Paprikupestó

IMG_8489Paprikupestó er gott álegg á brauð, hrökkbrauð, kex, eða bara á salatblað – góð tilbreyting frá þessu hefðbundna pestó sem við þekkjum og kærkomin nýjung á árdegisverðarborðið um helgar. Bragðið er örlítið sætt, það gera grilluðu paprikurnar.

IMG_8356Uppskrift

  • 2 rauðar paprikur
  • 100 gr. Cheddar ostur
  • 75 gr. valhnetur
  • 6 sólþurrkaðir tómatar
  • 1 hvítlauksrif
  • 1 msk. ólífuolía
  • salt og pipar

Skerið paprikuna í 4 hluta og fræhreinsið.

IMG_8364Leggið paprikuna á plötu og grillið í ofninum þar til ysta lagið verður mjög dökkt nánast svart.

IMG_8366Setjið paprikurnar beint í hitaþolinn poka og látið þær vera í nokkrar mínútur.  TAkið úr pokanum og flettið ysta laginu af paprikunni.

paprikupesto

 

Setjið allt í matvinnsluvél og maukið.  Berið fram með góðu brauði, hrökkbrauði eða kexi og gænmeti.

IMG_8482

 

Birt í Árdegisverður (Brunch), Pestó, sultur og chutney | Færðu inn athugasemd

Grilluð sítrónulegin stórlúða með jógúrtsósu

IMG_8563Fiskbúðir eru með skemmtilegri matvöruverslunum – ég fann loks mína uppáhaldsfiskbúð fyrir rúmum tveimur árum eftir nokkra leit í kjölfar þess að fiskbúðin „mín“  í Skipholtinu skipti um eigendur og um leið allan brag.  Uppáhaldsfiskbúðin mín er við Sundlaugaveg, þar getur maður gengið að því vísu að fá ferskan og góðan fisk, úrvalið er gott og kaupmennirnir alúðlegir. Þangað hjólaði ég í gær með það í huga að kaupa lax í kvöldmatinn, en þegar á staðinn var komið og við mér blasti uppáhalds-steikin mín stóðst ég ekki mátið og breytti fyrirhuguðum matseðli kvöldins.  Grilluð sítrónulegin stórlúða er með því betra sem ég fæ – einfalt, gott og holt.

IMG_8535

Uppskriftin er fyrir 4 fullorðna

Fiskurinn

  • 800 – 1000 gr. stórlúða

Marenering

  • 1 sítróna – safi og börkur
  • 1/2 dl. olífuolía
  • 1/2 chili saxaður smátt
  • 4 hvítlauksrif – pressuð
  • 3 msk. ferskt tímian eða 2 tsk. þurrkað
  • salt og pipar

IMG_8545Blandið öllu saman á djúpt fat og leggið fiskinn á fatið, veltið honum upp úr leginum og látið hann liggja í a.m.k. 1 klst. Snúið honum nokkrum sinnum á þessu tímabili.

IMG_8555Grillið á heitu útigrilli í nokkrar mínútur á hvorri hlið, tíminn fer eftir þykkt bitanna og smekk.

Sósan 

  • 1/2 dós Grísk jógúrt (u.þ.b. 175 gr)
  • börkur af hálfri sítrónu
  • 1 msk. sítrónusafi
  • 1 tsk. hunang
  • 1 hvítlauksrif kramið undir hnífsblaði og saxað smátt
  • salt og pipar

IMG_8565Blandið öllu vel saman og látið standa í u.þ.b. 1 klst.

Berið fiskinn fram með einföldu og góðu sallati og á þessum árstíma er fátt betra en  nýjar íslenskar kartöflur.

Birt í Fiskur og sjávarfang, Grillréttir | Merkt , , , , , , , , , | Færðu inn athugasemd

Tortilla kryddblanda á þriðjudegi

IMG_8529Þegar vinnudagarnir eru langir er svo gott að grípa í fljólega rétti sem samt eru hollir og góðir. Þessi er mjög vinsæll í Vatnholtinu og hefur verið um margra ára skeið.  Meðlætið  fer nú alveg eftir því hvað er til, í hvaða stuði við erum og auðvitað spilar tíminn sem við gefum okkur í matseldina miklu. Þannig er mismikið lagt í meðlætið en mikið og ferskt grænmeti er ómissandi. Á góðum dögum gerum við ferska salsa og guacamole. Í dag reyndust báðir avacadó ávextirnir sem við keyptum ónýtir svo quacamole býður betri tíma. Alveg væri ég til í að borga aðeins meira fyrir avacadó og geta þá treyst því að fá rétt þroskaðan og góðan ávöxt.

Við gerum okkar eigin kryddblöndu fyrir tortillur, notum góð krydd og eigum blönduna tilbúna í krukku þegar löngunin í tortillu grípur okkur. Þessi kryddblanda hentar hvort sem er fyrir nautahakk eða kjúkling.

Kryddblanda uppskrift

  • 3 msk. cumin fræ (nota má duft en bragðið er dýpra af ristuðum fræjum)
  • 3 msk. chiliduft
  • 3 msk. paprikuduft
  • 2 msk. laukduft
  • 1 msk. hvítlauksduft
  • 1 msk. oreganó
  • 1 og 1/2 msk. sjávarsalt (Reykjanes eða Maldon)
  • 1 tsk. svört piparkorn

IMG_8507Ristið cuminfræin á pönnu í smá stund eða þar til kryddið fer að ilma dásamlega – hristið pönnuna reglulega og passið að víkja ekki frá pönnunni…. ég tala af reynslu þegar ég segi að það er auðvelt að brenna krydd 🙂

IMG_8511Setjið ristuðu cuminfræin í mortél og steytið, bætið svörtu piparkornunum út í og myljið þau líka. Þá er saltinu bætt út í og það mulið saman við.

IMG_8523Loks er öllum kryddunum blandað vel saman og sett í góða krukku.

Hefbundin tortillu-kvöldverður hjá okkur sem erum orðin þrjú í heimili samanstendur af:

  • 250 – 300 gr. gott nautahakk – mæli með að kaupa beint frá býli t.d. í gegnum Frú Laugu.
  • 1 msk. krydd blanda
  • 1/2 – 1 dl. vatn

Kjötið er steikt á pönnu og kryddað, bætið vatni á pönnuna og látið sjóða þar til vatnið er að mestu gufað upp.

Borið fram með heitum tortilla kökum,  salsa sósu, rifnum osti, kotasælu eða sýrðum rjóma og fullt af fersku og smátt skornu grænmeti til dæmis:

  • tómatar
  • gúrka
  • paprika
  • kúrbítur
  • rauðlaukur
  • salat
Birt í Kjötréttir, Mexikóskir réttir | Merkt , , , , , , , | Ein athugasemd

Engifer-gos

IMG_8479Í sumar höfum við mæðgur gert nokkrar tilraunir með engifer síróp sem gott er að bragðbæta sódavatn með og höfum að eigin mati náð nánast fullkomnun með þessari uppskrift sem hér fer á eftir.

Til margra ára höfum við átt sodastream tæki sem er mjög mikið brúkað og þá einungis fyrir hið hefðbundna sódavatn. Það er hins vegar svo gott að geta bragðbætt vatnið til hátíðarbrigða og dagurinn í dag er einmitt einn af hátíðardögum fjölskyldunnar – unga daman á 16 ára afmæli og bauð nokkrum vinkonum í kvöldverð í gærkvöldi – þar sem þessi drykkur var borinn fram þegar gestirnir komu.  Í dag var fjölskyldunni boðið í árdegisverð og aftur var engifer-gosið borið fram og fékk góða dóma.

IMG_8323Uppskrift

  • 250 gr. engifer
  • 1 sítróna
  • 1 bolli hrásykur
  • 1 bolli vatn

Ég skræla ysta lagið af engiferinu því á þann hátt verður sírópið tærara, sker síðan í grófa bita. Sítrónan er skorin í tvennt og safinn að mestu kreistur úr henni.

IMG_8330Setjið sykur, vatn, engifer, sítrónusafa og sítrónuna í pott.  Hitið að suðu og látið malla við vægan hita í u.þ.b. 15 mín.  Takið sítrónuna úr pottinum og kreistið safann út henni. Látið standa og kólna i pottinum í að lágmarki 1 klst.  Sigtið engiferið frá sírópinu og hellið á flösku, geymið á köldum stað.  Það hefur ekki reynt á geymsluþolið hjá okkur en tel að sírópið ætti að geymast í að lágmarki  2 vikur, ef til vill lengur – svo fremi það sé í góðu íláti og kæli.

Sírópið er blandað út í ískalt sódavatn í hlutföllunum 1/6 – 1/10 eftir smekk.

IMG_8331

Birt í Drykkir | Merkt , , , , , , , | 4 athugasemdir

Hafrabollur

IMG_8113Þessar bollur eru ákaflega góðar og skemmtilega ólíkar hefðbundnum brauðbollum, það gera furuhnetur, hafrar og góð blanda af fræjum.  Verið óhrædd við að breyta fræjum og hnetum og skipta út eftir hentugleika.  Í þetta sinn notaði ég svört sesamfræ sem ég keypti á markaði í Íran í vor og finnst mjög gaman að nota í brauð, venjulega nota ég bara þessi hefðbundnu ljósu. Ef furhnetur er ekki tiltækar þá er alveg í lagi að setja annarskonar hnetur t.d. valhnetur.

Bollurnar er upplagðar á árdegisverðarborðið eða með góðri súpu og dásamlegar í nestispakkann með einföldu og góðu áleggi.

IMG_8069Uppskrift

  • 450 gr. hveiti
  • 200 gr. haframjöl
  • 1 1/2 tsk. þurrger
  • 1 tsk. hunang
  • 1 tsk. salt
  • 3 1/2 dl volg mjólk
  • 1 egg
  • 30 gr. graskersfræ
  • 30 gr. sesamfræ
  • 30 gr. sólblómafræ
  • 30 gr. furuhnetur

Hnoða saman m/helmingnum af fræblöndunni.  Geymið hinn helminginn af fræblöndunni þar til síðar.

Hafrabollur 1

Láta hefast þar til deigið tvöfaldast, það tekur að lágmarki 1 klst.  Gott er að gefa deiginu lengri tíma, bollurnar verða bara betri.  Mótið deigið í lengju, skerið í jafna bita og mótið í bollur.

hafrabollur

Blandið helmingnum að fræjunum sem ekki fóru í deigið saman og setjið í grunna skál. Til þess að fræin festist og haldist vel á bollunum finnst mér best að dýfa bollunum fyrst í mjólk sem ég set í grunna skál og síðan í fræblönduna.

Bakið við 200°C í u.þ.b. 15 mínútur.

Birt í Árdegisverður (Brunch), Bakstur, Brauð, Morgunmatur | Merkt , , , , , , , , | 2 athugasemdir

Suðrænt lambalæri ala Jamie Oliver

IMG_8067Nýjasta tímaritið á I-Padinum mínum er Jamie Oliver, skemmtilegt blað sem svo sannarlega kveikir fullt af hugmyndum. Þessi uppskrift er einmitt úr nýjasta blaðinu, að sjálfsögðu gat ég ekki farið alveg eftir uppskriftinni og breytti henni í takt við það sem til var og aðlagaði að smekk dætra minna. Ég hætti ekki að dásama þennan nýja miðil í áskrift tímarita og Jamie hefur lengi verið átrúnaðargoð mitt þegar kemur að mat og matarmennningu. Heimsókn á veitingastað hans Fifteen í London er mjög eftirminnileg, mæli með að þið pantið borð áður en þið heimsækið Lundúni næst (http://www.fifteen.net).

Lærið er úrbeinað, lagt í kryddlög  í um það bil 4-6 tíma eða allt að sólahring og grillað útflatt eða það sem kallað er „butterfly“, á þann hátt verður kjötið nokkurn vegin jafnþykkt og  auðveldara að tryggja jafna eldun á grillinu.

Lambalærið bárum við fram með góðu salati, nýjum íslenskum kartöflum og kaldri sósu úr grískri jógúrt og harissa mauki. Upplagður sunnudagsmatur – hver man ekki eftir sunnudagslærinu sem í eina tíð var nánast heilög stund á íslenskum heimilum, þessi uppskrift er skemmtilegt tvist við þá hefð.

Uppskrift

  • Lambalæri u.þ.b. 2 kg.
  • 1 tsk. svört piparkorn
  • 1 tsk. rauð piparkorn (rósapipar)
  • 2 tsk. fennel-fræ
  • 1 tsk. kóríander-fræ
  • 1 sítróna, fínt rifinn börkur
  • 1 tsk. sæt reykt paprika
  • 1 búnt ferskt oreganó
  • 1 rautt chili skorið í þunnar sneiðar
  • 4 hvítlauks-geirar kramdir undir hnífsblaði
  • 6 tsk. ólífuolía
  • 2 tsk. rauðvínsedik
  • salt

Sósa

  • 1-2 tsk. Harissa
  • 1 dós grísk jógúrt

jamie-laeri

Úrbeinið lærið, leggið það á bretti þannig að sárið snúi að ykkur og skerið í vöðvann þar sem hann er þykkastur – hálfa leið í gegn í sitthvora áttina, opnið vöðvann eins og bók og fletjið út.  Á þennan hátt verður vöðinn nokkurn vegin jafn þykkur.

jamie-2

Hitið pönnu og ristið svörtu og rauðu piparkornin ásamt fennel og kóríander í smá stund eða þar til kryddið byrjar að ilma vel – gætið þess að standa yfir pönnunni allan tímann og hrista hana nokkrum sinnum, þetta gerist hratt.  Setjið ristuðu kryddin í mortél ásamt hvítlauk og 1/3 chili og myljið saman.

IMG_7989Blandið saman í stóra skál kryddmaukinu, gróft söxuðu oreganó, chili sneiðum, sítrónuberki, olífuolíu og rauðvínsediki ásamt smá salti, hrærið vel.

IMG_7991Setjið lambið í skálina og nuddið mareneringunni vel í kjötið.  Þekið skálina og setjið í ísskáp í a.m.k. 4-6 tíma eða yfir nótt.

Takið úr ísskápnum hálftíma fyrir eldun, svo kjötið nái herbergishita áður en það fer á grillið.

IMG_8058Grillið kjötið i í 25 – 35 mínútur og snúið bitanum á 7-10 mínútna fresti. Athugið að grilltíminn fer eftir smekk og aðstæðum.

IMG_8061Látið kjöti hvíla í u.þ.b. 10 mínútur áður en þið berið það fram.

Sósan

Hrærið 1-2 tsk. af harissa mauki saman við 1 dós af jógúrt.

Berið kjötið fram með sósunni, sítrónu sem skorin er í báta, einföldu og góðu salati og ef vill nýjum íslenskum karöflum sem vellt er upp úr smjöri og kryddaðar með gróft saxaðri steinselju og góðu salti.

Birt í Grillréttir, Kjötréttir | Merkt , , , , , , , , , , , , , , , , | 2 athugasemdir

Kantarellu risotto

IMG_8280Matarmarkaðir eru heillandi og skemmtilegir, svo skemmtilegir að ég leita þá uppi þegar ég er erlendis. Ég hlakka til að fylgjast með hvernig slíkir markaðir þróast hér á landi, en tilrauna-rekstur í sumar vona ég að hafi lofað góðu og að senn fáum við að njóta sambærilegra markaða og eru víðast hvar í Evrópu, líka á norðlægum slóðum. Á laugardaginn skaust ég niður á höfn í Helsinki og þræddi matarmarkaðinn sem þar er áður en ég fór í flug upp úr hádegi.  Í Finnlandi líkt og á Íslandi er sveppa- og berja-tímabilið núna í hámarki, sumarið hefur verið gott í Finnlandi og úrvalið og gæðin bera það með sér.  Á markaðnum var ógrynnin öll af ferskum kantarellum og ég stóðst ekki mátið og keypti heilan lítra af þessari gullnu dásemd og dröslaði þeim heim í handfarangri ásamt nokkrum öskjum af ferskum berjum. Kantarellurnar fóru meðal annars í risottó í kvöld, en hluta ætla ég að prufa að þurrka til að eiga til þar til í vetur þegar ekkert er um villta, ferska sveppi.markadur

Það er ekki mikil kúnst að búa til gott risotto ef eitt lykilatriði er haft að leiðarljósi – það er að gefa sér tíma og njóta þess að standa yfir pottunum í orðsins fyllstu merkingu. Eldamennskan sjálf tekur um ríflega 25 mínútur og þann tíma þarf maður að sína grjónunum mikla alúð.  Hella einungis einni ausu af góðu soði í einu yfir grjónin, hræra vel í og leyfa soðinu að sjóða alveg upp. Á þennan hátt fá grjónin tækifæri itl að taka í sig bragðgott soðið, sterkjan leysist úr læðingi verður til þess að grjónin verða rjómakennd í lokin. Það er um að gera að setja góða ítalska tónlist á fóninn, njóta eldamennskunnar og dreypa jafnvel á hvítvíni, já þó það sé bara venjulegur blautur og kaldur mánudagur. Ég hef heyrt því fleygt að það þurfi að lágmarki 3 glös af hvítvíni þegar gott ristotto er annars vegar, eitt fyrir grjónin, eitt fyrir kokkinn og loks eitt til að njóta með matnum.

IMG_8251Uppskrift

  • 1 laukur, smátt skorinn
  • 2 hvítlauksgeirar, kramdir undir hnífsblaði og skornir smátt
  • 1-2 msk. olífuolía
  • 300 gr. arborio hrísgrjón
  • 2 dl. þurrt hvítvín
  • 1 l. gott kjúklinga- eða grænmetissoð
  • 50 gr. smjör
  • 150 – 200 gr. kantarellur, skornar gróft
  • 100 gr. parmesan ostur (parmigioano reggiano) – nýrifinn
  • salt og svartur pipar

Hitið olíu og smá smjörklípu á pönnu og látið laukinn krauma í 5 – 10 mínútur eða þar til hann verður glær, gætið þess að laukurinn brúnist ekki.  risotto

Setjið hrísgrjónin út á pönnuna og hrærið vel saman, leyfið grjónunum að hitna vel í gegn, þau verða nánast glær í endana.  Hellið þá hvítvíninu út á pönnuna og sjóðið það upp í grjónin.  Hellið einni ausu af góðu soðinu út á grjónin í einu og hrærið vel. Grjónin eiga nánast að kalla á meira soð á milli þess sem þið ausið soðinu yfir grjónin.  Þegar grjónin eru nánast soðin – það er svolitið bit er í þeim, bætið kantarellunum út í.  Þá er smjörinu hrært saman við og loks nánast öllum parmesan ostinum. Kryddið með salti og pipar eftir smekk og berið réttinn fram velheitan með örlitlu af rifnum parmesan osti og ferskri steinselju.

Birt í Ítalskir réttir, Grænmetirréttir | Merkt , , , , , | Færðu inn athugasemd

Banana- og súkkulaðikaka

IMG_7455Kom heim í gær svolítið þreytt en glöð eftir nokkra góða daga í Helsinki þar sem við funduðum með kollegum frá Norðurlöndum og sátum ráðstefnu um listir og áheyrendur – gagnlegir og ákaflega ánægjulegir dagar. Helsinki er skemmtileg borg og veðrið lék við okkur, 20°C og sól og hver laus stund nýtt til að taka inn D vítamín. Þó það væri rétt á meðan við gengum á fundarstað og svo heim aftur í dagslok, í klukkustundarpásu í hádeginu eða tveggja tíma hlé í dagslok áður en kvölddagskráin hófst – mikið er sólin dásamleg.

Þegar heim kom tók þokan og rigningin á móti okkur – hitastigið úti rétt um 10°C og Menningarnótt hafin með allri sinni dásamlegu dagskrá. Fór strax í bæinn með fjölskyldunni og þræddi hvern viðburðinn á fætur öðrum og skemmtum við okkur ákaflega vel.  Um leið og ég vil þakka fyrir mig og mína velti ég því fyrir mér hvort borgarbúar geri sér grein fyrir hve margir vinna að því að gera þessa hátíð okkar að veruleika – eða hve mikið þau leggja í þá vinnu og hve langir vinnudagar þeirra eru vikurnar fyrir hátíð. Þeim vil ég óska til hamingju með enn eina frábæru hátíðina, sem í ár var toppuð með flottustu flugeldasýningu sem haldin hefur verið í Reykjavík held ég að óhætt sé að fullyrða og um leið og ég segi takk, takk, takk, já þúsund þakkir fyrir mig og mína.

En að uppskriftinn sem á þessum blauta sunnudagsmorgni, daginn eftir Menningarnótt er einföld og góð og á alltaf vel við. Kakan er hæfilega sæt og dásamleg með góðu kaffi, heitu kakó eða kaldri mjólk.

Uppskrift

  • 125 gr. smjör
  • 100 gr. sykur
  • 2 egg
  • 250 gr. hveiti
  • 1 tsk. vanilla
  • 2 tsk. lyftiduft
  • 3 bananar velþroskaðir – stappaðir
  • 100 gr. suðusúkkulaði grófsaxað

IMG_8087Hrærið smjör og sykur vel saman. Bætið eggjunum saman við einu í senn og hrærið vel.  Blandið hveiti og lyftidufti saman og bætið út í ásamt stöppuðum bönunum og vanillu. Hrærið þar til allt hefur blandast vel, þá er súkkulaðinu hrært saman við.  Sett í velsmurt og hveitistráð formkökuform. Bakað við 180°C í 50 – 60 mín. Látið kökuna kólna svolítið áður en hún er losuð úr forminu.

Birt í Bakstur, Kökur | Merkt , , , , , | Færðu inn athugasemd

Tómatsalat með fetaosti og ólífum

IMG_8124Fátt jafnast á við góðan árdegisverð með fjölskyldu og vinum um helgar. Það er svo nærandi að setjast niður með þeim sem manni þykir vænst um og borða góðan mat. Sitja lengi, tala hátt og mikið, borða hægt og njóta þess að vera saman.  Heimabakað brauð, ferskt grænmeti, gott álegg og sætur biti ásamt góðum ávaxtasafa og velheitu kaffi eru ómissandi á árdegiverðarborðið okkar.  Nú um helgina rataði þetta salat á borðið og vakti mikla lukku.  Borið fram með góðu brauði og fersku grænu salati úr garðinum – einfalt og gott.

IMG_8079

Uppskrift

  • 500 gr. tómatar, konfekt- eða plómutómatar eða blanda af þeim sem eru ferskastir
  • 25 – 35 svartar ólífur – skornar til helminga og steinninn tekinn úr
  • 100 gr. fetaostur – kubbur skorinn í bita
  • 30 blöð af basil saxað gróft.
  • 3 hvítlauksgeirar pressaðir
  • 2 msk. pestó m/sólþurrkuðum tómötum
  • 4 msk. góð ólífuolía
  • salt og pipar

Skerið tómata í báta eða í tvennt ef þeir eru litlir, setjið í skál ásamt ólífum, fetaosti og basil.  Blandið pestó, olíu og hvítlauk saman og hellið yfir tómatblönduna.  Hrærið varlega saman og kryddið með salti og pipar.  Látið standa í a.m.k. klukkustund áður en borið fram.  IMG_8081

Birt í Meðlæti, Salat, Smáréttir | Merkt , , , , , , , , , | Færðu inn athugasemd

Marokkósk lambakjötsúpa

IMG_7921Það er svo gaman að láta drauma sína rætast. Ég á engan „bucket“ lista en sest þó reglulega niður og lista upp nokkur atriði sem mig dreymir um að koma í framkvæmd. Með þessu móti verða draumarnir raunverulegri og öðlast frekar líf. Matreiðslunámskeið í Marokkó hafði verið draumur minn í mörg ár og það var í raun ekki fyrr en ég setti þennan draum niður á blað að ég lét loks verða að því að skella mér.  Fyrir tæpum tveimur fór ég með góðri vinkonu til Marrakesh í Marokkó á matreiðslunámskeið. Ferðin var ógleymanleg og við báðar staðráðnar í að endurtaka leikinn, fara á framandi eða minna framandi slóðir og læra að elda að hætti heimamanna.  MarrakechÞessi réttur var reyndar ekki eldaður á námskeiðinu í Marrakesh en á rætur sínar í Marokkó þar sem maturinn er vel kryddaður en þó ekki sterkur. Hráefnalistinn er svolítið langur en það þýðir samt alls ekki að eldamennskan sé flókin eða íllskiljanleg – byrjið bara á að týna allt hráefnið til og þá verður eldamennskan leikur einn.

IMG_7910

Uppskrift

  • 2 – 3 msk ólífuolía
  • 2 laukar, saxaðir smátt
  • 2 sellerí stilkar – skornir smátt
  • 2 gulrætur skornar i teninga
  • 3 hvítlauksgeirar
  • 1 msk. broddkúmen fræ
  • 450 gr. lambakjöt magurt skorið í litla bita- t.d. lærisneiðar
  • 2-3 tsk. túrmerik
  • 2 tsk. paprika
  • 2 tsk. kanill
  • 1 tsk. hunang
  • 2 lárviðarlauf
  • 2 msk. tómatpúrra
  • 1 ltr. lambakjötsoð
  • 250 gr. soðnar kjúklingabaunir
  • 1 dós tómatar saxaðir
  • 100 gr. grænar eða brúnar linsubaunir
  • 1 búnt fersk flatblaðasteinselja smátt söxuð
  • salt og pipar
  • 1 sítróna

Hitið olíu í góðum potti og steikið lauk, sellerý og gulrætur við lágan hita í nokkrar mínútur eða þar til laukurinn verður glær. Bætið krömdum hvítlauk og broddkúmen-fræjum í pottinn og blandið vel saman.  Hækkið hitann, setjið smátt skorið kjötið út í pottinn og steikið þar til kjötið hefur allt tekið lit. Bætið túrmerik, papriku, kanil og hunangi út í ásamt tómatpúrru og hrærið vel saman.  Þá er lambakjötsoðinu og lárviðarlaufum bætt saman við, hrærið vel saman og látið suðana koma upp.  Lækkið hitann þegar suðan er komin upp, setjið lok á pottinn og látið malla við vægan hita í u.þ.b. 40 mínútur eða þar til kjötið er meyrt.  Bætið þá söxuðum tómötum og linsubaunum útí og látið sjóða í 20 mínútur.  Þá er kjúklingabaunum bætt út í og soðið áfram í u.þ.b. 10 mínútur.  Smakkið til og kryddið með salti og pipar, ef súpan er of þykk má bæta vatni út í  hana.  Hrærið um helmingnum af steinseljunni út í pottinn.

Súpuna á að bera fram mjög heita með nóg af góðu brauði, strá yfir hana steinselju, nýrifnum sítrónuberki og sítrónusafa.

IMG_7918

Birt í Kjötréttir, Súpur | Merkt , , , , , , , , , , | Færðu inn athugasemd