Grísk jógúrt með hindberjamauki og múslí

 Árdegisverðarboð um helgar eru fullkomin leið til að kalla saman þá sem þér þykir vænt um.  Nokkrir góðir réttir og skemmtilegt fólk, dásamlegri byrjun á laugardegi eða sunnudegi er vandfundin.  Réttirnir þurfa ekki að vera margir eða flóknir.  Hér er einn sem er mjög einfaldur, fallegur og ákaflega góður.

 Uppskrift

  • 150 gr. frosin hindber
  • 2-3 msk. hunang
  • 1 1/2 dós grísk jógúrt (500 gr.)
  • músli (heimagert er best – sjá uppáhaldsuppskriftina hér
  • nokkur fersk hindber (má sleppa)

 Setjið hindber og hunang í pott og hitið að suðu, látið malla í 5 mín.  Kælið.

 Skiptið hindberjamaukinu jafn á milli 4 fallegra glasa eða setjið í krukkur.  Gríska jógúrtin fer ofan á hindberjamaukið og loks músli.  Skreytið með nokkrum ferskum hindberjum ef þið eigið þau til.

Birt í Árdegisverður (Brunch), Morgunmatur | Merkt , , , , , | Færðu inn athugasemd

Súpa m/rauðum linsum, sætum kartöflum og kókos

Ég gæti byrjað þessa færslu á endalausum útskýringum eða afsökunum á bloggleysi síðustu 2ja mánaða – eða bara með því að óska ykkur gleðilegs árs og þakka kærlega fyrir það gamla – miklu smartara er það ekki?  Ég er svo óskaplega spennt fyrir þessu nýja ári og um leið svo óendanlega þakklát fyrir árið sem var að líða.

Það hefur líklega ekki farið fram hjá ykkur frekar en mér hve margir nota janúar til að taka mataræði sitt til endurskoðunar.  Margir taka „þurran“ janúar, nú eða taka ýmislegt út úr mataræði sínu, tímabundið eða til langframa s.s. sykur, hveiti, kornvörur, kjöt, fisk ofl. Veganúar er átak sem hefur vakið töluverða athygli – markmið þess er að vekja fólk til umhugsunar um dýra- og umhverfisvernd og áhrifin sem neysla okkar hefur bæði á velferð dýra og umhverfið og um leið á heilsu okkar. Góð og þörf áminnning sem má lesa meira um hér.  Sjálf borða ég kjöt og fisk og er ekki að sjá fyrir mér að hætta því á næstunni þó ég sé orðin töluvert meðvitaðri neytandi á síðustu árum. Ég nota janúar til að setja mér nokkur velskilgreind og skemmtileg markmið fyrir komandi ár og eitt af markmiðum mínum fyrir árið 2016 er að sóa minna.  Ég hef ákveðið að skilgreina sóun svolítið vítt, ætla að vera meðvitaðri um neyslu mína, eyðslu, tíma ofl. um leið og ég er staðráðin í að njóta líðandi stundar betur. Ég er þegar byrjuð í eldhúsinu heima hjá mér og er mun meðvitaðri í innkaupum, nýti hráefni betur, nota afganga meira og oftar, hendi minna og er um leið meðvituð um að ég á eftir að hrasa á þessari vegferð – en það er líka allt í lagi – lífið er til þess að njóta 🙂

Þessi uppskrift er tileinkuð þeim sem eru að taka þátt í Veganúar – uppskriftin inniheldur engar dýraafurðir, er ljómandi góð, raunar svo góð að ég rétt náði afgangi í eina litla krukku sem ég tók með mér í vinnuna daginn eftir og borðaði í hádeginu – það fór því ekkert til spillis.

 Uppskrift

  • olífu olía
  • 2 sætar kartöflur (u.þ.b. 7-800 gr.)
  • 2 rauðlaukar, skornir í báta
  • 1 tsk. boddkúmen fræ (eða duft, sjá*)
  • 1 tsk. kóríander fræ (eða duft, sjá*)
  • 4 hvítlauksgeirar, marinn undir hnífsblaði og saxaður smátt
  • 1/2 – 1 rauður chilli, smátt saxaður
  • 125 gr. rauðar linsur
  • 1 l. gott grænmetissoð
  • 200 ml. kókosmjólk (í fernu) eða 1 dós
  • safi úr 1/2 sítrónu
  • salt og pipar

ofan á

  • kókosflögur – ristaðar
  • steinselja eða ferskur kóríander,  gróft saxað.

Hitið ofninn í 180°C.   Skrælið sætu kartöflurnar og skerið í litla bita, u.þ.b. 1,5 x 1,5 cm Skrælið laukinn og skerið í báta, u.þ.b 2 cm. Setjið kartöflur og lauk í ofnfast fat.

Ristið broddkúmen og kóríander fræin á þurri pönnu í nokkrar mínútur, kælið aðeins og steytið í mortéli.

 Stráið steyttu kryddinu yfir kartöflurnar og laukinn, saltið og piprið og dreifið um það bil 2-3 msk. af olífuolíu yfir og blandið vel saman.  Bakið við 180°C í 20-30 mínútur eða þar til bakað í gegn og aðeins farið að brúnast.

 Á meðan kartöflur og laukur bakast, hitið um það bil 2 msk. olífuolíu í víðum potti og hitið hvítlauk og chilli í olíunni í u.þ.b. 1 mín.  Bætið þá rauðum linsum út í pottinn og veltið um í aðra mínútu eða svo.  Hellið góðu grænmetissoði  og kókosmjólk yfir linsurnar og látið suðuna koma upp.  Látið krauma við vægan hita í 20 mínútur. Bætið kartöflum og lauk út í pottinn þegar það er fullbakað.

Maukið súpuna með töfrasprota eða í blandara/matvinnsluvél. Bætið sítrónusafanum saman við og kryddið til með salti og pipar eftir smekk. Ef súpan er of þykk, þynnið hana út með smávegis af vatni.

Berið súpuna fram heita með góðu brauði, setjið smávegis af ristuðum kókosflögum og steinselju ofan á hvern disk.

*Þessu má sleppa og nota duft í stað fræa – en sérviska mín segir að bragðið verði svo miklu dýpra og betra með því að nota fræin, rista þau og steyta.

Birt í Grænmetirréttir, Súpur | Merkt , , , , , , , , , , , | Færðu inn athugasemd

Salat með heitreyktri gæsabringu

Salat.m.heitreyktrigaesabringuÞetta salat rekur uppruna sinn til góðs vinar, veiðimanns og eðal-kokks sem hefur það að aðalstarfi að kvikmynda – Jón Víðir Hauksson. Jón Víðir er mikill smekkmaður á mat og  ástríðan sem hann setur í matargerðina skilar sér í réttum sem eru töfrum líkastir. Ég man ekki hve mörg ár eru síðan hann útbjó salat líkt þessu fyrir okkur, en svo gott var salatið að við höfum árlega reynt að herma það og gott ef ekki náð nokkurn vegin að leika það eftir. Ég á vart nægjanlega lýsandi orð yfir bragðgaldrana sem leynast í þessu salati – ég skora því bara á ykkur að prófa.  Hlutföllin eru ekki heilög, en fyrsta flokks hráefni og góður félagsskapur er nauðsyn.

Hráefni heitreykt gæsabringusalatUppskrift

  • 1 heitreykt gæsabringa, skorin í örþunnar sneiðar
  • 100 gr. blandað gott salat, klettkál er að okkar mati nauðsynlegt í blönduna
  • 100 gr. hindber eða jarðarber
  • 100 gr. bláber
  • 3-5 gráfíkjur, þurrkaðar, skornar í þunnar sneiðar
  • 3-5 döðlur, skornar í þunnar sneiðar
  • 60 gr. gráðsostur
  • 60 gr. pekan hnetur
  • 1 msk. tamarin sósa

Bláberja-dressing (vinaigrette) 

  • 1/2 dl. olífuolía
  • 1 msk. bláberja- eða rauðvínsedik
  • 1 msk. balsamik edik, ath. gæða edik tryggir mun betri dressingu
  • 2 msk. bláberjasulta
  • salt og pipar

Gæsabringurnar heitreykjum við í félagi við vini okkar, en ég hef áður skrifað um villbráðar-gourmet-daginn okkar hér.  Ég hef séð heitreyktar gæsabringur til sölu í Ostabúðinni á Skólavörðustíg og í Kjöt og fisk á Bræðraborgarstíg, eflalítið er unnt að nálgast þær í fleiri sælkeraverslunum.

Byrjið á að útbúa dressinguna. Setjið allt hráefnið í skál og þeytið saman með gaffli.

Ristið pekan-hneturnar á heitri pönnu í nokkrar mínútur, gætið þess að standa yfir þeim allan tímann svo þær brenni ekki.  Undir lokin hellið einni msk. af tamarin sósu út á pönnuna og hristið saman þar til sósan hefur þakið allar hneturnar og þornað á þeim.  Kælið og saxið mjög gróft.

Raðið salatinu fallega á fat.  Skerið gæsabringuna, gráfíkjur og döðlur í þunnar sneiðar og blandið fallega saman við salatið á fatinu. Raðið fersku berjunum yfir, myljið því næst gráðostinum yfir, stráið gróft söxuðum hnetunum yfir og dreypið loks bláberja-dressingunni yfir salatið – sjálf set ég um það bil helminginn yfir salatið, en ber hinn helminginn með í skál svo hver og einn bæti út á að eigin smekk.

Berið fram sem forrétt eða smárétt.Heitreykt gæsabringusalat

Birt í Forréttir, Salat, Smáréttir, Villibráð | Merkt , | Færðu inn athugasemd

Krydduð eplakaka með súkkulaði og sítrónu

Krydduð eplakakaVá hvað vikurnar þjóta áfram – það er að líklega merki um það hve lífið er skemmtilegt , sannkallaðr heilbrigðisvottur, er það ekki 🙂

Í dag er það þreytt en sæl kona sem hugsar um frið, hlustar á Lennon og smellir í eplaköku. Kaka þessi hefur verið þróuð síðustu vikur og er núna búin að ná þeirri fullkomnun sem sóst var eftir.  Þreytan sem ég mintist á er þó ekki svo mikil að ég ætla að smella mér í Þingvelli, ganga á eitt fjall, njóta nátturunnar, haustlitanna og góða veðursins sem skartar sínu fegursta í dag.

Á morgun er lítill fjölskylduárdegisverður þar sem þessi dásemd fær að prýða borðið.

Krydduð eplakaka - hráefniUppskrift 

  • 2 epli
  • 1 msk. dökkt romm
  • 1 sítróna, safi og fínt rifinn börkurinn
  • 2 egg
  • 120 gr. sykur
  • 1,25 dl. olía
  • 150 gr. hveiti
  • 1,5 tsk. lyftiduft
  • 1 tsk. múskat
  • 1 tsk. fennelfræ, fínt möluð í mortéli
  • 100 gr. dökkt súkkulaði (70%), skorið í fremur smá bita

Hitið ofninn í 180°C

Krydduð eplakaka1Blandið rommi, sítrónusafa og fínt rifnum berki af sítrónunni í skál.  Skerið eplið í litla bita og setjið út í skálina með romm og sítrónublöndunni. Blandið vel saman og setjið til hliðar á meðan deigið er undirbúið.

Krydduð eplakaka2Þeytið egg og sykur mjög vel saman eða þar til blandan er ljós og létt.  Hellið olíunni rólega út í og hrærið vel saman.  Þegar hér er komið er best að nota sleif til að blanda hveiti, lyftidufti, múskat og fennelduftinu saman við.  Þá er eplunum og romm- og sítrónusafanum blandað rólega saman við og loks súkkulaðinu.

Hellið deiginu í pappírsklætt og/eða vel smurt formkökuform.  Bakið í 50-55 mínútur við 180°C eða þar til prjónn sem stungið er í kökuna miðja kemur hreinn út.

Kælið kökuna í forminu í um það bil 15 mínútur áður en það er tekið úr forminu.  Með því móti verður kakan mýkri.

Njótið með góðu kaffi eða kaldri mjók.

Birt í Árdegisverður (Brunch), Bakstur | Merkt , , , , , , , | Ein athugasemd

Ommeletta með grænkáli, sólþurrkuðum tómötum og chorizo

Ommeletta með grænkáli, sólþurrkuðum tómötum og chorizo Það hefur verið lítið um nýjar færslur á vefnum að undanförnu – en það er svo sannarlega ekki til marks um að lítið sé um að vera í eldhúsinu mínu – þvert á móti bíða svo margar hugmyndir að færslum eftir úrvinnslu að ég veit vart hvar á að byrja 🙂  Til þess að koma mér í gírinn þá valdi ég að setja inn nýjasta réttin, einfaldan eggjarétt sem var á brunch borðinu þennan sunnudagsmorgun. Ég veit fátt dásamlegra en að fá skemmtilegt fólk í heimsókn, elda góðan mat, njóta og spjalla um heima og geima.  Í dag komu ákaflega kærir vinir til okkar í árdegisverð (brunch) – við bökðum sítrónuvöfflur eftir þessari uppskrift, náðum í gott súrdeigsbrauð hjá Sandholti, settum gott álegg, grænmeti og osta á bakka týndum til sultur, chutney og pestó sem eru alltaf er til í ísskápnum – útbjuggum hressandi drykk úr appelsínum, grænkáli, engifer og fleira góðgæti – helltum upp á gott kaffi og sátum síðan og nutum í 3 klukkustundir – gæðastund sem seint verður ofmetin. En aftur að þessum einfalda rétti – ommelettu – eins og stundum þá er þetta meira aðferð en heilög uppskrift – um að gera að aðlaga að eigin smekk og því sem til er hverju sinni. Við eigum svo mikið af grænkáli í garðinum að það hentar vel að nota það – en spínat virkar örugglega jafnvel.

Ommeletta hráefniUppskrift

  • 4 egg
  • 1-2 msk góð olía til að steikja upp úr
  • 4-5 vænir stilkar af grænkáli
  • 4 sólþurrkaðir tómatar, skornir í bita
  • 16 sneiðar af chorizo pylsu
  • 40 gr. feta ostur
  • salt og pipar og ef vill örlítið af chili
  • nokkur fersk basilblöð – grófsöxuð

Hitið ofninn í 180°C.

Fjarlægið stilkinn af grænkálinu og skerið kálið í grófa bita. Hitið olíuna á pönnu og steikið kálið í nokkrar mínútur þar til að mýkist. Skerið sólþurrkuðu tómatana í fremur smáa bita og bætið út á pönnuna.  Í þetta sinn útbjó ég ommeletturnar í litlum Lodge pönnum og skipti því grænkáls- og tómatablöndunni jafnt á hverja pönnu – en þennan rétt má auðveldlega útbúa í einni stærri pönnu, þeirri sömu og þið notið til að steikja kálið á.  Ég vel að útbúa omelltur í pönnu sem getur farið inn í ofn, þá þarf ég ekki að snúa þeim við á pönnunni. Raðið chorizio pylsunni ofan á grænkálsblönduna. Brjótið ostinn í grófa bita og dreifið yfir.

OmmelettaHrærið eggin saman með gaffli, ef þið notið litlar pönnur eða form sem eru hentug fyrir einn – þá er best að hræra hvert egg fyrir sig og hella yfir pönnuna/formið.

Bakið í 180°C heitum ofni í 10 – 20 mínútur eftir því hvort þið eruð með eina stóra pönnu eða 4 minni.

Stráið gróft saxaðri basiliku yfir réttinn áður en hann er borin fram. Njótið yfir skemmtilegu spjalli með góðum vinum.

Ádegisverður

 

 

Birt í Árdegisverður (Brunch), Morgunmatur, Smáréttir | Merkt , , , , , , , | 2 athugasemdir

Brauð með ricotta, sætum kartöflum og pestó

Um helgar er gaman að hafa aðeins fyrir hádegis- eða árdegisverðinum.  Þetta er nýji uppáhalds rétturinn okkar, sætar karöflur, ricotta og pestó á góðu súrdeigsbrauði – hreint afbragð. Uppskrift (fyrir 4)

  • 1 sæt kartafla
  • 1 msk. olífuolía
  • 1 tsk. ferskt tímían
  • salt og pipar
  • 4 sneiðar súrdeigsbrauð
  • Basil – pestó, heimagert er best, sjá uppskrift hér
  • Ricotta ostur
  • salat og ef til vill falleg æt blóm og ber

Hitið ofninn í 180°C

 Skrælið sætu kartöfluna og skerið í fremur litla bita , ca 1 x 1 cm. Setjið kartöflubitana í ofnfast form, hellið olíu yfir kryddið með salti, pipar og tímían og blandið vel saman.  Bakið í ofni í 12 – 15 mínútur.

 Grillið eða ristið brauðsneiðarnar, smyrjið um það bil 1 tsk. af pestó á hverja þeirra. Setjið u.þ.b. 2 msk. af ricotta osti á hverja brauðsneið.  Skiptið bökuðum sætum kartöflubitum á milli sneiðanna og dreypið svolitlu af pestó yfir.  Kryddið með svolitlu af salti og pipar.

Birt í Árdegisverður (Brunch), Smáréttir, Vinsælar uppskriftir | Færðu inn athugasemd

Ricotta ostur – heimagerður

 Vatnsholtsgengið er mjög hrifið af Ítalíu og ítölskum mat og hefur farið í ófáar sumarleyfis- og skíðaferðir þangað.  Við erum svo heppin að eiga ítalska dóttur hana Carlottu sem dvaldi hjá okkur í eitt ár fyrir nokkrum árum og heldur mjög góðu sambandi við okkur – kemur um það bil árlega til okkar, velbirg af ítölsku góðgæti og kennir okkur þá alltaf eitthvað nýtt í eldhúsinu. Ricotta ostur er eitt af því hráefni sem oft hefur reynst snúið að finna hér á landi og því var það hrein dásemdar uppgötvun þegar ég komst að því hve einfalt er að útbúa hann heima. Carlotta okkar kenndi okkur það síðast þegar hún var hjá okkur og eins fór ég á námskeið hjá Salt -eldhúsi þar sem farið var yfir nokkra tegundir af ostum sem einfalt er að útbúa.  Hér er galdurinn að gæta að sérstaklega vel að hreinlætinu.  Ég sýð grisjuna alltaf og passa upp á að setja hitamælinn í soðna vatnið til að hann sé örugglega hreinn áður en ég byrja.  Ricotta er notaður í mjög marga ítalska rétti, bæði í bakstur og mat.  Í þetta sinn útbjó ég þennan fyrir grænmetislasagne – sem birtist sem næsta færsla.

 Uppskrift 

  • 3 l. mjólk
  • 1 tsk. sítrónusýra (eða 4-5 msk. borðedik)
  • 1 -2 tsk. salt

Áhöld 

  • Góður pottur með þykkum potti
  • Hitamælir
  • Sigti
  • Grisja/ostaklútur

Setjið mjólk, sítrónusýru (eða borðedik) í pott.

 Hitið við vægan hita þar til hitamælirinn sýnir 90°C – þetta getur tekið allt að 45 mínútur.  Takið pottinn af hitanum og látið standa í 10 mínútur.

 Setjið sigti yfir skál og leggið sótthreinsaðan grisjuklút ofan í sigtið.  Fleytið ostinn yfir í klútinn með gataspaða. Leggið horn klútsins yfir ostinn til að hylja hann og leyfið mysunni að leka af honum í um 5-15 mínútur, eða lengur ef óskað er eftir þurrari osti. Stráið salti yfir ostinn og veltið honum rólega um.

 Nú er osturinn tilbúin til notkunar hvort sem er hreinn í bakstur eða mat, eins má krydda hann eftir smekk og nota ofan á ost eða brauð.

Birt í Annað, Vinsælar uppskriftir | Merkt , | 2 athugasemdir

Brómberja og grænkáls þeytingur

 Það er fátt betra en fjölbreytni – tala nú ekki um þegar einfaldleiki og hollusta fylgja með. Hvað er betra á morgnana en eitthvað fljótlegt, einfalt hollt og gott? Nú þegar garðurinn minn er stútfullur af grænkáli og spínati þá nota ég tækifærið og útbý skemmtilega þeytinga – þessi er einn þeirra sem verðskulda færslu – í honum er hæfilegt blanda af grænmeti og ávöxtum  og AB mjólk að auki, en henni má að sjálfsögðu skipta út fyrir möndlu-, eða haframjólk. Eins og alltaf þegar um þeytinga er að ræða þá má að sjálfsögðu leika sér með hlutföllin og aðlaga að eigin smekk – galdurinn er fólgin í góðu hráefni og hugmyndaauðgi. Njótum dagsins!

 Uppskrift 

  • 1 banani 
  • 2 bollar grænkálsblöð 
  • 1 bolli frosin brómber 
  • 1 bolli AB mjólk eða hrein jógúrt  
  • 1/2 bolli ferskur appelsínusafi (u.þ.b. 1/2 – 1 appelsína)
  • 1 tsk. rifin engiferrót
  • 1 tsk. hunang
  • hampfræ ofan á glasið

Setjið allt í blandarann og blandið vel saman. Hellið í falleg glös eða á flösku og njótið. Ég hef áður sagt frá því að á morgnana set ég eina tsk. af hampfræjum ofan á hvert glas þegar ég útbý þeyting. Hampfræin eru mjög holl, innihalda meðal annars mjög hátt hlutfall próteina og eru stútfull af omega 3 og 6 fitusýrur. Það er örlítill hnetukeimur af hampfræjunum sem ég kann vel að meta þegar þau eru sett ofan á glasið eða þeim hært varlega saman við drykkinn eftir að honum er hellt í glas eða flösku.

Birt í Árdegisverður (Brunch), Drykkir, Morgunmatur | Merkt , , , , , , , , , | Færðu inn athugasemd

Grillaður humar

Grillaður humarMikið er humar góður matur – sem einfalt er að elda svo úr verði veislumáltíð.  Með þessari uppskrift hef ég birt uppskriftir þar sem humarinn er grillaður á útigrilli,  bakaður í ofni, steiktur og notaður á pizzu, í súpu, risotto, já og allar eru uppskriftirnar svo góðar að þær kalla undantekningalaust á mjög sterk jákvæð viðbrögð. Í þetta sinn grilluðum við hann á útigrillinu og að sjálfsögðu var smjör, hvítlaukur, sítróna og steinselja með í för, enda nánast ómissandi þegar humar er annars vegar. Meðlætið var einfalt, salat, gott súrdeigsbrauð með hvítlaukssmjöri og kalt hvítvín – sannkallaður veislumatur.

Grillaður humar - hráefniUppskrift (fyrir 2 sem aðalréttur eða 4 sem forréttur)

  • 500 gr. humar í skel – við vorum með stóran og góðan humar
  • 60 gr. smjör
  • 3 msk. olífuolía
  • 4-5 hvítlauksgeirar
  • sítróna (börkur af hálfri lífrænni sítrónu) hinn helmingur í bátum borinn fram með
  • 1 lúka fersk steinselja, söxuð smátt
  • salt og nýmalaður pipar

HumarHreinsið humarinn, klippið upp í skelina, losið humarinn og lyftið honum að hálfu upp úr skelinni. Hreinsið burt svörtu görnina.

Humar, smör, hvítlaukur og sítrónaBræðið smjörið við vægan hita og bætið olífuolíu saman við. Pressið hvítlaukinn og setjið út í smjörblönduna ásamt ríflega helmingnum af söxuðu steinseljunni og sítrónuberkinum. Kryddið með góðu salti og nýmöluðum pipar.

Humar á grilliPennslið humarinn með smjörblöndunni  Setjið humarinn á grillið, fyrst sú hlið sem er upp úr skelinni – grillið í um það bil 2 mínútur.

Humar á grilli llSnúið við, penslið og grillið áfram í 2 mínútur eða þar til humarinn er tilbúinn. Penslið með smjörblöndunni áður en þið takið humarinn af grillinu.

Gott er að smyrja gott súrdeigsbrauð með hvítlaukssmöri og grilla á útigrillinu í 1-2 mínútur á hvorri hlið.

Berið strax fram með einföldu salati, hvítlauksbrauði og köldu góðu hvítvíni.

Grillaður humar ll

Birt í Fiskur og sjávarfang, Forréttir, Grillréttir | Merkt , , , | 2 athugasemdir

Heitreyktur silungur og salat

Heitreyktur silungur og salatKvöldverðurinn í Vatnsholti þetta sunnudagskvöld var með ansi góðum vááá faktor að mati alls heimilisfólksins. Það hefur lengi staðið til að heitreykja silung sem við veiddum fyrir nokkru, flökuðum og frystum.  Við áttum 3 falleg flök til verksins.

Reyking er ævaforn aðferð sem bæði er notuð til að bæta bragð og til þess að auka geymsluþol. Samkvæmt heimildum er erfitt að segja til um hvenær byrjað var á reykingu matvæla en líklegt er að rekja megi hana til þess tíma er menn lærðu að hagnýta sér eldinn. Forfeður okkar notuðu eld til að kynda híbýli sín og matvælin hengdu þeir upp í rjáfur fyrir ofan eldstæðin. Þeir komust fljótlega að því að tími og fjarlægð matvæla frá eldi skipti máli. Reyking á kjöti tíðkaðist á miðöldum hér á Íslandi en fiskur var líklega ekki reyktur fyrr en á síðustu öld þó vítað sé að bændur við Mývatn hafi reykt silung mun fyrr.

Söltun fyrir reykingu er mikilvæg, saltið bragðbætir, þurrkar og eykur geymsluþol.  Yfirleitt er salti og sykri blandað saman og síðan má nota kryddjurtir til að bragðbæta enn frekar. Sjálf nota ég hlutföllin 70% salt á móti 30% hrásykur og í þetta sinn átti ég til dásamlegt íslenskst blóðberg.

Til eru margar tegundir reykofna sem unnt er að kaupa tilbúna, en þeir eru dýrir og alls ekki nauðsynlegir. Unnt er að útbúa sjálfur reykofn á einfaldan hátt og á þessu myndbandi sýnir Hugh Farnley eigandi River Cottage eina af þeirra einföldu útfærslum – En á námskeiðinu sem ég fór á hjá þeim fyrr í vor var þetta einmitt eitt af  því sem við lærðum.

Lítið reykboxSjálf notaði ég grillið okkar og lítið box úr pottjárni fyrir spæninn.  Þetta er mun einfaldara en maður heldur í fyrstu og þessi fyrsta tilraun okkar í kvöld heppnaðist stórvel.

Heitreyktur silungur og salatUppskrift

Heitreykur silungur

  • 3 silungsflök – u.þ.b. 500-750 gr. hvert
  • 70 gr. sjávarsalt
  • 30 gr. hrásykur
  • 1 msk. þurrkað blóðberg
  • 1 – 2 lúkur af þurrkuðum góðum viðarspón

Blandið salti, sykri og blóðbergi saman. Stráið svolitlu af salti á fat, leggið fiskflökin yfir og stráið saltblöndunni ofan á.  Geymið í 30mínútur hið minnsta en það er líka ílagi að hafa tímann töluvert lengri.  Sjálf hafði ég þetta í 3 klst.

Skolið vel undir rennandi ísköldu vatni og þerrið á hreinu stykki.

Setjið spóninn í ílát sem þolir vel hita.  Setjið ítalið yfir logandi eld svo viðurinn fari að brenna og reykja.

Heitreyktur silungur 2Fiskflökunum er raðað á grind yfir reykinn og lokað vel.  Reykt í 10-15 mínútur, eftir stærð og þykkt á flökunum.  Eftir 15 mínútur slökkti ég undir grillinu og lét standa í 5 mínútur til viðbótar.

Salat

  • 4 lúkur af fersku, blönduðu og góðu salati
  • 1 avakadó, skorið í smáa teninga
  • 1 mangó, skorið í smáa teninga
  • 6-8 cherry-tómatar, skornir í 4-8 báta hver
  • 1/2 – 1 rauður chili, skorinn smátt
  • graslaukur, skorinn smátt + nokkur blóm
  • 3-4 radísur, skornar í mjög þunnar sneiðar
  • 1 msk. ferskur sítrónusafi
  • 1 msk. góð ólífuolía
  • nýmalaður pipar

Setjið salatblöðin á fallegt stórt fat.  Skerið hvert silungsflak í 4-6 bita og takið af roðinu, raðið yfir salatblöðin.

SalatBlandið avakadó, mangó, tómötum, graslauk og chili saman, hellið olífuolíu og sítrónusafa yfir og blandið vel.  Sejtið yfir salatið og fiskinn á fatinu. Raðið örþunnum sneiðum af radísum og nokkrum blómum af graslauk á fatið og malið svolitlu að góðum svötum pipar yfir.  Borið fram eitt og sér eða með góðu brauði.

Salat með heitreyktum silung

Birt í Fiskur og sjávarfang, Salat | Merkt , , , , , , , , | Færðu inn athugasemd