chili og smátt skorna stilkana af steinseljunni malla í smá stund.

spaensk-supaSkerið chorizo pylsuna í hæfilega þykkar sneiðar og setjið út í pottinn, steikið allt saman í u.þ.b. 5 mínútur eða þar til pylsan fer að brúnast og laukurinn að taka í sig lit frá fitunni úr pylsunni. Bætið tómötum, tómatpúrru, hrísgrjónum og vatni út í pottinn, látið suðuna koma upp og sjóðið við vægan hita í 10 mínútur. Bætið kjúklingabaunum og fisk út í potinn og látið sjóða í nokkrar mínútur, ef þið notið rækjur setjið þær þá út í pottinn rétt áður en súpan er botin fram.  Bætið loks sítrónusafa og steinselju.

IMG_9028Í kvöld var súpan borin fram með þessum bollum, en þær voru til í kistunni góðu.

* Að mínum mati er best er að leggja sjálf baunir í bleyti, sjóða og frysta síðan í hæfilegum skömmtum.

 

Birt í Fiskur og sjávarfang, Súpur | Merkt , , , , , , , , , | Færðu inn athugasemd

Bakað eggaldin með jógúrtsósu og granateplum

IMG_9001Á ferðalagi mínu í London um daginn fór ég á veitingastað Ottolenghi í Islington, frábær staður sem góð samstarfskona mælti með. Ég hafði aðeins lesið um eigendurna þá Sami Tamimi og  Yotama Ottolenghi. Þeir fæddust báðir í Ísrael árið 1968, Sami í austuhlutanum það er þeim Arabíska en Yotama er gyðingur fæddur í vesturhlutanum. Þrátt fyrir að hafa búið alla sína æsku í nokkurra kílómetra fjarlægð frá hver öðrum hittust þeir ekki fyrr en árið 1999 í London en þangað fluttu þeir eftir að hafa flúið heimland sitt tveimum árum fyrr. Þeir hafa verið vinir allt frá fyrsta fundi og gerðust fljótlega samstarfsfélagar enda komust þeir að sameiginlegu áhugamáli og starfsvettvangi. Þeir eiga nú og reka nokkra staði í Lundúnunum, hafa gefið út matreiðslubækur og gert matreiðsluþætti fyrir BBC.

ottolenghiMaturinn á Ottolenghi er með miðaustulenskum blæ, mikið er lagt upp úr grænmeti, ferkst, einfalt og fallegt, þar sem hráefnið fær að njóta sín svo dásamlega gott. Ég á svo sannarlega eftir að lesa hverja línu, nota og njóta matreiðslubókarinnar sem ég keypti á staðnum áritaða og fína.

Þessi réttur er innblásinn af hugmyndum frá þessari heimsókn minni á veitingastað þeirra félaga, af lestri Ottolenghi -The Cookbook og úr myndbandi frá þeim sem vistað er á Youtube.  Þetta er einfaldur réttur – stendur alveg fyrir sínu einn og sér ef maður er á annað borð hrifin af eggaldin, en er líka dásamlegt meðlæti hvort sem er með fisk-, kjöt- eða bragðmiklum baunarétti.

IMG_8948Uppskrift

  • 3 eggaldin
  • 1 dl. olífuolía
  • tímían
  • salt og pipar
  • 1 granatepli

Jógúrtsósa

  • 180 gr. grísk jógúrt
  • 1 msk. olífuolía
  • 1 msk. sítrónusafi
  • 1-2 hvítlauksrif
  • salt

IMG_8975Hrærið  öllu sem á að fara í sósuna saman og látið standa á borði á meðan þið útbúið eggaldinið.

eggaldinSkerið eggaldinið í tvennt eftir endilöngu – hafið stilkinn á – það er fallegra þegar rétturinn er borinn fram. Skerið tíglamunstur í aldinkjötið, skurðurinn á að vera djúpur en gætið þess þó að skera ekki í gegn.

Penslið með olífuolíu, leggið í eldfast mót með sárið upp.  Saltið, piprið og stráið fersku tímían yfir.

Bakið við háan hita – 220°C í 25 – 30 mínútur.

eggaldin2Takið úr ofninum og látið kólna í u.þ.b. 5 mínútur.

Setjið um 1 – 2 msk. af sósu á hvern eggaldin-helming og granateplafræ yfir eftir smekk.

Birt í Forréttir, Grænmetirréttir, Meðlæti, Miðausturlenskir réttir | Merkt , , , , , , , | Ein athugasemd

Brauðbollur

IMG_8474Þriðja uppskriftin af brauðbollum á stuttum tíma og það er ástæða fyrir því – við bökum gjarnan brauðbollur og höfum á árdegisverðarborðinu um helgar. Það eru okkar gæðastundir, þegar við köllum saman fjölskyldu og vini, sitjum lengi yfir góðum smáréttum og spjöllum um landsins gagn og nauðsynjar, skondna hluti og alvarlega, drauma okkar og veruleika -hlægjum svolítið og tökum kannski í spil.

Þessi brauðbolluuppskrift er sú sem lengst hefur fylgt okkur og hefur líklega verið bökuð oftar en nokkuð annað á þessu heimili. Það er lítið mál að breyta uppskriftinni eftir því sem hugurinn og birgðarstaða eldhússkápanna býður.  Stundum setjum við mismunandi fræ á bollurnar, stundum ost, það kemur fyrir að við kryddum deigið með ferskum kryddjurtum úr garðinum, breytum hlutföllum mjölsins, höfum þær mjög grófar eða mjög fínar. Þá er gaman að búa til partýbrauð – það er raða bollunum það þétt að þegar þær bakast þá festast þær saman í skemmtilegan hring eða annað form, allt eftir því hvernig stuði maður er í þann daginn.

Uppskrift

  • 5 dl. mjólk
  • 1 dl. olía
  • 12 gr. þurrger eða 50 gr. pressuger
  • 1 tsk. hunang
  • 2 tsk. salt
  • 500 gr. hveiti
  • 400 gr. heilhveiti (eða rúgmjöl eða annað skemmtilegt gróft mjöl)

Ofan á bollurnar er gott að setja

  • mjólk til að pensla bollurnar eða dýfa bollunum í (betra að dýfa – þannig verður áferðin jafnari)
  • sesam fræ
  • sólblómafræ
  • graskersfræ
  • birki
  • ostur í sneiðum

Velgið mjólkina og hrærið hunangið út í. Leysið gerið upp í volgri mjólkinni þar til það fer að freyða.

IMG_8385Hnoðið öllu saman. Láta hefast þar til deigið tvöfaldast, það tekur að lágmarki 1 klst, gott er að gefa deiginu lengri tíma, bollurnar verða bara betri.

bollurMótið deigið í lengju, skerið í jafna bita og mótið í bollur.  Dýfið bollunum fyrst í mjólk og síðan í fræ eða setjið litla sneið af osti ofan á hverja bollu.  Til þess að fræin festist og haldist vel á bollunum finnst mér best að dýfa bollunum fyrst í mjólkina sem ég set í grunna skál og síðan í fræ sem eru í grunnri skál eða á disk.

Bakið við 200°C í u.þ.b. 15 mínútur.

IMG_8494

Birt í Árdegisverður (Brunch), Bakstur, Brauð | Merkt , , | 3 athugasemdir

Ferskar fíkjur með mozzarella og hráskinku

IMG_8775Það er fátt skemmtilegra en gott matarboð með skemmtilegu fólki – eitt slíkt var í  Vatnsholtinu ekki alls fyrir löngu og þá var þessi réttur meðal þess sem var á borðum. Ferskar fíkjur með mozzarella og hráskinku er tilvalinn réttur þegar þú vilt koma á óvart án þess að hafa allt of mikið fyrir hlutunum. Forréttur eða smáréttur sem engin getur staðist. Borið fram með fersku salati og örlítilli skvettu af góðu balsamik ediki.

IMG_8710Uppskrift f. 8

  • 4 ferkar fíkjur
  • 2 mozzarella-kúlur
  • 8 sneiðar góð hráskinka
  • falleg og góð salatblöð
  • gott balsamikedik
  • 8 trépinnar stuttir

Skerið fíkjurnar í tvennt og mozzarella-kúlurnar í 4 hluta.

IMG_8717Leggið mozzarella-ostinn og fíkjuna saman, vefjið góðri hráskinku utan um og stingið tréprjóni í gegn.

Grillið í nokkrar mínútur á hvorri hlið – hvort sem er undir heitu grilli í ofni eða á útigrillinu.

Setjið gott salat á disk, leggið fíkjuna yfir og dreypið nokkrum dropum af góðu balsamik ediki yfir áður en borið er fram.

Birt í Forréttir, Grillréttir | Merkt , , , , , | Færðu inn athugasemd

Tómatsúpa

IMG_8816Góðar súpur eru hinn besti hversdagsmatur og þegar hausta tekur er gott að búa til súpu sem yljar. Þessi er sáraeinföld og dásamlega góð.  Svo tekur ekki langan tíma að útbúa hana frá grunni – holl, góð, einföld og fljótleg – hvað getur maður beðið um meira á fimmtudagskvöldi 🙂

IMG_8789Uppskrift

  • 1 kg. ferskir tómatar, blanda af ýmsum gerðum, smáum, heilsu-, sherry- og venjulegum
  • 4 hvílauksgeirar
  • 1/2 chili
  •  1 rauðlaukur
  • 3 msk. balsamik edik
  • olífuolía
  • handfylli af ferskri basiliku
  • salt og pipar

Hitið ofninn í 200°C.  Skerið stóru tómatana í fjóra parta, en hafið þá minni heila.  Kremjið hvítlauksgeirana undir hnífsblaði og saxið mjög gróft.  Fræhreinsið chili og skerið í fjóra parta. Setjið tómata, hvítlauk og chili í eldfast mót, hellið u.þ.b. 4 – 5 msk. af góðri olíu yfir og saltið og piprið.  Bakið ofarlega í heitum ofninum í 15 mínútur.

tomatsupaSkerið rauðlaukinn gróft, látið hann svitna í 2 msk. af ólífuolíu í potti við lágan hita í nokkrar mínútur.  Hellið balsamik ediki yfir laukinn og látið krauma þar til tómatarnir eru tilbúnir.

IMG_8799Þegar tómatarnir eru tilbúnir er þeim hellt yfir laukinn í pottinum – setjið nánast alla basilikuna út í pottinn en geymið nokkur falleg basilikublöð til að skreyta súpuskálarnar með þegar þær eru bornar fram.

tomatsup2Maukið vel með töfrasprota eða í blandaranum/matvinnsluvélinni.  Ef blandarinn er notaður er best að kæla súpuna aðeins, og mauka þetta í 2 – 3 skömmtum.

Berið fram með smá slettu af sýrðum rjóma, nokkrum dropum af góðri ólífuolíu og nokkrum fallegum blöðum af basiliku og að sjálfsögðu góðu brauði.

Birt í Súpur | Merkt , , , , , , , | Ein athugasemd

Klaustur-bleikja í sesamhjúp m/suðrænu salsa

IMG_8632Ferskur fiskur er dásamlegt hráefni sem einfalt og fljótlegt er matbúa – samt hefur það einhvern vegin orðið þannig á síðustu árum að hann er sjaldnar á borðum hjá okkur en æskilegt er. Við höfum einsett okkur að bæta úr því og elda fisk a.m.k. 2 – 3 í viku í vetur. Þriðjudagskvöld verða til að mynda með fáum undartekningum fiskikvöld. Stefni að því að setja velheppnaðar tilraunir, sem vert er að endurtaka hingað inn.

Þriðjudags-fiskréttur þar-síðustu viku var Klaustur-bleikja. Ég hef bara verið svo upptekin við vinnu og síðustu daga við að njóta lífsins (meira um það síðar) svo tími til að útfæra uppskriftina, velja myndir og koma öllu hingað inn hefur ekki gefist fyrr en nú.  En þessi uppskrift er sannarlega þess virði að deila og endurtaka.

IMG_8607

Uppskrift (fyrir 5) 

  • 1 kg. bleikjuflök (mæli með klausturbleikjunni – fersk og góð)
  • 2 msk. fiskisósa
  • 2 msk. semsamolía
  • 3 msk. olífuolía
  • 1 msk. hunang (fljótandi)
  • 1/2 chili fræhreinsað og saxað mjög smátt
  • 2 hvítlauksgeirar, kramdir undir hnífsblaði og saxaðir mjög smátt
  • 2 msk. ljós sesamfræ
  • 2 msk. svört sesamfræ (má sleppa og nota þá meira af þeim ljósu)
  • svartur pipar

Blandið fiskisósu, olíu, hunangi, chili, hvítlauk, sesam fræjum og pipar saman í skál og hrærið vel.

Setjið fiskflökin í eldfast mót og hellið sesamblöndunni yfir flökin og dreifið vel.  Látið standa á borði í u.þ.b. 15 mínútur eða á meðan þið útbúið suðrænt salsa.

IMG_8612

Bakið í ofni undir funheitu grilli í u.þ.b. 8 mínútur – fer eftir því hve stór og þykk flökin eru.  Góð regla sem Friðgeir á Holtinu kenndi mér er sú að þegar þú heldur að fiskurinn sé alveg að verða tilbúinn, taktu hann þá úr ofninum eða af pönnunni, hann heldur nefninlega áfram að eldast í smá stund og fátt er betra en hárrétt eldaður ferskur fiskur.

Suðræn salsa 

  • 1 Mangó
  • 1/2 rauðlaukur
  • 1/4 gúrka
  • 1 tómatur
  • 1/2 paprika
  • 2 vorlaukur
  • ferst kóríander eða flatblaðasteinselja
  • 1 msk. ferskur sítrónusafi
  • 1 msk. góð ólífuolía
  • örlítið salt

IMG_8619Skerið mangó og grænmeti frekar smátt og blandið saman.  Hellið sítrónusafa og olífuolíu yfir og saltið örlítið.

Fallegt er að dreifa nokkrum skeiðum af salsa yfir fiskinn áður en hann er borinn fram

Berið fram með góðum hrísgrjónum eða grænu salati.

Birt í Fiskur og sjávarfang, Meðlæti | Merkt , , , , , , , | Færðu inn athugasemd

Hæg-eldað nauta rib eye með sveppasósu

IMG_8766Rib eye nautasteik sem er elduð við lágan hita í 10 klst. nánast bráðnar í munni. Það bregst ekki að þegar ég hef boðið upp á þessa steik í matarboðum þá umla gestirnir af ánægju.

Þetta er einföld eldamennska og hentug í matarboð.  Steikin býður þolinmóð í ofninum eftir að verða borin á borð þegar gestirnir koma og maður getur gefið sér tíma til að mingla í rólegheitunum.

Það er tvennt sem skal hafa í huga, annað er að vakna nægilega snemma til að koma steikinni örugglega í ofninn 10 klst. áður en gestirnir koma.  Hitt er að val á steikinni, leggið áherslu á að kaupa góða steik, beint frá býli eða í góðri sérverslun sem sérhæfir sig í að selja kjöt – við eigum nokkrar slíkar hér í Reykjavík. Ef kjötið er gott þá getur þú treyst því að steikin verður ein sú besta sem þú hefur bragðað.

IMG_8654Uppskrift f. 8 manns

  • 2 kg. nauta rib eye
  • 1 – 2 msk. olía
  • 1 tsk. chili flögur
  • 2 hvítlauksgeirar
  • salt og nýmalaður pipar

IMG_8661Nuddið steikina með olíu, hvítlauk, chili flögum, pipar og salti.

IMG_8666Steikið kjötið við háan hita á útigrilli eða pönnu á öllum hliðum – eða þar til það er vel brúnað.  Tekur u.þ.b. 5 mínútur.

IMG_8670Setjið kjötið á grind í ofnskúffu og bakið við 65° C í 10 klst. eða þar til kjarnhitinn er um 60° í miðju kjötsins.

Í þetta sinn bárum við steikina fram með hasselback kartöflum, steiktu grænmeti og dásamlegri sveppasósu elduð frá grunni með nokkrum tegundum af bæði villtum sveppum og ræktuðum.

Sveppasósa uppskrift

  • 1 sellerí stöngull
  • 1 laukur
  • 2 gulrætur
  • 2 hvítlauksgeirar
  • 1/4 chili
  • 1/2 l. nautasoð (góður tengingur og vatn)

sosaSkerið grænmetið smátt og steikið í olíu við lágan hita í  u.þ.b. 10 mínútur.  Hellið nautasoðinu yfir og látið sjóða undir loki í 30 – 40 mínútur.  Takið pottinn af hitanum og maukið með töfrasprota.

  • 250 gr. blandaðir sveppir
  • 25 gr. smjör
  • 1 peli rjómi
  • 1 tsk. sósulitur (má sleppa – en sósan verður óneitanlega fallegri á litinn)

Steikið sveppina í smjöri og blandið þeim saman við grænmetis-soðið. Bætið rjóma og sósulit út í og látið malla við hægan hita í 10 – 15 mínútur

Birt í Kjötréttir | Merkt , , , , , | 10 athugasemdir

Chili- og berjasulta

IMG_8646Ákaflega kær og góð kona færði okkur sultu svipaða þessari að gjöf fyrir ein jólin. Þegar ég falaðist eftir uppskriftinni kom í ljós að henni hafði verið treyst fyrir leyndarmáli sem hún lofaði að fara ekki með lengra. Sultan var hins vegar svo góð að ég hætti ekki leit minni fyrr en mér tókst að mastera mína eigin uppskrift sem birtist nú hér. Þessa sultu geri ég stundum fyrir jólin og færi kærum vinum ýmist með jólakorti eða jafnvel í stað jólakorts þegar sá gállin er á fjölskyldunni – það er jólakorta-ritleti, en sú leti hefur háð okkur meira og meira í seinni tíð. Þá er gott að geta gripið í góðgæti í krukkur til að láta fólk vita hve vænt okkur þykir um það. Þó það styttist í jólin er ég ekki byrjuð að búa til jólagjafasultur – en skellti í þessa um daginn því hún er svo góða allan ársins hring, til dæmis með ostum. Krukkurnar skreytti ég og á tilbúnar því eins og ég hef áður sagt – það er svo gaman að kippa með sér einni fallegri krukku til að gefa við góð tækifæri.

IMG_8340Uppskrift

  • 6 rauðir chili
  • 2 rauðar paprikur
  • 3 bollar ber ( núna notaði ég 2 bolla jarðaber og 1 bolla brómber)
  • 1/2 bolli rauðvínsedik
  • 3 bollar sykur + 2 tsk.
  • 2 tsk. sultuhleypir

IMG_8344Skerið papriku og chili í grófa bita og fræhreinsið.  Setjið í matvinnsluvél og maukið vel.

chili-sultaSetjið papriku og chili maukið í pott ásamt sykri og edik.  Látið suðuna koma upp og sjóðið við vægan hita í u.þ.b. 15 mínútur.  Setjið berin út í og sjóðið í 5 mínútur í viðbót.

Blandið saman sultuhleypi og 2 tsk. sykri og setjið út í pottinn, hrærið vel saman og látið   sjóða í 1-2 mínútur til viðbótar.  Setjið á fallegar sótthreinsaðar krukkur og lokið strax á meðan sultan er heit.

Birt í Meðlæti, Pestó, sultur og chutney, Vinsælar uppskriftir | Merkt , , , , | 4 athugasemdir

Sítrónu- og kotasæluvöfflur

IMG_8429Sunnudagsmorgun í september. Rokið lemur tré og gróður í garðinum. Í útvarpinu þylur þulur viðvaranir um vindhraða og akstur. Esjan hvít niður í miðjar hlíðar. Haustið er skollið á og veturinn skammt undan. Í mínum huga rómantískur tími þar sem kertaljósin eru loks brúkuð aftur eftir nokkurra mánaða hvíld svo ekki sé minnst á arinininn í stofunni.  Það er líka rómantískt og ljúft að baka góðar vöfflur á svona sunnudagsmorgnum. Þessi uppskrift er innblásin af síðunni hjá Joy the Baker (www.joythebaker.com) og svo góð að henni varð ég að deila hér.

IMG_8572Uppskrift 

  • 1 1/2 bolli hveiti
  • 2 tsk. lyftiduft
  • 1/2 tsk. sódaduft
  • 1/2 tsk. salt
  • 3 msk. sykur
  • 1 msk. ferskur rifin börkur af sítrónu
  • 75 gr. brætt smjör
  • 2 stór egg
  • 1 tsk. vanilla
  • 3 msk. ferskur sítrónusafi
  • 1/2 bolli kotasæla (hrærið mjög vel með gaffli)
  • 3/4 bolli mjólk
  • 2 tsk. blá birkifræ

Byrjið á að blanda saman sykrinum og sítrónuberki í lítilli skál og hæra vel.

Blandið öllum öðrum þurrefnum saman, þ.e. hveiti, lyftiduft, sódaduft og salti.  Bætið sítrónusykrinum saman við.

  • vofflur_1

  • Hrærið eggjum, mjólk, kotasælu, smjöri og vanillu vel saman í annari skál.
  • Blandið nú eggjablöndunni saman við þurrefnin og gætið að því að hræra ekki of mikið. Að síðustu er birkifræjunum blandað út í.

vofflur_2Hitið vöfflujárnið vel og bakið vöfflurnar þar til þær eru gullinbrúnar.  Berið strax fram með ferskum berjum og hlynsírópi eða á hefðbundin íslenskan hátt með sultu og rjóma.

IMG_8435

Birt í Árdegisverður (Brunch), Bakstur, Morgunmatur | Merkt , , , , , , , | 3 athugasemdir