Appelsínu- og súkkulaði sandkaka


IMG_8031Sunnudagar er sannkallaðir fjölskyldudagar og ósköp ljúft að kalla fólkið sitt í árdegisverð, kvöldverð eða bara síðdegiskaffi.  Í dag fengum við tengdó í síðdegiskaffi og   bökuðum þessa köku sem var svo góð að hún verðskuldar færslu á þessum miðli.IMG_8050

Ég á litla, gamla og lúna bláa minnisbók sem ég færði inn í uppskriftir frá því ég er líklega um 17 ára og þar til fyrir nokkrum árum. Þessi uppskrift er ein þeirra sem eru í bláu bókinni, það var gaman að rifja hana upp í dag og breyta svolítið svo hún félli að breyttum smekk okkar. Útkoman varð dásamleg kaka sem allir voru ánægðir með og mun örugglega verða bökuð aftur áður en langt um líður – einföld og góð með kaffi eða ískaldri mjólk.

Uppskriftin er ekki stór svo formið sem hún er bökuð í má ekki vera of stórt – við notuðum 24 cm formkökuform.

Uppskrift  

  • 125 gr. smjör
  • 90 gr. sykur
  • 3 egg
  • 150 gr. hveiti
  • 1 tsk. lyftiduft
  • safi úr 1/2 appelsínu
  • rifinn börkur af 1/2 appelsínu
  • 75 gr. suðusúkkulaði saxað

IMG_8004Hrærið smjör og sykur vel saman. Bætið eggjunum saman við einu í senn og hrærið vel.  Blandið hveiti og lyftidufti saman og bætið út í og hrærið þar til allt hefur blandast vel þá er  appelsínusafa og berki bætt út og loks súkkulaði.  Sett í velsmurt og hveitistráð formkökuform. IMG_8008
 Bakið neðst í ofni við 175 C í 35 – 45 mínútur – tíminn fer svolítið eftir ofninum.

IMG_8030

Birt í Bakstur, Kökur | Merkt , , , , , , | Ein athugasemd

Humar undir rjómaostaþaki

IMG_7959Það er ekki oft sem maður rekst á stóran og flottan humar í skel í fiskbúðinni. Í vikunni átti ég leið í uppáhalds fiskbúðina mína að Sundlaugavegi þar sem þessi dásemdar-humar stór og flottur var í boði. Ég stóðst ekki mátið, þrátt fyrir kílóaverð sem fékk mig til að hika í smástund….  og maður lifandi hvað humarinn var góður, hverrar krónu virði.  Það er líka við hæfi að borða hátíðarmat á degi sem þessum, þar sem við sameinumst í að fagna fjölbreytileikanum og ástinni í sinni fjölbreyttustu mynd á GAY PRIDE hátíðin í Reykjavík. Ég verð alltaf klökk af hamingju og þakklæti til handa þeim sem vörðuðu leiðina og eru nú fyrirmyndir þeirra sem á eftir koma. Baráttunni fyrir mannréttindum er hvergi nærri lokið og þess vegna er svo þakklátt að sjá hve margir sameinast í að fagna og samgleðjast á degi sem þessum.ImageEn aftur að humarveislunni – Hvítlaukur og smjör eru ómissandi á humar og þegar maður bætir rjómaosti, sítrónu og steinselju við þá getur útkoman ekki orðið annað en fullkomin. Við vorum með þennan rétt sem aðalrétt í kvöld – sátum þrjú að dásemdinni, en þetta er líka frábær forréttur fyrir 5 – 6.

Uppskrift 

  • 900 gr. stór humar í skel
  • 100 gr. smjör
  • 100 gr. rjómaostur
  • 3 -4 hvílauksrif
  • 1/2 sítróna
  • flatblaðasteinselja (u.þ.b. 1 lúka)
  • Salt og pipar

Hreinsið humarinn, klippið upp í skelina, losið humarinn og lyftið honum að hálfu upp úr skelinni.

IMG_7931

Bræðið saman smjör og rjómaost við vægan hita.  Kremjið hvítlaukinn undir hnífsblaði og saxið smátt, hrærið út í ostablönduna. Takið af hitanum og kryddið með salti og pipar.  Hrærið steinselju, safa og berki af hálfri sítrónu saman við.  Þekið humarinn með rjómaostabráðinni.

IMG_7944Setjið undir funheitt grill í ofni og grillið í nokkrar mínútur.

IMG_7948Berið strax fram með góðu brauði og einföldu salati.

IMG_7962

Birt í Fiskur og sjávarfang, Forréttir | Merkt , , , , | Færðu inn athugasemd

Silunga-Ceviche

IMG_7896Ég nýt þess á sumrin að útbúa hina ýmsu mismunandi rétti úr spriklandi ferskum silung og hoppa hæð mína af gleði þegar villtur lax býðst til þessarna líka.  Hin árlega „strákaferð“ eiginmannsins í Veiðivötn færði okkur ekki marga en þeim mun ljúfari urriða þetta árið.

IMG_7871Það er fátt betra en nýr silungur og eftir smá umhugsun og könnun á birgðarstöðunni í ísskápnum ákváðum við að útbúa einfaldan og ferskan forrétt sem unnt er að útfæra á ótal mismunandi vegu.  Grunnurinn er að sjálfsögðu nýr og ferskur silungur, safi úr sítrus ávexti og ferskt kóríander  Annað er spilað af fingrum fram og fer eftir því í hvaða stuði maður er og því hvað til er í ísskápnum og kryddjurtabeðinu fyrir utan stofugluggann.  Skjaldfléttuna rækta ég sérstakleg til að skreyta hina ýmsu rétti, það er svo gaman að lyfta einföldu sallati eða öðrum réttum aðeins upp með ætum blómum s.s. fjólu, morgunfrú eða skjaldfléttu.

IMG_7892Uppskrift

  • 2 silungsflök – nýveidd og skorin í litla bita
  • safi úr einni sítrónu
  • börkur af 1/2 sítrónu
  • börkur af 1/2 appelsínu
  • 1 tsk. tamarí-sósa
  • 1 tsk. sesamolía
  • 1 avakadó
  • 1 mangó
  • 2 vorlaukar
  • 1/2 paprika
  • 1/2 chilli rautt
  • handfylli af fersku kóríander
  • salt og pipar

Flakið silunginn, roðflettið og skerið í litla bita.  Hrærið saman sítrónusafa, sítrónu- og appelsínuberki, tamarín sósu og olíu.

Skerið avakadó, mangó, vorlauk og papriku í litla bita.

Saxið chilli smátt og kóríander gróft.

Blandið öllu saman í skál og látið standa í u.þ.b. 30 mínútur áður en borið fram

IMG_7894

Birt í Fiskur og sjávarfang, Forréttir, Smáréttir | Merkt , , , , , , , , , | Færðu inn athugasemd

Grænkálsbaka

IMG_7777

Sumarið hefur svo sannarlega verið votara og heldur svalara hér í Reykjavík en undanfarin sumur. Við erum orðin svo góðu vön eftir nokkur ákaflega þurr, sólrík og hlý sumur hér sunnalands að ekki er laust við að Reykvíkingar dæsi svolítið þegar veðrið ber á góma. Salatið í gróðurreitnum okkar hér i Vatnsholtinu kann þó vel að meta þessa vætutíð og sprettur mun betur í ár en síðustu 2-3 sumur. Raunar er sprettan svo hressileg að við eigum fullt í fangi með að nýta og njóta þessara gersema. Hugmyndin að grænkálsbökunni er einmitt tilkomin vegna alls grænkálsins sem beið sperrt eftir okkur þegar við komum heim úr ferðalaginu góða um síðustu helgi.

sallatFetaostur, konfekttómatar og ferskt oreganó leika líka stórt hlutverk í þessari böku – en auk salatsins ræktum við mikið af kryddjurtum í garðinum okkar. Það er fátt sem jafnast á við það að trítla út í garð og ná í ferskar kryddjurtir, salat svo ekki sé minnst á smælki þegar líður á sumarið – já sumarið er svo sannarlega tíminn, vott eða þurrt 🙂  Góðar grænmetisbökur standa alltaf fyrir sínu, bæði sem léttur kvöldverður en ekki síður í árdegisverðarboðinu eða góðum veislum stórum og smáum.

Uppskrift

Bökubotn

  • 150 gr. smjör – kalt og skorið í teninga
  • 250 gr. hveiti
  • 1/2 tsk. salt
  • 1 eggjarauða
  • 3-4 msk. ískalt vatn

baka-botnHnoðið saman smjöri og hveiti – mér hefur reynst best að vinna deigið í matvinnsluvél. Bætið salti, eggjarauðu og hluta af vatninu saman og hnoðið þar til deigið er komið í góða kúlu. Athugið að ekki er víst að það þurfi allt vatnið og gætið þess að hnoða deigið ekki of mikið. Setjið degið í skál og geymið í kæli í u.þ.b. klukkustund.

baka-botn-2Fletið deigið fremur þunnt út og þekið bökuform með því. Gatið með gaffli. Ekki er nauðsynlegt að forbaka deigið.

Fylling

  • 8 vænir stönglar grænkál skornir í grófa bita
  • 3 þykkar sneiðar af góðu beikoni
  • 6 konfekt tómatar skornir í tvennt
  • 125 gr. fetaostur (1/2 feta-kubbur)
  • 5 egg og 1 eggjahvíta
  • 2 1/2 dl. rjómi
  • 2 hvítlauksgeirar
  • 5 – 6 msk oreganó ferskt – saxað fremur gróft.
  • salt
  • pipar

IMG_7753Steikið beikonið á pönnu, kælið og skerið í bita. Steikið grænkálið upp úr feitinni af beikoninu og setjið á bökubotninn.

IMG_7768Setjið beikonið yfir grænkálið, raðið tómötum og fetaosti yfir.

IMG_7765Blandið saman í skál eggjum og rjóma og þeytið með gaffli eða handþeytara. Kryddið blönduna með hvítlauk, óreganó, salti og pipar. Athugið að bæði beikonið og fetaosturinn eru fremur sölt svo farið varlega með saltið. Hellið eggjablöndunni yfir fyllinguna.

IMG_7772Bakið við 190 c í 25 – 30 minútur.

IMG_7780Berið fram með góðu salati.

Birt í Bökur | Merkt , , , , , , , , , , , | Færðu inn athugasemd

Grilluð Humar-pizza

IMG_7505Eftir 15 dásamlegar nætur í tjaldvagni víðs vegar um landið erum við fjölskyldan nú komin heim.  Þetta blogg fékk óvænta kynningu á meðan á ferðalagi okkar stóð svo nú verður maður að hætta að roðna af feimni þegar minnst er á matarblogg og freista þess að standa undir þeim væntingum sem til þess eru gerðar – en númer eitt, tvo og þrjú hafa brjálæðislega gaman að þessu 🙂  Til þess er leikurinn gerður.  Matargerð og matarmenning hefur verið eitt af fjölmörgum áhugamálum mínum um mjög langt skeið og gaman að ögra sjálfri sér og fá útrás fyrir sköpunarþörfinni á nýjum vettvangi.

En aftur að ferðalaginu sem byrjaði á Víðum í Reykjadal í góðra vina hópi. Þar var eldað, bakað, brasað, sungið og trallað í marga góða daga með dásamlegu fólki. Humarpizzan var grilluð í tvígang þessa viku sem við dvöldum að Víðum – fyrst sem forréttur á undan nautasteik með Bérnaise og síðan sem einn af fjölmörgum réttum á sjávarrétta-kvöldi.

Humarpizzan er í raun sáraeinföld, við höfum grillað hana á pallinum í Vatnholti og Víðum, tjaldstæðinu í Þórsmörk, Stykkishólmi og víðar.  Það er alger óþarfi að borða saxbauta úr dós eða kaldar kótelettur þegar maður er á ferðalagi í tjaldi – ekkert mál er að skella í góða pizzu ef maður númer eitt hefur gaman að því að hafa fyrir matnum sem maður borðar og númer tvö nennir að henda hveiti, geri og þvílíku dóti í matarboxið.  En þá þarf maður líka að hafa gaman að þessu – fyrirhöfnin er meiri þegar maður bakar pizzu í tjaldi en þegar maður er heima í eldhúsi með allt við höndina.  En ég get lofað að fyrirhöfnin er vel þess virði – þessi pizza klárast alltaf, hverfur nánast eins og dögg fyrir sólu og yfirleitt er það nú þannig að það mætti alveg vera til aðeins meira af henni.

IMG_7511

Botninn – uppskrift

Þessi grunnuppskrift að pizzabotni fellur vel að okkar smekk. Við viljum hafa botninn þunnan og stökkan og því nær maður með þessari uppskrift. Uppskriftin dugar í 3 – 4 botna sem eru u.þ.b. 9 tommur hver.

  • 2 tsk. ger
  • örlítið hunang
  • 1 bolli volgt vatn
  • 4 bollar hveiti – oft nota ég 2 bolla gott brauðhveiti og 2 bolla af hörðu hveiti eða Durum hveiti.
  • 1 tsk. salt
  • 1 msk. olífuolía

IMG_7471Best er að leysa gerið upp í volgu vatni með hunangi, þar til það byrjar að freyða – þetta ferli tekur um 10 – 15 mínútur.  Ég hef nú ekki alltaf tíma og/eða þolinmæði í þetta fyrsta þrep og sleppi því oft …. svona til að vera alveg heiðarleg 🙂  Blandið saman hveiti, salti og olíu og hellið gerblöndunni (eða vatni, geri og hunangi) saman í skál og hnoðið vel saman eða þar til deigið hefur fengið góða áferð.  Ef þið eruð að baka pizzu heima er hægt að hnoða deigið í hrærivél með hnoðunarkrók, annars bara í höndunum.  Í tjaldi er um að gera að hnoða þetta mest í skálinni sjálfri.  Leyfið deiginu að hefast í skál undir klút í 30 – 120 mínútur +/-  þann tíma þið hafið til þess.  Við skellum oft í deig og förum síðan í sund eða gönguferð og ola þegar heim eða í tjald er komið býður þetta líka dásamlega deig tilbúið til að vinna með.

Deigið þarf að hnoða aftur í smá stund þegar það hefur fengið að hvíla og lyfta sér eins og tími og aðstæður leyfa. Skiptið deiginu í 3 – 4 parta og fletjið út.

Þegar pizza er grilluð á útigrilli eins og hér er gert – er botninum skellt á grill-pizzapönnu áður en áleggið er sett á botninn, pannan sett á funheitt grillið og grillinu lokað í nokkrar mínútur. Þá er botinum snúið við á pönnunni og nú er tímabært að raða álegginu á. IMG_7494

Humar-álegg á u.þ.b. 3 botna

  • hvítlauksolía (hvítlaukur kraminn og skorinn smátt settur út í góða ólífuolíu)
  • rifinn ostur
  • ferskur m0zzarellaostur skorinn í smáa bita
  • olífuolía
  • smjör
  • sítróna
  • 6 hvítlauksgeirar, marðir undir hnífsblaði og saxaðir smátt
  • 500 – 600 gr. humar skelflettur
  • salt
  • pipar nýmalaður
  • steinselja söxuð
  • blöð af morgunfrú (má sleppa)

IMG_7491Grillið botninn án áleggs í nokkrar mínútur eins og að ofan greinir.

Takið pizzapönnuna af grillinu og snúið botninum við. Smyrjið með hvítlauksolíu og stráið rifnum osti yfir botninn – ekki setja of mikinn ost á þessu stigi.  Grillið í nokkar mínútur.  Opnið þá grillið og bætið ferskum mozzarella osti á botninn – hann þarf aðeins styttri tíma til að bráðna heldur en rifni osturinn og er því settur aðeins síðar á botninn.

IMG_7498Á meðan pizzabotninn er að grillast er smjör með svolítilli olífuolíu brætt á pönnu, 2 velsaxaðir og marðir hvítlauksgeirar settir út í brætt smjörið og leyft aðeina að hitna, þá er 1/3 af humrinum bætt á pönnna og steikt í smá stund  – gætið þess að ofsteikja humarinn ekki -betra er að hafa hann aðeins of lítið steiktan. Kreistið u.þ.b. 1 msk. safa úr sítrónu út á pönnuna og saltið og piprið.  Raðið  humrinum á pizzabotninn sem nú er nánast tilbúinn, hellið hæfilegu magni af sítrónu-smjörblöndunni af pönnunni yfir pizzuna og lokið grillinu í eina mínútu eða svo.  Stráið saxaðri steinselju og blöðum af morgunfrú yfir pizzuna og berið fram.

IMG_7504

Birt í Ítalskir réttir, Fiskur og sjávarfang, Forréttir, Grillréttir | Merkt , , , , , , | 2 athugasemdir

Víða Kleinur

IMG_7571Ein af fyrirmyndum mínum í lífinu er hin lífsglaða og dásamlega kona Hjördís Jóna Geirsdóttir.  Allt frá því ég var táningur hefur Dísa átt stóran part í mér. Ég var ásamt svo mörgum heimagangur á  heimili Dísu og Tóta.  Ég man nú ekki eftir að hafa fengið kleinur  með heita kakóinu sem hún beið svo oft með tilbúið fyrir okkur þegar við komum úr skólanum. Ofar í minningunni eru sjónvarpskakan og karmellukakan sem hún var og er fræg fyrir í vinahópnum. Dísa er ein lífsglaðasta kona sem ég þekki, hún talar hátt, syngur eins og engill og hlær svo undir tekur í dalnum eða firðinum. Daglegum verkefnum er ávallt mætt með bros og húmor og söngurinn er aldrei langt undan. Hún stýrir og stjórnar fjöldasöng hvar sem hún kemur því við og telur manni trú um að allir geti sungið eins og englar – líka ég sem er vita laglaus. Við náðum að eiga með henni nokkra daga á ættaróðali fjölskyldu hennar að Víðum í Reykjadal, við gítarspil, söngæfingar, matargerð að ógleymdum hlátrasköllunum sem við sofnuðum við seint á kvöldin og vöknuðum svo við á morgnana. Kleinubaksturinn var festur á mynd og að sjálfsögðu er Dísa óspör á uppskriftina sem hún segir að eigi uppruna sinn á bænum Vogum í Mývatnssveit.  Kleinurnar eru hafðar litlar og krúttlegar – þær eru stökkar að utan og mjúkar að innan og ákaflega góðar.

IMG_7583Uppskrift

  • 5 + 2 bollar hveiti
  • 2 bollar sykur
  • 100 gr. smjör (eða smjörlíki uppá gamla mátann)
  • 2 egg
  • 2 tsk. kardimommur
  • 7-8 tsk. lyftiduft
  • 7-8 dl. súrmjólk

Allt sett í í skál nema 2 bollar hveiti og hnoðað saman – hér er í lagi að nota hrærivélina til að hnoða.  Deigið sett á borð og síðustu 2 bollarnir af hveiti eru hnoðaðir upp í höndunum.  Skiptið deiginu í hæfilega stóra bita, fletjið út og skerið í tígla.

IMG_7562

Skerið gat í miðjuna á hverjum tígli og snúið upp á kleinurnar.

IMG_7563

IMG_7557

Kleinurnar eru steiktar í feiti, athugið að snúa þeim í feitinni á meðan á steikingu stendur.

IMG_7573

Þessar kleinur stoppuðu stutt við, börn, unglingar, kátir vinnukarlar og fallegar konur sáu til þess að þær hurfu eins og dögg fyrir sólu.IMG_7585

Birt í Bakstur | Merkt | Ein athugasemd

Rabarbara- og jarðarberjasulta

IMG_7464Ég var ekki alveg búin með rabarbarann í garðinum okkar svo ég ákvað að skella í nokkrar krukkur af sultu.  Ekki alveg þessa hefðbundnu rabarabarasultu í þetta sinn heldur bættum við jarðarberjum útí. Sultan er mjög góð með pönnukökum og vöfflum, en líka á ristarbrauðið á morgnana og ýmislegt annað.  Svo er líka svo gaman að eiga sultu í fallegri krukku til að færa vinum þegar maður fer í matarboð 🙂 Fallega skreytt sultukrukka er alltaf jafn vinsæl.

Uppskrift

  • 1 kg. rabarbari
  • 500 gr. jarðarber
  • 800 sykur

jarðRabarbarinn hreinsaður og skorinn í 1 cm bita. Ég notaði frosin jarðarber og geri það oftast þegar ég geri sultu – þessi fersku fara í aðra rétti.  Jarðarberin skorin í bita ef þau eru mjög stór – annars er ekki þörf á því.  Sett í pott með sykrinum, kveikt undir, hitað rólega og látið malla við vægan hita þar til rabarbarinn og berin eru komin í mauk og sultan er farin að þykkna. Hrærið reglulega í pottinum, einkum er líða fer á suðutímann. Þegar sultan er tilbúin er hún sett í heitar, sótthreinsaðar krukkur og lokað vel.

Það er mjög einfalt að sótthreinsa krukkur – þær eru þvegnar vel og þurrkaðar, settar í 100 gr. heitan ofn í u.þ.b. 10 -15 mínútur.

Birt í Meðlæti, Pestó, sultur og chutney | Merkt , , , , , | Ein athugasemd

Linsubaunasalat með grilluðu grænmeti og Halloumi osti

IMG_7417Puy linsubaunasalat er hið mesta lostæti – hvort sem er eitt og sér eða sem meðlæti með fisk eða kjöti. Hér eru baunirnar soðnar með ferskum kryddjurtum og hvítlauk sem gerir bragð þeirra mjög gott. Í raun má setja hvað sem er út í soðnar baunirnar – hlutföllin eru ekkert heilög og ekki heldur val á grænmeti og magn. Þessi samsetning er reyndar mjög góð og vel til þess fallin að mæla með.  Salatið þolir hins vegar vel að innihaldið fari svolítið eftir því hvað er til hverju sinni. Halloumi osturinn er mjög góður í þessari samsetningu – en hann er alls ekki alltaf fáanlegur hér á landi, um að gera að njóta hans þegar hann er til, en hann er ekki nauðsynlegur.

Uppskrift – meðlæti fyrir 6 eða aðallréttur fyrir 3 – 4

  • 250 gr. Puy linsubaunir
  • 3 bollar vatn
  • 1 msk. grænmetiskraftur
  • 1 grein rósmarín
  • 2-3 stilkar óreganó
  • 2 hvítlauksgeirar skornir í grófar sneiðar

Blandið öllu saman í pott og sjóðið linsubaunirnar skv. leiðbeiningum á pakka eða í um 15 mínútur.  Hellið umframvökva af og fjarlægið kryddjurtir og hvítlauk.

IMG_7397

Grillað grænmeti og Halloumi ostur

  • 1/2 kúrbítur skorinn í sneiðar
  • 1/2 eggaldin skorið í sneiðar
  • 1 rauðlaukur skorinn í báta
  • 1/2 rauð paprika skrorin í bita
  • 8 cherry tómatar
  • 4 sneiðar Halloumi ostur
  • olífuolía
  • salt og pipar

Grænmetið þrætt upp á grillteina, penslað með olífuolíu og kryddað með salti og nýmöluðum pipar.  Grillið grænmetið og Halumi ostinn á velheitu grilli þar til það tekur lit og fallegar grillrákir myndast.

Skerið grænmetið og ostinn í hæfilega bita. Blandið gænmetinu, ostinum og linsubaununum saman.  Stráið svolitlu af flatblaðasteinselju yfir ásamt góðri ólífuolíu.

IMG_7404

Birt í Grænmetirréttir, Meðlæti, Salat | Merkt , , , , , , , , , | Færðu inn athugasemd

Bananabrauð með kókos, rommi og brúnuðu smjöri

IMG_7449Blautir og kaldir sumardagar eins og þeir hafa verið undanfarið kalla á notalegheit innandyra. Bakstur og bananar, svo ekki sé minnst á dökkt romm eiga þá vel við.  Á hinum hefðbundna blogghring um daginn heillaði þessi uppskrift mig á síðunni hjá Joy the baker.  Brauðið er mjög gott og sannarlega þess virði að deila því hér.

Uppskrift

  • 175 gr. smjör
  • 2 bollar hveiti
  • 3/4 bolli púðusykur
  • 1 tsk. lyftiduft
  • 1/2 tsk. salt
  • 3/4 tsk.kanill
  • 1 tsk. vanilludropar
  • 2 tsk. dökkt romm (örugglega í lagi að sleppa því ef það er ekki til í vínskápnum)
  • 2 stór egg
  • 1/4 bolli hrein jógúrt
  • 3 bananar stappaðir eða 1 og 1/4 bolli
  • 1/2 bolli kókosflögur ristaðar á pönnu +1/4 bolli óristaðar til að setja ofan á brauðið

IMG_7428Bræðið smjörið í potti yfir meðalhita. Þegar smjörið er bráðið byrjar það að freyða svolítið og frissandi hljóð heyrist þegar vatnið sýður úr smjörinu. Eldið smjörið þar til það fer að taka á sig brúnan lit og ilmurinn verður hnetukenndur. Hellið þá heitu smjörinu í skál og kælið, annars heldur það áfram að eldast og  getur brunnið. Athugið að mikilvægt er að fylgjast vel með smjörinu á meðan á þessu ferli stendur því það getur auðveldlega brunnið og það er ekki það sem við erum að leita eftir.

IMG_7434Hrærið saman stöppuðum bönunum, eggjum, jógúrt, vanillu og rommi.  Hrærið smjörið saman við.  Blandið þurrefnunum hveiti, sykri, lyftidufti, salti og kanil saman og hærið varlega saman við bananahræruna.  Að lokum er ristuðum kókosflögum bætt út í.  Hrærið allt vel, en varlega saman – gætið þess að þeyta ekki, því þá er hætt við að kakan verði seig. Þetta deig er því best að hræra saman í höndunum, ekki í hrærivél.

IMG_7435Setjið í vel smurt og hveitistráð formköku-form, stráið óristuðu kókosflögunum yfir deigið í forminu áður en það fer í ofninn. Bakið við 180°C í um það bil 50 – 60 mín.  Látið kólna í forminu í u.þ.b. 15 mínútur áður en þið setjið kökuna á disk.

Birt í Bakstur, Brauð | Merkt , , , , , , , | Færðu inn athugasemd

Grillaður marineraður mozzarella m/hráskinku og brauði

IMG_7365Frábær forréttur eða smáréttur í grillveisluna.  Samsetning þessi er ómótstæðileg – það er ekki oft sem maður fær grillaðan mozzarella ost og með góðri hráskinku og djúsí brauði – marinerað í ferskum kryddjurtum, sítrónu, hvítlauk og góðri ólíu ummmm…..  svo ljúffengt.  Mæli sannarlega með þessum rétti í næstu grillveislu nú eða bara næsta grillmóment – það þarf ekki alltaf veislu til að gera vel við sig 🙂

IMG_7349Uppskrift fyrir 4 – 6 sem forréttur

  • 1 gott snittubrauð (súrdeigsbrauð er langbest finnst mér – auðvitað smekksatriði)
  • 4 kúlur mozzarellaostur
  • 8 – 12 sneiðar  góð hráskinka
  • 1 hvítlauksgeiri
  • börkur af  tveimur sítrónum
  • 2 hnefafylli af ferskum kryddjurtum t.d. rósmarín, basil, óreganó, graslaukur, steinselja
  • 1/2 dl. olífuolía
  • salt og nýmalaður pipar

Dressing

  • 5 tsk sítrónusafi
  • 5 tsk ólífuolía
  • 5 svartar olífur – mjög smátt skornar
  • 1/2 rauður chilli – smátt skorinn
  • salt og nýmalaður pipar

IMG_7353Blandið saman olífuolíu, sítrónuberki og smáttskornum kryddjurtum og hvítlauk, smá salt og nýmöluðum pipar í stóra skál.  Skerið hverja ostakúlu í 6 – 8 bita og brauðið í þykkar sneiðar. Blandið ostinum og brauðinu út í skálina með kryddleginum.  Látið marinerast i 15 – 60 mínútur.

Blandið öllu sem á að fara dressinguna saman

Leggið trépinna í bleyti í vatn svo þeir brenni ekki þegar rétturinn er grillaður.

IMG_7358Vefjið hvern ostbita í hálfa sneið af hráskinku. Þræðið upp á trépinna til skiptis osti sem vafinn er í hráskinku og sneið af brauði.

IMG_7363Grillið þar til osturinn byrjar að bráðna og brauð og skinka taka lit.   Penslið með dressingunni áður en borið er fram.

Birt í Forréttir, Grillréttir, Smáréttir | Merkt , , , , , , , , , , | Ein athugasemd