Eplamúffur í hollari kantinum

IMG_7283Sjónvarpsþættir og bækur Nigellu Lawson hafa um langt skeið verið uppáhalds og eru enn þó margar uppáhalds bækur hafi bæst við í matreiðslu-bókarstaflann minn á síðustu árum. Eplamúffurnar eru upprunar í einni af bókunum hennar Nigellu og eru svo góðar að yfirleitt er ég beðin um uppskriftina þegar ég ber þær fram.  Ég hef mætt með þær í morgunkaffi í vinnuna, í karphúsið í langri samninngalotu á laugardagsmorgni, á brunch-borðið á pallinu, í afmælisveislu tengdamömmu og svo mætti lengi telja og alltaf  eru þær jafn vinsælar.  Hæfilega sætar, mjúkar og innihaldið í hollari kantinum – já hreint dásamlegar.

IMG_7247

Uppskrift

  • 2 epli
  • 1 og 3/4 bolli fínt spelt (má nota hveiti en speltið er mun betra)
  • 2 tsk. lyftiduft
  • 1 tsk kanill
  • 2/3 bollar hrásykur eða ljós púðusykur
  • 1/2 bolli hunang
  • 1/4 bolli hrein jógúrt
  • 1/2 bolli olía (bragðlítil – oftast nota ég ISO4)
  • 2 egg
  • 1/4 bolli möndlur m/hýði grófsaxaðar

Ofan á múffurnar

  • 4 tsk. hrásykur eða ljós púðusykur
  • 1 tsk. kanill
  • 1/4 bolli möndlur m/hýði grófsaxaðar

Aðferð

Takið hýðið af eplunum og skerið í litla bita.

Hrærið egg, sykur, hunang, jógúrt og olíu saman.  Blandið þurrefnunum saman og hærið saman við útí eggjahæruna.  Að síðustu er eplunum hrært saman við.

Ég nota alltaf múffuform úr málmi og raða pappírsformum eða silikonformun í það áður en ég set deigið út í.  Á þennan hátt verða múffurnar fallegri í laginu.  Uppskriftin er í um það bil 18 múffur. Skiptið deiginu jafnt í formin. Blandið því sem á að fara ofan á þær saman í skál og dreifið því jafnt yfir deigið.

Bakið við 180°C í um það bil 20 mín.

epla_muffins

Birt í Bakstur | Merkt , , , , | 2 athugasemdir

Þreföld súkkulaðisæla

IMG_1018_2Mikilvægur hluti hverrar veiðiferðar er félagsskapurinn og maturinn. Síðasta sumar var mér boðið með í kvennaveiðiferð í Laxá í Kjós – ákaflega skemmtilegur veiðistaður, enn skemmtilegri veiðifélagar og maturinn í hávegum hafður.  Í ár var svo aftur haldið af stað í kvennaveiðiferð og nú í Minnivallarlæk. Hamingjustundir við árbakkann er stór þáttur þessara veiðiferða – hittast á miðri síðari veiðivaktinni, skiptast á sögum, hlægja og njóta góðra veitinga í fallegri náttúru.  Allar leggja sitt af mörkum í veitingum og slegið er saman í gott léttvín með. Í fyrra kom ég með súkkulaðiköku sem innheldur þrjár tegundir af súkkulaði – alger bomba sem hefur skreytt hverja stórveislu í okkar fjölskyldu síðustu árin, en er líka bökuð og tekin með í ferðalög -það er fátt skemmtilegra en setja punktinn yfir i-ið í lok máltíðar og bera þessa dásemd fram á ólíklegustu stöðum. Ég hafði hugsað mér að mæta með einhverja nýjung á bakkann í ár, en óskað var sérstaklega eftir þreföldu súkkulaðisælunni aftur í hamingjustundina við árbakkann. Upphaflega uppskriftin er frá bresku eldhúsgyðjunni Nigellu Lawson, en hefur þróast og þroskast í gegnum tíðina og nú hef ég steypt saman uppskriftinni hennar  Nigellu, annari sem fengin var hjá fyrrum samstarfskonu og breytt að eigin smekk.  Það er gaman að skreyta bitana á ýmsan hátt – oft sigta ég smá flórsykri yfir hana og hendi svo fullt af ferskum blómum eða berjum yfir, nú eða eins og á þessum myndum, set smá rjómatopp á hvern bita og skreyti með fjólum úr garðinum.  Stór hluti ánægjunnar er jú útlitið – ekki satt?

Minnivallalaekur_2013

Uppskrift 

  • 3oo gr. suðusúkkulaði
  • 100 gr. rjómasúkkulaði
  • 350 gr. smjör
  • 6 egg
  • 350 gr. sykur
  • 1 msk. vanilludropar (heimagerðir eru bestir)
  • 200 gr. hveiti (sigtað)
  • 300 gr. hvítt súkkulaði

Bræðið saman suðusúkkulaði, rjómasúkkulaði og smjör við mjög lágan hita eða yfir vatnsbaði.

Hrærið egg og sykur vel saman – eða þar til sykurinn er vel uppleystur.  Bætið vanilludropunum út í og hrærið síðan súkkulaði-smjör-blöndunni rólega saman við.  Sigtað hveiti er þá hrært saman við. Hvíta súkkulaðið saxað gróft, gott er að hafa bitana stóra svo þeir bráðni ekki við baksturinn.  Hvíta súkkulaðið er að lokum bætt við blönduna.

Þekjið skúffukökuform með bökunarpappír og hellið blöndunni í – formið sem ég nota er 26 x 32 cm. Athugið að bökunarpappírinn skiptir miklu máli upp á að ná kökunni á einfaldan hátt úr forminu.  Bakið við 180°C í 35 – 45 mín.   Skerið kökuna í hæfilega bita og skreytið að vild.

3fold_sukkuladisaela

Birt í Bakstur, Eftirréttir, Kökur | Merkt , , , , , , | Færðu inn athugasemd

Pasta með risarækju og sítrónu

IMG_6820Einfaldur og góður pastaréttur stendur alltaf fyrir sínu. Unglingurinn á heimilinu er ekki mikið fyrir rækjur og því var þessi réttur eldaður um daginn þegar við hjónin vorum bara tvo heima.  Fljótlegt, einfalt og ákaflega gott – mæli eindregið með þessum rétti með góðu hvítvíni á heitum sumardegi þegar hitinn er nægilegur til að borða utandyra – dekka upp borð út á palli eða svölum og njóta.  Hér skiptir öllu máli að hráefnið sé fyrsta flokks og að ofelda hvorki pasta né rækjur.

IMG_6812Uppskrift fyrir 2 

Marenering fyrir rækjurnar

  • 1 sítróna – safi og börkur
  • 1/2 dl. ólífuolía
  • 2 hvítlauksrif – kramin undir hnífsblaði og söxuð smátt
  • 1/2 chilli saxaður smátt
  • 1/2 búnt basilika gróft söxuð
  • 150 gr. risarækjur hráar
  • 200 gr. gott pasta – við notuðum Linquina frá Afeltra – sem fæst í Frú Laugu
  • salt og nýmalaður pipar

Öllu blandað vel saman  sem á að fara í mareneringuna, risarækjurnar settar út í og látið marenerast í 1 – 2 klst.

Sjóðið pasta skv. leiðbeiningum á pakka – gætið að sjóða alls ekki of lengi.  Veiðið risarækjurnar upp úr leginum og steikið á velheitri pönnu þar til þær verða bleikar.  Lækkið hitann á pönnunni og hellið mareneringunni út á pönnuna.  Hitið að suðu.  Þegar pastað er soðið er öllu blandað vel saman, saltað og piprað eftir smekk og borið fram strax – með góðu hvítvíni.

IMG_6816

 

Birt í Ítalskir réttir, Fiskur og sjávarfang, Pasta | Merkt , , , , , , | Ein athugasemd

Lasagne – uppáhald fjölskyldunnar

IMG_6748

Það er örugglega ekki mikil þörf á fleiri lasagne uppskriftum á netið, en þessi er fyrir elsku Matta bróður og stelpurnar mínar sem elska þetta lasagne. Ég veit að þau munu nýta, nota og njóta þessara uppskrifta hér.  Gerið svo vel elskurnar – það er sirka svona sem þetta gerist 🙂  Nóta bene – þetta er einfalt þrátt fyrir langlokuna sem hér birtist.

Uppskrift og aðferð

Kjötsósan

  • 1 msk. ólífuolía
  • 1 msk. smjör
  • 2-3 sneiðar gott beikon skorið í litla bita
  • 1 laukur fínsaxaður
  • 1 selleristöngull skorinn í teninga
  • 1 gulrót skorin í teninga
  • 1/4 – 1/2 chilli finsaxað
  • 2 hvítlauksrif, fínsöxuð
  • 450 gr. nautahakk
  • 1 dós tómatar
  • 1 msk. tómatkraftur
  • 300 ml. nautasoð
  • nýmalaður pipar
  • salt

IMG_6725Bræðið smjör með olífuolíu á stórri pönnu.  Bætið beikoni, lauk, gulrót, sellerí og chillí saman við og látið krauma við vægan hita í 10 mín.  Hrærið oft í á meðan svo ekki festist á pönnunni. Hækkið hitann og bætið hakkinu á pönnuna og steikið þar til allt er gegnsteikt. Bætið tómötum, tómatkrafti, hvítlauk og nautasoði á pönnuna. Kryddið með salti og pipar eftir smekk – mikilvægt er að nota gott salt og góðan pipar – þetta klassíska  krydd gerir kraftaverk ef gæðin eru rétt. Látið suðuna koma upp, lækkið þá hitann og látið malla undir loki í að lágmarki 1 klst.  Gott er að gera kjötsósuna daginn áður eða að morgni ef útbúa á réttinn að kvöldi, á þann hátt verður bragðið dýpra og betra, en þetta er svo sannarlega ekki nauðsynlegt.

  • Bechamel sósa (hvíta mjólkursósan)
  • 40 gr. smör
  • 40 gr. hveiti
  • 600 ml. mjólk heit
  •  1 tsk. salt
  • 1 tsk.pipar nýmalaður
  • 1 tsk. múskat (nýrifin er best)

Bræðið smjör í potti – passið að hafa hitann ekki of mikinn.  Hrærið hveiti saman við og búið til hveitibollu.  Hrærið mjólkinni saman við í smáum skömmtum.  Kryddið með salti, pipar og múskat.  Látið malla í smá stund og hrærið stöðugt í á meðan.

Samsetning

  • Lasagne plötur, þurrkaðar eða ferskar
  • Rifinn ostur

Setjið þunnt lag af kjötsósu í botn á eldföstu móti,  raðið lasagne plötum ofan á. Þunnt lag af Bachamel sósu er sett ofan á plöturnar, þá kjötsósa, lasagneplötur og hvít sósa, endið á kjötsósu.  Stráið góðu lagi af rifnum osti yfir efsta lagið.

Bakið í forhituðum ofni við 180 – 200°C í 25 – 30 mínútur. Borið fram með góðu salati.  IMG_6729

Birt í Ítalskir réttir, Kjötréttir, Pasta | Merkt , | Ein athugasemd

Rabarbara og jarðarberja mylsnubaka m/engifer

IMG_6782Garðurinn okkar í Vatnsholti var ein helsta ástæða þess að við keyptum íbúðina okkar fyrir réttum 9 árum. Stór garður, með ágætri aðstöðu til að rækta svolítið grænmeti og kryddjurtir.  Fyrsta sumarið setti ég niður rabarbara sem ég fékk úr garði vinkonu minnar og hef notið uppskerunnar á hverju ári síðan.  Uppskeran er ekkert mikil, dugar í nokkrar bökur og fáeinar sultukrukkur.  En við njótum þess líklega bara enn betur að trítla út í garð eftir uppskerunni. Í gær var einmitt komið að því að ná í fyrstu stilka þessa sumars sem er óvenjuseint á ferð í ár.

Ekki man ég hvaðan ég fékk þessa uppskrift og hef eytt talsverðum tíma í dag og í gær að fletta í gegnum blöð og bækur til að finna það út – en án árangurs. Bakan er alltaf bökuð eftir minni, enda uppskrift sem þolir það alveg að hlutföllin breytist lítið eitt.  En í þetta sinn punktaði ég hjá mér innihaldið og hún heppnaðist alveg hreint prýðilega – það gerast einhverjir galdrar þegar rabbabari, jarðarber og engifer bakast undir sætu og grófu loki.  Þessi réttur hentar vel sem eftirréttur, er líka ljómandi góður í kaffiboðinu og dásamlegur sem sæti bitinn í brunch boðinu. Berið fram heitt með góðum vanilluís eða þeyttum rjóma.IMG_6738

Uppskrift

Fylling

  • 350 gr. rabbabari skorinn í uþ.b. 1 cm bita
  • 250 gr. jarðarber (mega vera frosin)
  • 5 cm bútur af fersku engifer – raspað smátt
  • safi úr 1/2 sítrónu
  • 50 gr. sykur

Blandið vel saman og setjið í botninn á eldföstu móti

Lokið

  • 110 gr. smjör
  • 80 gr. sykur
  • 80 gr. hveiti
  • 80 gr. grófir hafrar

Setjið þurrefnin í skál, skerið smjörið í litla bita og hrærið saman við þurrefnin þar til blandan er eins og gróf mylsna.  Myljið yfir fyllinguna.  Bakið við 190°C í 40 – 50 mínútur eða þar til gylltur litur er komin á lokið.

IMG_6747

IMG_6769

Birt í Bakstur, Bökur, Eftirréttir, Vinsælar uppskriftir | Merkt , , , , , , | 4 athugasemdir

Grófar spelt brauðbollur m/graskersfræjum

IMG_6644Brauðbakstur er heillandi og skemmtileg iðja, gróf, fín, með geri eða gerlaus, súrdeigs, lítil, stór, löng, stutt, bökuð í potti, í formi, á plötu eða steini – jafnvel grilluð- möguleikarnir eru endalausir. Oftast bökum við brauðbollur úr hefðbundnu gerdeigi á þessu heimili, en síðasta eina árið eða svo erum við líka svolítið að leika okkur með súrdeigs-brauðhleifa -þær tilraunir munu án efa rata hér inn síðar.

Þessar bollur eru grófar og góðar og í þeim er lítið ger.  Þær fá að kaldhefast, það er vökvinn er hafður kaldur og deigið fær að hefast yfir nótt.  Tilvalið er að smella í deigið á föstudags- eða laugardagskvöldi og baka bollurnar síðan á laugardags- eða sunnudagsmorgni.   Nýbakaðar bollur með einföldu og góðu áleggi eru himneskur morgunverður og ómissandi á brunch-borðið.

IMG_0781

  • 350 gr. gróft spelt
  • 250 gr. fínt spelt
  • 5 1/2 dl. kalt vatn
  • 1 tsk. salt
  • 1 tsk. þurrger
  • 1 tsk. hunang
  • 1 dl. graskersfræ
  • mjólk til að pennsla bollurnar með

Setjið allt í skál nema graskersfræin og hnoðið vel saman.  Breiðið plastfilmu yfir skálin og látið deigið hefast yfir nótt.  Morguninn eftir er deigið slegið niður og mótað í bollur – stærð þeirra fer eftir smekk – okkar eru oftast í minni kantinum, en þannig getum við fengið okkur margar bollur með mismunandi áleggi.

Bollurnar eru penslaðar með mjólk og dýft í graskersfræ.  Bakaðar við 220°C í 15 – 25 mínútur –  fer eftir stærð.

IMG_6639

Birt í Árdegisverður (Brunch), Bakstur, Brauð, Morgunmatur | Merkt , , , , , , , | 2 athugasemdir

Pavlova m/jarðaberjum og esdragon

IMG_6665Eftir að ég eignaðist iPad opnuðust nýjar víddir varðandi áskrift af erlendum tímaritum. Matartímarit á borð við hin amerísku Bon Appetit og Everyday Food og ástralska Donna Hay fæ ég nú send reglulega á viðráðanlegu verði.  Þetta auðgar svo sannarlega andann í eldhúsinu. Hugmyndin af þessari uppskrift er úr nýjasta Bon Appetit – frá hinni hollensku Yvette Van Boven sem ég hef áður minnst á.  Jarðarberin fékk ég í Frú Laugu á föstudaginn – full stór askja af nýjum íslenskum jarðarberjum á sanngjörnu verði, svo fersk, sæt og góð að það var ekki hægt annað en að freistast. Ferskt esdragon vex nú í kryddjurtabeðinu mínu úti í garði – ég keypti fyrstu plöntuna í fyrra og átti ekki von á að hún myndi koma upp aftur í vor, en mér til mikillar gleði og töluverðrar undrunar þá spratt plantan upp úr moldinni á hæla graslauksins sem ávallt er fyrsti boðberi þess sem sumarið færir okkur – fullt af ferskum og góðum kryddjurtum sem svo einfalt og auðvelt er að rækta.

Pavlovan reyndist ákaflega góð, svo góð að ekki var einn biti eftir þegar borðhaldinu lauk.  Ég á áreiðanlega eftir að baka hana aftur og þá er nú gott að vera búin að koma henni hérna inn þar sem einfaldara að finna hana hér en í öllum Bon Appetit blöðunum á iPadinum.

Uppskrift

  • 3 stórar eggjahvítur
  • 1/2 bolli sykur
  • 1 tsk. fenniku-fræ – létt steytt
  • 3-4 bollar góð jarðaber
  • 1 tsk. fínt rifin börkur af sítrónu
  • 1. msk sítrónusafi
  • 1/3 bolli sykur
  • 1 peli rjómi
  • 150 gr. rjómaostur eða grísk jógúrt
  • 2 msk. esdragon fersk lauf

IMG_0771Hitið ofninn í 120°C.

Þeytið eggjahvítur þar til þær eru nánast stífþeyttar, bætið sykrinum smátt og smátt saman við og stífþeytið. Undir lokin er fennikufræjunum bætt út í blönduna, þau eiga að vera létt kramin, alls ekki steytt í duft. Teiknið hring á bökunarpappír og smyrjið marensinum á hringinn, kantarnir eiga að vera aðeins þykkari en miðjan. Bakið í 2 klst. Slökkvið þá á ofninum og leyfið pavlovunni að kólna í honum.

IMG_0778

Klukkustund áður en kakan er borin fram eru jarðaberin skorin í bita, sítrónusafi, sítrónubörkur og sykur blandað saman í stóra skál og jarðaberjunum blandað saman við. Látið standa í u.þ.b. 30 mínútur.

Þeytið rjómann.  Hrærið rjómaostinn eða grísku jógúrtina vel og blandið þeyttum rjóma saman við.

Smyrjið rjómablöndunni á pavlovubotninn, setjið jarðaberjablönduna ofan á og skreytið með ferskum esdragon laufum.

IMG_6657

Birt í Bakstur, Eftirréttir, Kökur | Merkt , , , , | Ein athugasemd

Sítrónu og kryddjurta kjúklingur á teini og couscous með bökuðum tómötum og klettakáli

IMG_6685Couscous er skemmtilegt meðlæti sem passar vel með mörgum réttum, bæði fisk- og kjötréttum.  Í kvöld vorum við með grillaðan kjúkling á teini kryddaðan með sítrónu og ferskum kryddjurtum. Meðlætið var enn ein tilraunin með couscous sem í kvöld var einstaklega gott – svo gott að það verðskuldar færslu í bloggheimum.

Uppskrift:

Kjúklingur 

  • 4 kjúklingabringur
  • 2 – 3 rauðar paprikur – skornar í stóra bita
  • 1 – 2 rauðlaukar  – skorinn í báta
  • 2 hvítlauksgeirar – skornir smátt eða marðir í hvítlaukspressu
  • 3 msk. tímian ferskt
  • 2 msk. óreganó – ferskt
  • 1 tsk. cumin – steitt
  • 1 sítróna – safi og rifinn börkur
  • 3 msk. ólífuolía
  • 1 tsk. hunang
  • salt og pipar

IMG_6646

Blandið saman í stórri skál; olíu, hunangi, sítrónusafa og rifnum sítrónuberki, hvítlauk, tímian, óreganó og cumin.  Skerið hverja bringu í u.þ.b. 6 jafnstóra bita, setjið í kryddlögin  og látið standa við stofuhita í 30 – 60 mínútur.

Þræðið kjúkling, papriku og rauðlauk upp á teina og grillið í 15 – 20 mínútur.  Snúið reglulega.  Saltið og piprið eftir smekk undir lok grilltímans – fallegt er að strá ferskum kryddjurtum yfir teinana áður en þeir eru bornir fram.

Couscous með bökuðum tómötum og klettakáli

  • 1 bolli Couscous
  • 2 bollar gott kjúklingasoð
  • 1 msk. góð ólífuolía
  • 1 msk. sítrónusafi nýkreistur
  • 250 gr. konfekt- eða sherry tómatar
  • 4 hvítlauksgeirar
  • 1/2 chilli rauður smátt skorinn
  • 2-3 msk. tímían ferskt
  • 2-3 msk. ólífuolía
  • 2 tsk. gott salt
  • klettakál – hnefafylli

Sjóðið gott kjúklingasoð og setjið couscousið út í – slökkvið undir pottinum og hafið þétt lok á honum.  Látið standa í 10 – 15 mínútur.  Þá er olífuolíu og sítrónusafa hrært saman við couscousið, lokið sett aftur á pottinn og látið bíða þar til tómatarnir eru tilbúnir.

Skerið tómatana í 2 – 4 parta eftir stærð, kremjið hvítlauksgeirana með flötu hnífsblaði og skerið í grófa bita. Blandið tómötum, hvítlauk, chilli, ólífuolíu, tímían, og salti saman í eldfast mót og bakið við 220°C í 15 mínútur.  Kælið í nokkrar mínútur og blandið saman við couscousið.  Setjið í skál og bætið hnefafylli af klettakálið út í.

IMG_6650

IMG_6651

Birt í Grillréttir, Kjötréttir, Meðlæti | Merkt , , , , | Færðu inn athugasemd

Fiskisúpa

IMG_6629Fáar súpur toppa góða fiskisúpu. Létt en þó saðsöm og stútfull af hollustu sem börn og fullorðnir kunna vel að meta.  Þetta er einföld uppskrift sem gott er að grípa í þegar tíminn er naumur  – hráefnalistinn er einungis til viðmiðunar, það gerir lífið bara skemmtilegra að nýta og nota það sem til er hverju sinni og prufa sig áfram. Ég fór í kistuna og fann til sjávarfang sem beið eftir að komast í súpu og í grænmetisskúffunni okkar er nú oftast til laukur, gulrætur og paprika. Graslaukurinn í garðinum kallar á mig á hverjum degi  svo fagurgrænn og bústinn sem hann er orðinn.  Ég stelst líka í steinseljuna sem brýst úr moldinni en þyrfti að fá smá frið í viku eða tvær til að verða að myndarlegum brúski -vonandi lifir hún þetta áreiti af.  Þessar æfingar að skrifa niður uppskriftirnar um leið og eldað er reynir svolítið á um leið og ég skemmti mér konunglega við þessar æfingar sem matarbloggið er – hvur veit hvert þetta leiðir, en á meðan þetta er skemmtilegt þá mun ég halda þessu áfram.

IMG_6608Uppskrift fyrir 4

  • 700 gr. fiskur og sjávarfang að eigin vali, ýsa, þorskur, lax, silungur, rækjur, hörpuskel
  • 1 msk. olífuolía
  • 1 laukur smátt saxaður
  • 1 stöngull sellerí skorinn í bita
  • 2 hvítlauksgeirar skornir mjög smátt
  • 2 gulrætur skornar í litla teninga
  • 1/2 chilli kjarnhreinsað og skorið mjög smátt
  • 2 tsk. fiskikrafur
  • 1 tsk. gott fiskikrydd (ég nota krydd sem ég keypti á markaði í Marrakesh -Pottagaldrar eru líka með gott krydd)
  • salt
  • pipar nýmalaður
  • 1 dós niðursoðnir tómatar
  • 8 dl vatn
  • 1-2 dl. rjómi (má sleppa – hann var bara til í ísskápnum í dag)
  • 1 papríka kjarnhreinsuð og skorinn smátt
  • graslaukur og steinselja skorin smátt

Mýkið laukinn, selleríið og hvítlaukinn í ólífuolíunni við vægan hita. Bætið gulrótum, chilli og kryddi saman við og steikið í smá stund við vægan hita.  Setjið tómata, vatn og fiskikraft út í pottinn og látið malla í 15 mínútur. Bætið loks rjóma og fisk út í og leyfið suðunni að koma upp – en ekki sjóða súpuna lengi – við viljum alls ekki að fiskurin verði ofsoðinn.  Stráið papriku, graslauk og steinselju yfir áður en súpan er borin fram.

IMG_6619

Með súpunni bárum við fram snittubrauð frá Ásgeiri í Sandholsbakaríi – súrdeigsbrauð sem keypt var fyrir 5 dögum og var ennþá mjög gott – sérílagi þegar búið var að meðhöndla það á eftirfarandi hátt:

  • kljúfa í tvennt
  • skera í stóra bita
  • grilla í ofni í nokkrar mínútur
  • nudda með hvítlauksrifi sem skorið var í tvennt
  • smyrja með heimagerðu pestó
  • setja 2 þunnar sneiðar af tómati á hverja sneið
  • strá rifnum osti yfir
  • grilla aftur í ofni í nokkrar mínútur

IMG_6624

Birt í Fiskur og sjávarfang, Súpur | Merkt , , , , | Ein athugasemd

Eplaterta – gamaldags og góð

IMG_6517 Upprunalega kemur þessi uppskriftin úr gömlu Gestgjafablaði sem er dottið í sundur og því tímabært að koma henni á annað form.  Eins og svo margar uppskriftir sem fylgja manni lengi þá hefur þessi tekið svolitlum breytingum í gegnum tíðina – við höfum til að mynda skipt smjörlíki út fyrir smjör og minnkað sykurinnihaldið.  Tertan er best nýbökuð, en geymist vel í nokkra daga.  Hún verður svolítið tignarlegri ef maður notar lítið form það er 22 cm í stað 26 cm – en hvoru tveggja gengur.

Uppskrift

  • 250 gr. smjör
  • 200 gr. sykur
  • 4 egg
  • 250 gr. hveiti
  • 1 tsk. lyftiduft
  • 3-4 epli – helst græn
  • kanilsykur eftir smekk

Byrjið á að afhýða, kjarnstinga og skera eplin í þunna báta.

Hrærið smjör og sykur vel saman og bætið eggjunum út í einu í senn og hrærið vel. Hrærið hveit og lyftidufti saman við blönduna.

Hellið heilmingnum af deiginu í smurt, hveiti stráð klemmuform (22 eða 26 cm).

IMG_6504Raðið eplum fallega ofan á og stráið kanilsyktri yfir. Setjið afganginn af deiginu ofan á eplin og sléttið vel úr. Raðið eplum ofan á og stráðið kanilsykri yfir.

IMG_6510

IMG_6512Bakið við 150°C í 60-80 mínútur – fer eftir stærð formsins og ofninum sem bakað er í.  Stingið prjóni í kökuna til að vera viss hvort hún er bökuð.  Látið kökuna kólna í forminu a.m.k. til hálfs áður en hún er tekin úr því.

IMG_6522

Birt í Bakstur, Kökur | Merkt , , , , , | 2 athugasemdir