Leit
-
Nýlegar færslur
- Basil pestó – þetta hefðbundna ítalska
- Silungur pakkaður í hráskinku borin fram með bygotto
- Lambaleggir í hægum takti
- Kalkúnabringa „Sous Vide“
- Sæt kartöflumús með sveppum
- Grænmetislasagne
- Bláberjakaka með möndlum, kókos og sítrónu
- Rósmarín kjúklingaspjót með einfaldri kaldri sósu
- Perlubygg með grilluðu grænmeti
Sarpur
Uppskriftir
Tækni
Author Archives: Berglindol
Grænmetis- og beikonbaka
Einn þeirra rétta sem eiginmaðurinn hefur masterað snilldarlega eru bökur í ýmsum útgáfum. Sannarlega ekki eini rétturinn svo því sé til haga haldið, hann eins og aðrir í fjölskyldunni eru vel liðtækir við matargerð og bakstur, en öll eigum við … Lesa meira
Fiski-tacos
Þriðjudagar eru fiskidagar hjá okkur í Vatnsholtinu. Það eru ekki allir í fjölskyldunni jafn ánægðir með þá tilhögun, en þegar á fiskurinn er settur í réttan búning eins og í kvöld þá verða allir mjög glaðir og taka vel til … Lesa meira
Hægeldað nautakjöt – Pot roast
Sannkölluð vetrar-sunnudagssteik. Fyrirhöfnin er ekki mikil þó eldunartíminn sé langur. Tilvalið að skella þessu í ofninn og fara síðan í góðan göngutúr eða sund. Þegar heim er komið svolítið kaldur og þreyttur eftir góða hreyfingu ilmar húsið dásamlega og kvöldverðurinn … Lesa meira
Birt í Kjötréttir
Merkt gulrætur, Hægeldað nautakjöt, karteflur, laukur, Lárviðarlauf, nautakjöt, Pot Roast, rófur, Rósmarín, tímían
Ein athugasemd
Kjúklingur og kúskús með grísku ívafi
Vá með þessari færslu set ég nokkur persónulegt met. Ný færsla fjóra daga í röð, sex færslur á fjórum dögum og það lýtur út fyrir að október verði metmánuður í heimsóknum og færslum. Feimnin er líka smátt og smátt að … Lesa meira
Tzatzíkí – Grísk jógúrtssósa
Ég smakkaði tzatzíkí fyrst á Krít fyrir margt löngu – þar er sósan borin fram með nánast öllu, á morgnana, í hádeginu og á kvöldin, með grænmeti, brauði, kjöti og fisk. Í kvöld var hún borin fram með kjúklingarrétti og … Lesa meira
Birt í Meðlæti, Sósur
Merkt ólífuolía, Grísk jógúrt, Grísk jógúrtsósa, hvítlaukur, Jógúrtsósa, sítróna, Tzatsíkí
Færðu inn athugasemd
Velkrydduð gulrótar- og linsubaunasúpa
Á haustin finnst mér svo gott að útbúa heitar og góðar súpur úr öllu því dásamlega íslenska grænmeti sem stendur okkur til boða í verslunum og/eða við ræktum sjálf. Raunar er haustið búið og veturinn kominn, en íslensku gulræturnar eru … Lesa meira
Opin samloka á ítalska vísu (Bruschetta)
Það er varla unnt að kalla þetta uppskrift, meira aðferð – en allt um það, opnar samlokur á ítalska vísu eru ekki bara góðar heldur líka fallegar og gaman bera fram og njóta. Smá fyrirhöfn á köldum sunnudagsmorgni, svona undir … Lesa meira
Basil-pestó með kasjúhnetum og sítrónu
Ég man þegar ég smakkaði í fyrsta sinn ferkst basilpestó. Ég var stödd á Ítalíu fyrir rúmum 20 árum og að sjálfsögðu var ferska basilpestóið borið fram með heitu pasta. Ég hafði aldrei áður fengið jafn gott pasta. Daginn eftir … Lesa meira
Þriðjudags-þorskur
Já þriðjudagar eru þeir dagar sem fjölskyldan hefur sammælst um að elda saman góða fiskrétti. Oftast erum við fimm en þessa vikuna var fámennara, einungis við hjónin og besti unglingurinn. Þessi réttur þarfnast ekki margra orða eða útskýringa – einfaldur, … Lesa meira