Grænmetis- og beikonbaka

IMG_9436Einn þeirra rétta sem eiginmaðurinn hefur masterað snilldarlega eru bökur í ýmsum útgáfum. Sannarlega ekki eini rétturinn svo því sé til haga haldið, hann eins og aðrir í fjölskyldunni eru vel liðtækir við matargerð og bakstur, en öll eigum við okkur nokkra uppáhaldsrétti og þetta er einn af hans uppáhalds. Þetta er sannkallaður „hvað er til í ísskápnum“ réttur, góður þegar nýta þarf afganga af grænmeti svo sem hálfan blómkálshaus, fjórðung úr papriku, nokkrar soðnar kartöflur, grænkál og hvað annað sem leynist í grænmetisskúffunni. Við notum yfirleitt sömu uppskrift af botni, eftir nokkrar tilraunir með bökubotna hefur þessi reynst okkur best og því endurbirtum við uppskrift frá því í sumar.

Bökubotn

  • 150 gr. smjör – kalt og skorið í teninga
  • 250 gr. hveiti
  • 1/2 tsk. salt
  • 1 eggjarauða
  • 3-4 msk. ískalt vatn

baka-botnHnoðið saman smjöri og hveiti – mér hefur reynst best að vinna deigið í matvinnsluvél. Bætið salti, eggjarauðu og hluta af vatninu saman og hnoðið þar til deigið er komið í góða kúlu. Athugið að ekki er víst að það þurfi allt vatnið og gætið þess að hnoða deigið ekki of mikið. Setjið deigið í skál og geymið í kæli í u.þ.b. klukkustund.

baka-botn-2

Fletið deigið fremur þunnt út og þekið bökuform með því. Gatið með gaffli. Ekki er nauðsynlegt að forbaka deigið.

Fylling

  • 3 þykkar sneiðar af góðu beikoni
  • 2-3 vænir stönglar grænkál skorið í grófa bita
  • 1 laukur saxaður
  • 3 gulrætur, skorin í bita
  • 3-4 soðnar kartöflur skornar í bita
  • Blómkál – nokkrir kvistir
  • 1/2 rauð paprika skorin í bita
  • 5 egg og 1 eggjahvíta
  • 2 1/2 dl. rjómi
  • 100 gr. rifinn ostur
  • 2 hvítlauksgeirar
  • 1/4 rautt chili saxað mjög smátt
  • 1 msk oreganó þurrkað
  • salt
  • pipar

Steikið beikonið á pönnu, kælið og skerið í bita. Steikið laukinn við vægan hita upp úr feitinni af beikoninu í nokkrar mínútur. Bætið grænmetinu út á pönnuna og steikið í nokkrar mínútur eða þar til gulræturnar fara aðeins að mýkjast.  Á meðan grænmetið mallar á pönnunni sláið eggjum og rjóma saman með gaffli eða handþeytara. Kryddið blönduna með hvítlauk, chili, óreganó, salti og pipar.

graenmetisbakaRaðið grænmetisblöndunni og beikonbitunum yfir bökubotninn.  Stráið rifnum osti yfir og hellið loks eggjahrærunni yfir.

IMG_9420Bakið við 190° C í u.þ.b. 30 – 40 mínútur.

IMG_9432Berið fram með góðu salati.

Birt í Árdegisverður (Brunch), Bökur | Merkt , , , , , | Færðu inn athugasemd

Fiski-tacos

IMG_9484Þriðjudagar eru fiskidagar hjá okkur í Vatnsholtinu. Það eru ekki allir í fjölskyldunni jafn ánægðir með þá tilhögun, en þegar á fiskurinn er settur í réttan búning eins og í kvöld þá verða allir mjög glaðir og taka vel til matar síns. Frumburðurinn á heiðurinn af þessum rétt – hugmyndina fékk hún af erlendri matarsíðu fyrir margt löngu og aðlagaði að smekk okkar. Þetta er í annað sinn sem hún og tengdasonurinn koma og elda þennan fiskrétt fyrir okkur. Síðast gleymdum við að taka myndir en nú stóð eiginmaðurinn myndavéla-vaktina, unglingurinn lagði á borð og ég fékk að saxa grænmeti og setja í skálar. Góð samvinna og enn betri matur.  Takk fyrir mig elsku Rakel og Andri – þessi réttur er svo góður að við eigum örugglega eftir að elda hann afur og aftur, ferskur, hollur og góður.

Uppskrift – fiskur

  • 700 gr. þorskhnakki eða annar góður hvítur fiskur
  • 1/2 lime
  • 1 hvítlauksrif kramið undir hnífsblaði og saxað smátt
  • 1/2 tsk. cumin
  • 1/4 tsk. chili duft
  • 2 msk. olía
  • salt og pipar

IMG_9456Hrærið olíu, safa úr hálfu lime og kryddi saman og smyrjið yfir fiskflökin og látið standa á meðan þið útbúið sallatið og annað meðlæti.

IMG_9477Grillið á funheitu grilli eða steikið á heitri grillpönnu.

Uppskrift – salat

  • 1/2 haus hvítkál – sneitt í þunnar ræmur
  • 1/2 rauðlaukur sneiddur í mjög þunnar sneiðar
  • handfylli af fersku kóríander – smátt saxað
  • 1 tsk. grænmetisolía
  • 1/2 lime
  • salt og pipar

salatBlandið saman hvítkáli, rauðlauk og kóríander í skál. Hrærið olíu, safa úr 1/2 lime og salt og pipar saman og hellið yfir salatið.

Annað meðlæti

  • Tortilla kökur – hitaðar á pönnu
  • smátt skorið grænmetið s.s. tómatar, agúrka, paprika, avacadó, rauðlaukur eftir smekk og aðtæðum
  • salsa sósa – tilbúin eða heimagerð
  • sýrður rjómi

Setjið í fallegar skálar og berið fram.

IMG_9489

Birt í Fiskur og sjávarfang, Mexikóskir réttir | Merkt , , , , , , , | Færðu inn athugasemd

Hægeldað nautakjöt – Pot roast

IMG_9264Sannkölluð vetrar-sunnudagssteik. Fyrirhöfnin er ekki mikil þó eldunartíminn sé langur. Tilvalið að skella þessu í ofninn og fara síðan í góðan göngutúr eða sund. Þegar heim er komið svolítið kaldur og þreyttur eftir góða hreyfingu ilmar húsið dásamlega og kvöldverðurinn er nánast tilbúin. Þá er bara að skella gróft skorna grænmetinu í pottinn, leggja fallega á borð, kveikja á kertum og jafnvel opna góða rauðvínsflösku – það er fátt sem toppar svoleiðis sunnudaga.

Uppskrift f.4 

  • 800 gr. pot roast nautasteik (við keyptum íslenska steik beint frá býli hjá Frú Laugu)
  • salt og pipar
  • 1 laukur skorinn í grófa bita
  • 2 gulrætur skornar í litla bita
  • 2 hvítlauksgeirar marðir undir hnífsblaði og skorinn smátt
  • 2 sneiðar beikon, skorið í litla bita
  • 2 msk. tómatpúrra
  • 1,5 dl. rauðvín
  • 2 dl. vatn
  • 1-2 greinar ferkst rósmarín (eða 1 tsk. þurrkað)
  • 3 msk. ferskt tímían eða 2 tsk. þurrkað
  • 2 lárviðarlauf
  • nokkrar kartöflur
  • 3 gulrætur
  • 1 lítil rófa

pot roastNuddið steikina með salti og nýmöluðum pipar, steikið við háan hita á öllum hliðum og geymið síðan á disk á meðan grænmetið er steikt.  Ég notaði steikarpott úr pottjárni sem má fara inn í ofn, en það má líka steikja kjötið og grænmetið á pönnu og færa síðan yfir í mót sem má fara inn í ofn.  Mótið eða potturinn þarf að vera með þéttu loki svo allt sjóði vel við hægan hita í ofninum án þess að þorna.

Lækkið hitann undir steikarpottinum og steikið smátt skorið beikon, gulrætur, lauk og hvítlauk í afganginum af olíunni í u.þ.b. 8 mín. Setjið tómatpúrru, rauðvín, vatn, rósmarín, timían og lárviðarlauf út í pottinn og hrærið saman.  Setjið kjötið út í pottinn og pottinn inn í ofninn sem á að vera stilltur á 140 C.  Bakið í u.þ.b. 2 klst.

IMG_9242Þá er gróft skornum gulrótum og rófum bætt út í pottinn ásamt kartöflunum sem gott er að skera í tvennt eða fernt eftir stærð – í þetta sinn áttum við smælki úr garðinum og kartöflurnar því hafðar heilar.  Bakið áfram í u.þ.b. 1 klukkustund.

Takið steikina úr pottinum, skerið í sneiðar og berið fram með grænmetinu úr pottinum  – kveikið kertasljós og opnið ef vill gott rauðvín.

IMG_9257

 

Birt í Kjötréttir | Merkt , , , , , , , , , | Ein athugasemd

Kjúklingur og kúskús með grísku ívafi

IMG_9324Vá með þessari færslu set ég nokkur persónulegt met. Ný færsla fjóra daga í röð, sex færslur á fjórum dögum og það lýtur út fyrir að október verði metmánuður í heimsóknum og færslum. Feimnin er líka smátt og smátt að renna af mér. Ég er hætt að roðna þegar einhver sendir mér komment og mér hlýnar óendanlega um hjartarætur þegar falleg frænka hringir í mig til að spyrja út í uppskrift af síðunni sem hún er að elda eftir. Já þetta er bara reglulega skemmtilegt. Ekki það að ég hafi allan tímann í heiminum til að sinna þessu áhugamáli, en það er nú einhvern veginn þannig að maður finnur tíma fyrir það sem manni finnst gaman, skapandi og gefandi.

Ég mun líklega seint setja inn nýja færslu á hverjum degi, en á meðan ég skemmti mér yfir þessu, fæ útrás fyrir sköpunargleðina, nýt aðstoðar fjölskyldunnar og finn að einhverjir njóta og nýta munu koma inn færslur. Stundum nokkrum sinnum í viku, stundum sjaldnar, allt er jú gott í hófi 🙂

IMG_9303Uppskrift (fyrir 4)

  • 500 gr. beinlaus kjúklingur (við notuðum lundir, en það má líka nota bringur)
  • 1 msk. óreganó
  • salt og pipar
  • 1 bolli kúskús
  • 2 bollar heitt grænmetissoð
  • 1 msk. sítrónusafi nýkreistur
  • 1 msk. olífuolía
  • 1/4 – 1/2 rauður chili
  • 2 – 3 vorlaukar
  • u.þ.b. 10-15 svartar olífur
  • u.þ.b. 8 konfekttómatar
  • 50 gr. fetaostur (kubbur án olíu)
  • salt og pipar

Sjóðið gott grænmetissoð (vatn og góður kraftur) og setjið kúskúsið út í – slökkvið undir pottinum og hafið þétt lok á honum.  Látið standa í 10 – 15 mínútur.  Þá er olífuolíu og sítrónusafa hrært saman við kúskúsið ásamt smátt söxuðum chili og pressuðum hvítlauk.  Lokið sett aftur á pottinn og látið standa þar til rétturinn er settur saman.

Kryddið kjúklinginn með oreganó, salt og pipar og steikið í olífuolíu á stórri pönnu.

Skerið tómatana í báta, fetaostinn í teninga og vorlaukinn í bita.

griskur_kjulliTakið kjúklinginn af pönnunni, setjið kúskúsið á pönnuna ásamt grænmetinu og helmingnum af fetaostinum, hrærið varlega saman. Raðið kjúklingnum yfir og dreifið afganginum af fetasostinum yfir. Lokið pönnunni og leyfið að standa við lágan hita á eldavélinni í nokkrar mínútur þannig að osturinn mýkist aðeins.

Berið fram með grískri Tzatzíki sósu.

IMG_9333

Birt í Kjötréttir, Meðlæti | Merkt , , , , , , , , , , | Færðu inn athugasemd

Tzatzíkí – Grísk jógúrtssósa

IMG_9324Ég smakkaði tzatzíkí fyrst á Krít fyrir margt löngu – þar er sósan borin fram með nánast öllu, á morgnana, í hádeginu og á kvöldin, með grænmeti, brauði, kjöti og fisk.  Í kvöld var hún borin fram með kjúklingarrétti og couscous, en að sjálfsögðu er sósan góð með nánast hverju sem er.  Þess vegna verðskuldar hún sérstaka færslu.

IMG_9300Uppskrift

  • 200 gr. Grísk jógúrt
  • 1/3 agúrka
  • 2 hvítlauksrif
  • 1 tsk. sítrónusafi
  •  1 tsk. olífuolía
  • salt

Rífið agúrkuna á rifjárni (grófu hliðinni), setjið á disk og stráið smávegis af salti yfir. Látið standa í nokkrar mínútur og greistið síðan vel með höndunum þannig að sem mestur safinn fari úr gúrkunni. Hrærið öllu vel saman og látið standa í svolítinn tíma áður en borið er fram. Bragðið verður dýpra og betra ef sósan nær að standa í a.m.k. klukkustund, en það er allt í lagi að bera hana fram fyrr.

IMG_9326

Birt í Meðlæti, Sósur | Merkt , , , , , , | Færðu inn athugasemd

Velkrydduð gulrótar- og linsubaunasúpa

IMG_9298Á haustin finnst mér svo gott að útbúa heitar og góðar súpur úr öllu því dásamlega íslenska grænmeti sem stendur okkur til boða í verslunum og/eða við ræktum sjálf.  Raunar er haustið búið og veturinn kominn, en íslensku gulræturnar eru ennþá til svo dásamlega safaríkar og sætar -upplagðar í góða súpu, velkryddaða með rauðum linsum. Þetta er líka góð aðferð til að fá börn og unglinga til að borða meira af þessu holla og góða hráefni, en gætið þess að minnka kryddið, sérílagi chili og engifer ef til stendur að elda þessa súpu fyrir börn, þau eru yfirleitt ekki hrifin af of sterkum mat. Ég vil hins vegar láta súpuna rífa aðeins í og er smátt og smátt að koma unglingnum á bragðið.

Kertaljós, góð súpa og sögustund í lok dags við matarborðið er gæðastund.  Verði ykkur að góðu.

IMG_9268Uppskrift

  • 500 gr. gulrætur
  • 100 gr. rauðar linsubaunir
  • 1 + 1 tsk. cumin fræ (önnur í súpuna sjálfa og hin ofan á hana þegar hún er borin fram)
  • 1 tsk. kóriander fræ
  • 1/4 – 1/2 rauður chili
  • 1-2 cm bútur af fersku engifer
  • 2 tsk. olívu olía
  • 1 l. heitt grænmetissoð (ég nota kraft sem er án gers, msg og glútens)

Ofan á súpuna 

  • ristuð cumin fræ
  • hrein jógurt
  • ferskt kóríander eða flatblaðasteinselja

gulrotasupaRistið cumin fræin á þurri pönnu eða bara í pottinum sem þið hyggist nota fyrir súpuna.  Takið helminginn og setjið í mortél en geymið helminginn til að strá yfir súpuna þegar þið berið hana fram.  Ristið kóríander fræin og setjið í mortélið með cumin fræjunum og steytið.

Skerið chili smátt en gulrætur og engifer í grófa bita. Hitið olíuna í pottinum, setjið gulrætur, baunir, chili, engifer og krydd út í pottinn og leyfið að malla aðeins í olíunni.  Hellið grænmetissoðinu yfir og láti malla við lágan hita í u.þ.b. 15 mín. eða þar til gulrætur og baunir eru mjúk. Maukið með töfrasprota eða í matvinnsluvél. Smakkið til með salti og pipar.

Berið fram í fallegum skálum og skreytið með jógúrt, cumin og ferskri steinselju eða kóríander.

Birt í Súpur | Merkt , , , , , , , , , , | Færðu inn athugasemd

Hjónabandssæla

IMG_9131Unglingurinn á heimilinu hefur alltaf haft gaman að því að spreyta sig í eldhúsinu – sérílagi við bakstur. Hjónabandssæla ala amma Dísa er eitt af því sem henni finnst mikilvægt að haldið sé til haga og gleymist alls ekki. Við höfum tekið þessa gömlu og góðu uppskrift og aðeins aðlagað hana, minnkað sykurinn töluvert og skipt smjörlíki út fyrir smjör. Það er þó alveg óþarfi að útrýma sykri og hveiti alveg þó við þurfum að vera meðvituð. Lítil sneið af góðri köku með kaldri mjólk eða góðu kaffi á sunnudegi gerir okkur bara gott.

Uppskrift

  • 150 gr. haframjöl
  • 250 gr. hveiti
  • 150 gr. púðursykur
  • 1 tsk matarsódi
  • 225 gr. smjör
  • 1 egg
  • u.þ.b. 150 gr. rabarabarasulta

hjonabandssaelaBlandið saman haframjöli, hveiti, púðursykri og matarsóda.  Myljið kalt smjörið saman við og bætið egginu við. Hnoðið saman í hrærivél.

Smyrjið kringlótt form með lausum botni. Takið 2/3 af deiginu og þrýstið þvi í botn og upp með hliðum formsins. Smyrjið sultuna yfir deigið í forminu og myljið afganginn af deiginu yfir sultuna. Bakið við 175°C í 40 – 45 mínútur.

 

Birt í Bakstur, Kökur | Merkt , , , | Færðu inn athugasemd

Opin samloka á ítalska vísu (Bruschetta)

IMG_9213Það er varla unnt að kalla þetta uppskrift, meira aðferð – en allt um það, opnar samlokur á ítalska vísu eru ekki bara góðar heldur líka fallegar og gaman bera fram og njóta. Smá fyrirhöfn á köldum sunnudagsmorgni, svona undir hádegi, er vel þess virði – maður fer einhvernveginn betur inn í daginn. Hafið í huga að það er ekki nauðsynlegt að hafa allt þetta hráefni á brauðsneiðinni, hvítlaukur, tómatar og mozzarella er í sjálfu sér meira en nóg til að fá okkur til að umla af gleði og ánægju.

IMG_9190Uppskrift/aðferð 

  • Súrdeigsbrauðsneiðar
  • Hvítlauksgeiri
  • Pestó með sólþurrkuðum tómötum
  • Klettakál
  • Hráskinka
  • Tómatar vel þroskaðir
  • Mozzarella-ostur
  • Basil ferkst (má sleppa)
  • Nýmalaður pipar

IMG_9196Steikið brauðið á grillpönnu í nokkrar mínútur á hvorri hlið, það er líka unnt að rista brauðið í hefðbundinni ristavél eða inn í heitum ofni.

IMG_9198Skerið hvítlaukinn í tvennt og nuddið brauðsneiðina með sárinu á hvítlauknum. Smyrjið brauðið með pestó. Raðið klettakáli, hráskinku, tómötum, mozzarellaosti og fersku basil á brauðsneiðina. Loks er örlitlum nýmöluðum pipar stráð yfir og borið fram – Bon Appétit.

IMG_9199

Birt í Ítalskir réttir, Smáréttir | Merkt , , , , , , , , , , | Færðu inn athugasemd

Basil-pestó með kasjúhnetum og sítrónu

IMG_8945Ég man þegar ég smakkaði í fyrsta sinn ferkst basilpestó.  Ég var stödd á Ítalíu fyrir rúmum 20 árum og að sjálfsögðu var ferska basilpestóið borið fram með heitu pasta. Ég hafði aldrei áður fengið jafn gott pasta. Daginn eftir leitaði ég uppi ostabúð sem seldi ferskt pestó, ekki er unnt að líkja því við það verksmiðjuframleidda.  Ég keypti stóra krukku ásamt stóru stykki af parmesan osti og hélt veislu þegar heim til Íslands var komið. Í þá daga var ekki einfalt að komast yfir ferkst basil hér á landi – í dag fæst það hins vegar víða, auk þess sem frekar einfalt er að rækta basil í glugganum heima hjá sér yfir sumarmánuðina.

Nú nota ég pestó oftar sem viðbit með brauði eða góðu hrökkbrauði og útbý ýmsar útfærslur af því. Þessi uppskrift er ekki hin kassíska sem inniheldur auk basil, furuhnetur, hvítlauk og parmesan ost. Pestóið sem hér birtist er líka haft mun grófara en það hefðbundna.  Ég smakkaði pestó þessu líkt á jóla-matarmarkaðnum fyrir utan Nóatún í fyrra, hjá Bergson mathús, keypti krukku eins og á Ítalíu fyrir margt löngu. Pestóið fannst mér svo gott að ég þróaði þessa uppskrift í kjölfari en hún líkist því sem ég keypti á markaðnum. Dásamlegt með góðu brauði og góðu áleggi.

IMG_0999Uppskrift

  • 1 búnt eða um það bil 60 gr. basilika
  • 125 gr. kasjúhnetur
  • 2 hvítlauksrif
  • 1/2 sítróna – safi og fínt rifinn börkur
  • 2 dl góð ólífuolía
  • salt og nýmalaður pipar

Ristið kasjúhneturnar á pönnu og kælið. Setjið allt í matvinnsluvél og maukið að smekk, þetta pestó vil ég hafa frekar gróft. Magn olíu er líka smekksatriði – því meiri olía því þynnra mauk.

IMG_8943

Birt í Árdegisverður (Brunch), Pestó, sultur og chutney | Merkt , , , , , , , | Ein athugasemd

Þriðjudags-þorskur

IMG_9163Já þriðjudagar eru þeir dagar sem fjölskyldan hefur sammælst um að elda saman góða fiskrétti. Oftast erum við fimm en þessa vikuna var fámennara, einungis við hjónin og besti unglingurinn. Þessi réttur þarfnast ekki margra orða eða útskýringa – einfaldur, fljólegur, hollur og góður.

IMG_9144Uppskrift fyrir 3

  • 500 – 600 gr. þorskur
  • 3 tómatar
  • 1 kúrbítur
  • 1 mozzarellakúla
  • 5 msk. ólífuolía
  • 2 hvítlauksgeirar
  • 3 msk. ferkst oreganó saxað smátt (eða 2 tsk. þurrkað)
  • parmesan og basil salt frá Nicolas Vahé
  • salt
  • nýmalaður pipar

Skerið kúrbít, tómata og mozzarella-ostinn í frekar þykkar sneiðar. Skiptu fiskflakinu í 3 jafna bita og kryddið þau með dálitlum pipar og salti.

Setjið ólífuolíu í skál og setjið pressaðan hvítlaukinn, oreganó, pipar og parmesan&Basil salt út í olíuna.

þorskurSetjið kúrbítinn í botninn á eldföstu móti, smyrjið með smávegis af olíunni. Raðið tómötum ofan á kúrbítinn og smyrjið með smávegis af olíu. þá er fiskstykkjunum raðað ofan á tómatana og smurt með olíunni og loks mozzarellaosturinn. Kryddið aðeinss yfir allt með kryddsaltinu.

IMG_9153Í þetta sinn notaði ég 3 litlar eldfastar skálar en að sjálfsögðu má nota eitt stærra eldfast mót.

Hitið ofninn í 200°C og bakið í 10 – 12 mínútur.

Einfalt, fljótlegt og ljómandi gott.

IMG_9174

 

Birt í Fiskur og sjávarfang | Merkt , , , , , , , , , | Færðu inn athugasemd